Lykilspurningar varðandi aðgerðir FIFA: Um hvað snýst málið?

Breski fjöl­mið­ill­inn The Guardian birti í morgun helstu upp­lýs­ingar sem varða aðgerðir lög­regl­unnar í Sviss sem bein­ast að hátt­settum mönnum sem starfa, eða hafa starfað, fyrir FIFA. New York Times fjallar síðan ítar­lega um málið í dag og hefur raunar leitt umfjöllun um málið frá árinu 2013. Banda­rísk yfir­völd fara með rann­sókn máls­ins en grunur er uppi um að ein­stak­ling­arnar sem um ræðir hafi þegið mútur upp á hið minnsta 150 millj­ónir Band­ríkja­dala, eða sem nemur um þrettán millj­örðum króna, vegna und­ir­bún­ings fyrir staða­val HM í fót­bolta sem haldið verður í Rúss­landi 2018 og Kata 2012.

Hverjir voru handteknir?


Samkvæmt frétt New York Times verður ákæra gefin út á hendur alls átta stjórn­endum og stjórn­ar­mönnum FIFA til við­bótar við þá sex sem voru hand­teknir í Sviss. Á meðal þeirra sem einnig verða ákærðir, en voru hand­teknir í morgun, eru Jack Warner, fyrrum vara­for­seti FIFA frá Trinidad og Tobago, Jef­frey Webb frá Caym­an Is­lands, vara­for­seti fram­kvæmda­stjórn­ar FIFA, og Eu­genio Figu­eredo frá Úrúg­væ. Búist er við að nokkrir stjórn­endur íþrótta­mark­aðs­fyr­ir­tækja frá Banda­ríkj­unum og Suður-Ameríku verði líka ákærðir en þeir eru grun­aðir um að hafa greitt meira en 150 millj­ónir dala, um 20,2 millj­arða króna, í mútur og greiðslur undir borðið og fengið í stað­inn arð­væna fjöl­miðla­samn­inga í tengslum við stórar knatt­spyrnu­keppnir á vegum FIFA. Sepp Blatter, for­seti FIFA, er ekki á meðal þeirra sem hafa verið hand­teknir, en ekki liggja fyrir upp­lýs­ingar um hvort hann sjálfur er til rann­sóknar hjá banda­rískum yfir­völdum.

Hvers vegna var gripið til aðgerða núna?


Lög­reglu­yf­ir­völd í Sviss virð­ast hafa tíma­sett aðgerð­irnar fyrir árs­fund FIFA sem hefst á föstu­dag­inn, þar sem flestir þeirra sem hafa nú verið hand­teknir voru komnir saman á sama stað. Þeir voru á Baur au Lac, lúx­us­hót­eli í Sviss með útsýni yfir sviss­nesku Alpana.

Hvers vegna eru bandarísk yfirvöld að rannsaka FIFA?


Sak­sókn­ari í Banda­ríkj­unum hefur þegar boðað til blaða­manna­fundar síðar í dag, þar sem farið verður yfir þau atriði sem rann­sóknin bein­ist að, að því er fram kemur í Guardian í dag. Alrík­is­lög­reglan FBI hefur verið með mútu­mál sem teng­ist stjórn­endum FIFA til rann­sóknar und­an­farin ár, en fréttir þess efnis voru sagðar í fjöl­miðlum í mars 2013, og síðan í nóv­em­ber 2014. Chuck Blazer, fyrr­ver­andi með­limur í fram­kvæmda­stjórn FIFA, er sagður hafa unnið með FBI eftir að gögn fund­ust um skattaund­an­skot hans. Samkvæmt frá­sögn The New York Daily News í nóv­em­ber í fyrra, sem Guardian vitnar til, var Blazer með upp­töku­græjur frá FBI inn á sér þegar hann ræddi við nokkra þeirra sem hafa nú verið hand­teknir á fundi. Þetta eru sögð lyk­il­gögn í mál­inu.

Hver er Chuck Blazer?


[caption id="attachment_29752" align="alignleft" width="162"] Chuck Blazer. Mynd: EPA.[/caption]

Blazer hætti störfum hjá FIFA í maí 2013, og var bannað að hafa afskipti af fót­bolta í nítíu daga, vegna ásak­ana um að hann hefði þegið mútur upp á tutt­ugu millj­ónir Banda­ríkja­dala, jafn­virði um 2,6 millj­arða króna. Blazer er sjö­tugur, og sagður hafa verið mað­ur­inn á bak við mik­inn árangur sem náðst hefur við mark­aðs­setn­ingu fót­bolta í Banda­ríkj­unum á síð­ustu árum. Blazer er þekktur fyrir áber­andi lúxus-lífstíl en hann á íbúð á besta stað á Man­hattan og einnig risa­vaxna villu á Bahamas. Hann hefur oft verið nefndur Herra tíu pró­sent (Mr. Ten Percent) vegna samn­inga sem hann gerði við knatt­spyrnu­sam­bönd Mið-Ameríku um að fá til sín tíu pró­sent af tekjum.

Sepp Blatter, for­seti FIFA, sagði á blaða­manna­fundi í morgun að engar hús­leitir hefðu verið gerðar á skrif­stofum FIFA. Þá sagði hann enn­fremur að sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem hann hefði, þá væri FIFA þol­and­inn í mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár