FIFA-ákærur: Kerfisbundið peningaþvætti, mútur og stórfelld spilling

Ákær­urnar á hendur níu­menn­ing­unum sem hafa verið meðal æðstu stjórn­enda FIFA und­an­farin ár byggja á kerf­is­bundnu pen­inga­þvætti, mútum og stór­felldri ólög­legri hátt­semi og spill­ingu. Þetta kemur fram í ákæru­skjal­inu, sem The Guardian vitnar til í umfjöllun sinni, en Loretta Lynch, sak­sókn­ari í Banda­ríkj­unum, sagði á blaða­manna­fundi í dag að 47 ákæru­at­riði væru upp­talin sem tengd­ust meðal ann­ars fjársvikum auk fyrr­nefndra atriða. Voru atriðin sam­an­tekin í til­kynn­ingu og kynnt á fund­inum.

Ákæran byggir á rann­sókn Alrík­is­lög­regl­unnar FBI á spill­ingu innan FIFA, sem hófst í kjöl­far þess að ákveðið var að halda HM í Rúss­landi 2018 og Katar 2022. Rann­sóknin nær hins vegar til mun fleiri atriða sem aðeins þess­ara tveggja atriða, sam­kvæmt sem fram kom á blaða­manna­fundi sak­sókn­ara í dag.

Ákæra verður gefin út á hendur alls níu stjórn­endum og stjórn­ar­mönnum FIFA til við­bótar við þá sjö sem voru hand­teknir í Sviss. Á meðal þeirra sem einnig verða ákærðir, en voru hand­teknir í morgun, eru Jack Warner, fyrrum vara­for­seti FIFA frá Trinidad og Tobago, Jef­frey Webb frá Caym­an Is­lands, vara­for­seti fram­kvæmda­stjórn­ar FIFA, og Eu­genio Figu­eredo frá Úrúg­væ. Búist er við að nokkrir stjórn­endur íþrótta­mark­aðs­fyr­ir­tækja frá Banda­ríkj­unum og Suður-Ameríku verði líka ákærðir en þeir eru grun­aðir um að hafa greitt meira en 150 millj­ónir dala, um 20,2 millj­arða króna, í mútur og greiðslur undir borðið og fengið í stað­inn arð­væna fjöl­miðla­samn­inga í tengslum við stórar knatt­spyrnu­keppnir á vegum FIFA. Sepp Blatter, for­seti FIFA, er ekki á meðal þeirra sem hafa verið hand­teknir, en ekki liggja fyrir upp­lýs­ingar um hvort hann sjálfur er til rann­sóknar hjá banda­rískum yfir­völdum.

Lynch sagði að rann­sókn hefði leitt til rann­sóknar á málum, þar sem djúp­stæð spill­ing hefði verið stað­fest, bæði á erlendum vett­vangi og í Banda­ríkj­unum. Í það minnsta tvær kyn­slóðir stjórn­enda hjá FIFA eru til rann­sóknar, að því er fram kom í máli Lynch, þar sem grunur leikur á því að þeir hafi mis­notað aðstöðu sína til þess að þiggja mútu­greiðslsur. Eru brotin sem liggja til grund­vallar hand­tök­unum rakin til árs­ins 1991, sér­stak­lega greiðslur frá íþrótta­vöru­fram­leið­endum sem hindr­uðu fram­gang sam­keppn­is­að­ila með mútu­greiðsl­unum.

Kelly Currie, starf­andi sak­sókn­ari í Banda­ríkj­unum, sagði að ekki væru öll kurl komin til grafar ennþá í rann­sókn máls­ins, og að fleiri ákærur yrðu hugs­an­lega gefnar út á hendur stjórn­endum FIFA.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár