Karolina Fund: Fatalína innblásin af listrænt þenkjandi hlaupahóp

Petra Bender er textíl- og graf­ískur hönn­uður. Hún er að vinna að fjár­mögnun fata­lín­unnar WERQ á Karolina Fund. Kjarninn tók hana tali og for­vitn­að­ist um verk­efnið.

https://vimeo.com/129230981

Hefur alltaf verið mikið fyrir íþróttir og fallega hluti


 Er ein­hver hug­mynda­fræði sem liggur að baki WERQ?

"Eftir að hafa klárað nám í Lista­há­skól­anum í graf­ískri hönnun, hafði ég þörf fyrir að sjá hönn­un­ina mína á meira heldur en pappír. Ég hafði alltaf mik­inn áhuga á fötum og fann sterkt að það myndi vera næsta skref hjá mér.

Ég hef alltaf verið mikið fyrir íþróttir og fal­lega hluti. Þegar ég bjó í London, og var í fram­halds­námi í Central Saint Martins í Master í textíl, lifði ég mun hrað­ari lífstíl heldur en hér heima á klak­anum. Þar átti ég ekki pen­ing fyrir íþrótta­korti þannig að ég byrj­aðu að hlaupa mér til heilsu­bótar í görð­unum í London. Ég heyrði af hlaupa­hópnum RunDemCrew sem hljóp viku­lega frá Nike búð­inni 1948 sem er í Shoreditch. Í þessum hlaupa­hóp er mikið af list­rænt þenkj­andi fólki og var þetta miklu meira spurn­ing um félags­skap­inn heldur en hlaupin sjálf, alla­vega fyrir mig.

Með þessum hóp ferð­að­ist ég til New York, Amster­dam, Kaup­manna­hafnar, Berlínar og Parísar. Við hittum þar aðra Nike hlaupa­hópa þar sem við end­uðum oft í hlaupa­gall­anum á kaffi­húsi eða djamm­inu. Þar kvikn­aði upp hug­myndin mín um WERQ by Petra Bender.

Mér fannst vanta fatnað sem mér líður alltaf vel í og væri þægi­legur og mér liður vel í all­staðar. WERQ er hugsuð sem hágæða fata­lína inn­blásin af virkum lífs­stíl. Fatnaður fyrir hreyf­ingu hvort sem á íþrótta­velli, í hver­dags­líf­inu eða á skemmt­ana­líf­inu."


Hefur alltaf verið litaglöð


Eru ein­hverjir litir eða línur áber­andi í fata­lín­unni WERQ?

"Eins og er þá er ég að hugsa um bjarta liti, þar sem ég hef alltaf verið litaglöð. Svo langar mig að leggja áheyrslu á munstur­gerð, textíl og áferð­ina á föt­unum. Ég fæ mik­inn inn­blástur fyrir litapæl­ing­arnar mínar úr nátt­úr­unni og umhverf­inu. Plöntum og blómum úr mis­mun­andi árs­tíðum. Einnig hefur alls­konar arkítektúr, form og litir þeirra í miklu upp­á­haldi í bland við alls­konar götu­list eins og graffíti. Svo sanka ég líka að mér blöðum, frekar gömlum heldur en nýjum. Aðal áherslu­litur fyrstu lín­urnar minnar verður hvítur með ýmsum lita­sam­setn­ingum."

Hvaðan sæk­irðu inn­blástur?

"Ég sæki mest inn­blást­ur­inn minn á ferð og flugi um stór­borgir þar sem er mikið hægt að taka inn bæði úr mann­lífi göt­unnar eða út hljóð­látu umhverfi í nátt­úru Íslands. Það er svo mis­mun­andi hvaðan ég verð fyrir áhrifum að hönn­un­inni. Mér finnst gaman að blanda saman ólíkum hlutum.

Ég held líka að það sé alltaf smá fast 80' og 90' and­rúms­loft í mér frá hip hoppi RMB-menn­ing­unni í bland við hipp­ann og ævin­týra­kon­una í mér. Þegar að ég var úti var ég lær­lingur og síðan freelance hönn­uður hjá hönn­un­ar­stof­unni Hótel Creative. Aðal­kúnn­inn þeirra er Nike. Þar hjálp­aði ég mikið við hug­mynda­vinnu aðal hug­mynda­stjór­ans og eig­anda fyr­ir­tæk­is­ins. Ég er mjög þakk­lát fyrir þá reynslu, þar sem ég lærði mikið varð­andi hönn­un­ar­ferlið sem ég mun alltaf búa að. Einnig vann ég fyrir fata­hönn­uði á borð við Peter Jensen og Fred Butler. Maður er samt alltaf að breyt­ast og veit aldrei hvað kemur næst. Línan mín verður hins vegar önnuð úr vönd­uðum þægi­legum efnum og ein­földum sniðum."

Verk­efnið er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár