Karolína Fund: Hlussubolti á Austurlandi

Hjónin Bylgja Borg­þórs­dóttir og Guðjón Hilm­ars­son búa á Egils­stöðum með dreng­ina sína tvo, Jónas Hrafn og Arnar Yang. Jónas Hrafn fædd­ist á Íslandi árið 2011 en Arnar Yang í Kína 2013 og fjöl­skyldan fór saman í mikla ævin­týra­ferð til að sækja hann í des­em­ber á síð­asta ári. Þau starfa bæði sem kenn­arar við Egils­staða­skóla, Bylgja á ung­linga­stigi og Guðjón er íþrótta­kenn­ari. Bylgja er upp­alin á Egils­stöðum en Guðjón á Vopna­firði.

Og þau ákváðu nýverið að hefja verk­efnið Hlussu­bolti á Aust­ur­landi sem nú er safnað fyrir á Karolina Fund.

Hlussubolti fyrir 15 ára og eldri


Hvers vegna ákváðuð þið að fara út í þetta verk­efni?

"Við höfum oft rætt það að þrátt fyrir að það sé margt í boði hér fyrir austan og menn­ing­ar­lífið mjög gott, þá vantar oft eitt­hvað þægi­legt að gera, t.d. fyrir hópa af ung­lingum, með lít­illi fyr­ir­höfn og litlum til­kostn­aði. Það varð svo úr að við ákváðum að drífa bara í því sjálf að bjóða upp á slíka afþr­ey­ingu, fórum að skoða hvað var í boði og Hlussu­bolt­inn er akkúrat það sem okkur, og Aust­firð­inga alla, vant­aði. Við drifum þannig í því að setja upp fjár­mögn­un­ar­síðu á Karolina Fund til að lág­marka alla fjár­hags­lega áhættu (Þið lásuð það áðan, við erum bæði kenn­arar!) og von­umst til að það gangi upp."

Hvað er hlussu­bolti og fyrir hverja er hann?

"Hlussu­bolti er í raun skemmti­leg afþrey­ing fyrir allt fólk frá ca. 15 ára aldri og upp úr. Hún felst í því að þátt­tak­endur klæða sig í stóran, upp­blás­inn bolta, en fæturnir standa niður úr honum. Yfir­leitt taka 6-12 manns þátt og er jafnt hægt að spila fót­bolta sem og fara í aðra leiki og þrautir. Allt gengur þetta út á að reyna að sigra þann leik sem leik­inn er og helst af öllu að koma and­stæð­ing­unum á hlið­ina í leið­inni, en erfitt getur verið að fóta sig þegar Hlussan tekur völdin. Fyrri íþrótta­afrek eru einskis virði þegar í Hlussu­bolt­ann er komið, það eiga allir jafnan séns innan í risa­bolta. Það er þó rétt að geta þess að ekki er æski­legt að stunda Hlussu­bolta ef menn eru slæmir í baki eða eiga við annan stoð­kerf­is­vanda að etja og að Hlussu­bolta stunda allir á eigin ábyrgð."

https://www.youtube.com/watch?v=hKZoCjWnmVk

Færanlegar Hlussur


Hvar verður hægt að kom­ast í hlussu­bolta ef þetta verk­efni nær að safna því fjár­magn sem það þarf?

"Hlussu­bolti verður með aðsetur í Selskógi við Egils­staði þegar veður leyfir, ann­ars inn­an­dyra á Egils­stöðum. Þá er vel hægt að fá Hlussu­bolt­ann á aðra staði á Aust­ur­landi, það er auð­velt að ferð­ast með bolt­ana og yfir­leitt mjög ein­falt að finna stað­setn­ingu og það er þá gert í sam­ráði við þá sem panta Hluss­urnar. Eins stefnum við að því að koma við á flestum stöðum á Aust­ur­landi næsta árið, t.d. þegar bæj­ar­há­tíðir fara fram og almennt þar sem fleiri en tutt­ugu manns safn­ast saman. Þá er Hlussu­bolti auð­vitað kjör­inn fyrir alls kyns starfs­mannap­artý, steggj­anir og gæs­anir, hópefli af ýmsu tagi. Þá er það oft van­metið hvað það er fínt að kom­ast í þær aðstæður að mega hlaupa niður, og það af fullum krafti, vini sína, sam­starfs­fólk og jafn­vel yfir­menn, án þess að mikil hætta sé á því að nokkur meið­ist. Eða móðg­ist."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár