Vladimir Pútín: Blatter á skilið Nóbelsverðlaun

Vladimir Pútín, for­seti Rúss­lands, telur að Sepp Blatter, frá­far­andi for­seti FIFA, eigi skilið Nóbels­verð­laun fyrir störf sín í þágu knatt­spyrnu­sam­bands­ins. Í við­tali við sviss­nesku sjón­varps­stöð­ina RTS sagði Pútín að Blatter og aðrir æðstu stjórn­endur alþjóð­legra íþrótta­sam­banda eigi skilið við­ur­kenn­ingu. Ef ein­hverjir eigi skilið Nóbels­verð­laun, þá sé það þetta fólk. The Guardian greinir frá í dag.

Blatter og Pútín hitt­ust í St. Pét­urs­borg síð­asta laug­ar­dag þegar dregið var í riðla fyrir und­ankeppni Heims­meist­ara­móts­ins í knatt­spyrnu sem verður haldið í Rúss­landi 2018. Blatter opin­ber­aði að FIFA styðji að fullu við bakið á gest­gjöfum Rússum, en landið hefur glímt við mikla erf­ið­leika í efna­hags­líf­inu að und­an­förnu. „Við vitum stöð­una á Blatter í dag. Ég vil ekki ræða smá­at­riði en ég trúi ekki orði af því sem sagt er um hann teng­ist spill­ing­ar­málum per­sónu­lega,“ sagði Pútín við fjöl­miðla. Blatter til­kynnti í júní síð­ast­liðnum að hann muni stíga niður af stóli for­seta FIFA. Það gerði hann í kjöl­far hand­taka í maí síð­ast­liðnum á níu stjórn­endum FIFA og ákærum um pen­inga­þvætti, mútur og spill­inu. Blatter hefur alltaf haldið fram sak­leysi sínu og hefur ekki verið ákærður. Það var banda­ríska alrík­is­lög­reglan, FBI, sem rann­sak­aði starf­semi FIFA.


Stóra spill­ing­ar­málið hefur vakið spurn­ingar um hvort stjórn­völd í Rúss­landi og Katar, sem halda mótið 2022, hafi fengið útnefn­ingu FIFA með lög­legum og heið­ar­legum hætti. Rússar hafa ætíð hafnað því að nokkuð mis­jafnt hafi við­hafst.


Lík­leg­asti arf­taki Sepp Blatter í starf for­seta FIFA er Michael Platini, for­seti UEFA. Búist er við að hann greini frá fram­boði sínu til for­seta FIFA síðar í þess­ari viku, að því er segir í frétt á Fótbolti.net. Kosn­ing­arnar verða haldnar þann 26. febr­úar á næsta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár