Karolina Fund: Svanurinn í sparifötin

Lúðra­sveitin Svanur var stofnuð 16. nóv­em­ber 1930 og er því 85 ára árið 2015. Meðlimir hennar hafa verið ansi margir en að yfir­leitt spila á bil­inu 35-45 manns með sveit­inni. Sveitin hefur þjónað sem upp­eld­is­stöð fyrir blás­ara­deild Sin­fón­í­unnar og ef heyr­ist í lúðrum í popp­lögum, er nokkuð ljóst að ein­hverjir þar hafa komið við í Svaninum. Árið 1962 kom Svan­ur­inn sér upp bún­ingum sem hafa verið ein­kenn­andi fyrir sveit­ina síðan þá - bláir að lit og að banda­rískri fyr­ir­mynd. Enda mikið að ger­ast í lúðra­sveitum þar í landi.

Svan­ur­inn spil­aði inn á fyrstu Stereo hljóm­plötu Íslands árið 1970 undir stjórn Jóns Sig­urðs­sonar, sem Fálkinn gaf út.

Um þessar mundir stendur yfir söfnun á Karolina Fund fyrir nýjum bún­ingum fyrir hljóm­sveit­ar­með­limi. Kjarninn ræddi við Þorkel Harð­ar­son, kvik­mynda­gerð­ar­mann og klar­inettu­leik­ara (með lúðra­sveit­ar­blæti), um söfn­un­ina og ýmis­legt annað sem skiptir öllu máli.

[caption id="attachment_35507" align="alignnone" width="1080"] Hljóm­sveitin Svanmur á Þjóð­laga­há­tíð á Siglu­firði.[/caption]

Bókstaflega spilað rassinn úr buxunum


Er það rétt að að þið séuð búin að spila rass­inn úr bux­unum?

"Í dag er Svan­ur­inn að ákveðnu leyti búinn að spila rass­inn úr bux­unum, Ekki tón­list­ar­lega séð, langt í frá - en bún­inga­lega séð. Búningar sveit­ar­innar eru orðnir gamlir og úr sér gengnir og kom­inn tími til að end­ur­nýja þá."

Hvaða leið fóruð þið í ákvörð­un­inni varð­andi útlitið á bún­ing­unum?

"Við ákváðum að fara þá leið að láta hanna nýja bún­inga á sveit­ina og fengum Rögnu Fróða, fata­hönnuð og fyrrum horn­leik­ara í Svaninum til þess. Nýju bún­ing­arnir kall­ast á við þá gömlu í litum og útliti - en eru með nútíma­legri sniði og afar glæsi­legir. Þetta er dýrt spaug að end­ur­nýja bún­inga­safnið á einu bretti og þess vegna beittum við ýmsum ráðum við fjár­öfl­un­ina - meðal ann­ars erum við á Karolina Fund um þessar mundir að reka smiðs­höggið á fjár­öfl­un­ina.

[caption id="attachment_35505" align="align­right" width="764"] Bún­ing­arnir sem hljóm­sveitin hyggst láta útbúa á sig.[/caption]

Styrktu og fáðu að stjórna lúðrasveit


Þegar fólk styrkir ykkur á Karolina Fund, getur það átt von á ein­hverju góðu í stað­inn?

"Á Karolina Fund erum við að bjóða ýmis­legt skemmti­legt ef fólk ákveður að heita á okkur - rús­ínan í pylsu­end­anum er auð­vitað tæki­færi til að stjórna einu lagi með full­skip­aðri lúðra­sveit á tón­leikum með okkur! Þetta er hin full­komna gjöf fyrir þann sem allt á og ekk­ert vantar. Síðan erum við að bjóða upp­tökur með sveit­inni á DVD og CD ásamt miða á tón­leika. Og auð­vitað erum við að bjóða spila­mennskur líka - allt frá kvar­tettum og kvin­tettum upp í full­skip­aða lúðra­sveit. Til dæmis ef ein­hver ætlar að játa ást sína með til­þrifum, er hægt að fá lúð­ur­þeyt­ara til að aðstoða sig við stemn­ing­una. Eða ef fólk ætlar í pott­inn og er í mjög flipp­uðu skapi, þá getur það fengið lúðra­sveit til að hjálpa til að við skapa sól­ar­stemn­ingu með smá Sam­batakri. Það er allt hægt með lúðra­sveit til að skapa góða stemn­ingu."

Mikil eftirspurn eftir naktri lúðrasveit


Þorkell segir að það sem hafi komið þeim á óvart við fjár­öfl­un­ina var að hljóm­sveitin var eitt­hvað að hóta því að hún myndi þurfa að spila nakin niður Lauga­veg­inn í næstu mar­s­er­ingu, því bún­ing­arnir væru að rakna utan af henni - þá kom í ljós að þetta var tví­eggja sverð sem þau höfðu brugðið þarna á loft. "Það er mikil eft­ir­spurn eftir naktri lúðra­sveit, meira að segja er útgef­andi búinn að hafa sam­band við okkur til að gefa út daga­tal með nak­inni lúðra­sveit. Það þarf reyndar að finna réttan prís á svo­leiðis sveit - lög­mál mark­að­ar­ins um fram­boð og eft­ir­spurn hljóta að ráða þar eins og ann­ar­staðar. Sjáum til hvað setur en fjár­öfl­unin gengur ágæt­lega um þessar mundir og nú eru síð­ustu dag­arnir í henni að renna upp. Sjáum til hvort ekki tekst að full­fjár­magna þetta á Karolina, með aðstoð les­enda með lúðra­sveit­ar­blæti eða lúðra­sveitar eitrun á háu stigi."

https://vimeo.com/130158835

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár