Ísland í riðli með Króatíu, Úkraínu, Tyrklandi og Finnlandi í undankeppni HM 2018

Íslenska karla­lands­liðið í knatt­spyrnu hafn­aði í I-riðli með Króatíu, Úkraínu, Tyrk­landi og Finn­landi í und­ankeppni Heims­meist­ara­móts­ins í fót­bolta sem fram fer í Rúss­landi árið 2018.

Karla­lands­liðið var í fyrsta skipti í öðrum styrk­leika­flokki við útdrátt fyrir riðla­keppni stór­móts í knatt­spyrnu. Í öðrum styrk­leika­flokki voru sterkar knatt­spyrnu­þjóðir á borð við Ítalíu, Slóvakíu, Aust­ur­ríki, Sviss, Tékkland, Frakk­land, Danmörku og Bosníu-Herzegóvínu sem þýddi að íslenska karla­lands­liðið gat ekki lent með áður­nefndum þjóðum í riðli.

Heims­meist­arar Þjóð­verja höfn­uðu í C-riðli ásamt Tékkum, Norður-Írum, Norð­mönnum, Aserum og lands­liði San Marínó. Þá geta Eng­lend­ingar prísað sig sæla en þeir leika í F-riðli und­ankeppn­innar þar sem þeir munu kljást við lands­lið Slóvakíu, Skotlands, Slóveníu, Litháen og Möltu.

Svíar eiga ærið verk­efni fyrir höndum, en þeir dróg­ust í A-riðil ásamt Hollandi, Frakk­landi, Búlgaríu, Hvíta-Rúss­landi og Lúx­em­borg. Þá höfn­uðu Danir í E-riðli með lands­liðum Rúmeníu, Póllandi, Svart­fjalla­landi, Armeníu og Kasakstan.

Alls var dregið í níu riðla fyrir þjóðir Evrópu en sig­ur­veg­arar þeirra fara beint á HM 2018 í Rúss­landi og átta lið sem lenda í öðru sæti fara svo í umspil um laust sæti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár