Rannsókn á spillingu truflar ekki undirbúning Rússa fyrir næsta heimsmeistaramót

Hvorki skyndi­leg afsögn Sepp Blatter, for­seta alþjóða­knatt­spyrnu­sam­bands­ins FIFA, né fregnir þess efnis að bæði sviss­nesk yfir­völd og banda­ríska alrík­is­lög­reglan FBI séu nú að rann­saka hvort heið­ar­lega hafi verið staðið að kosn­ing­unni um rétt­inn til að halda heims­meist­ara­mótið árið 2018 - virð­ast hafa hreyft mikið við gest­gjöf­unum til­von­andi, Rússum.

"Við gerum ráð fyrir því að herra Blatter muni sinna skyldum sínum fram að næsta þingi alþjóða knatt­spyrnu­sam­bands­ins. Við munum því halda áfram sam­starfi okkar og það sem mestu máli skiptir, halda áfram und­ir­bún­ingi okkar fyrir heims­meist­ara­mótið 2018,” er haft eftir tals­manni Pútíns Rúss­lands­for­seta í rúss­neskum fjöl­miðlum í kjöl­far þeirrar “spill­ing­ar­öldu” sem gengið hefur yfir alþjóða knatt­spyrnu­heim­inn síð­ustu daga.

Pútín tjáði sig reyndar sjálfur um aðgerðir Banda­ríkja­manna í nýlegu við­tali við RT sjón­varps­stöð­ina og furð­aði sig þá á hinum langa armi lag­anna í Banda­ríkj­unum. “Þetta er enn ein til­raun þeirra til þess að þröngva eigin lög­gjöf upp á aðrar þjóðir. Það er aug­ljós­lega verið að þrýsta á Blatter til að taka heims­meist­ara­mótið 2018 af Rússum,” sagði Pútín ómyrkur í máli.

[caption id="attachment_30801" align="alignnone" width="620"] Kyn­þátta­hatur er alvar­legt vanda­mál á knatt­spyrnu­völlum í Rúss­landi. Á mynd­inni sjást stuðn­ings­menn Spartak Moskvu með nas­ista­fána. MYND: Str/AP[/caption]

Spilling á spillingu ofan


Ásakanir um spill­ingu eru vit­an­lega engin nýlunda þegar kemur að FIFA. Kosn­ingar um rétt­inn til að halda heims­meist­ara­mót virð­ast þar sér­stak­lega vera kjör­inn vett­vangur fyrir ólög­mæta hegðun. Banda­ríkja­mað­ur­inn Chuck Blazer, fyrrum stjórn­ar­með­limur hjá FIFA, við­ur­kenndi nú á dög­unum að hafa verið á meðal “nokk­urra” aðila sem þegið höfðu mútur í skiptum fyrir atkvæði sitt í aðdrag­anda kosn­inga um rétt­inn til að halda heims­meist­ara­mótið árið 1998 ann­ars vegar og árið 2010 hins vegar. Upp­ljóstrun Blazer var því raunar fyrst og fremst frek­ari stað­fest­ing á því sem þegar var vitað um spill­ing­una innan FIFA.

Í aðdrag­anda kosn­ing­ar­innar um rétt­inn til að halda heims­meist­ara­mótið árið 2018, sem var haldin sam­tímis kosn­ing­unni um mótið árið 2022, voru einmitt tveir af tutt­ugu og fjórum stjórn­ar­mönnum FIFA á kjör­skrá sviptir kosn­inga­rétti sínum fyrir meinta mútu­þægni. Aðrir þrír stjórn­ar­menn FIFA til við­bótar voru enn­fremur nafn­greindir og ásak­aðir um spill­ingu í þætt­inum “FIFA’s Dirty Secrets” sem breska rík­is­sjón­varpið BBC sýndi aðeins nokkrum dögum fyrir kosn­ing­arnar. Við nán­ari athugun kemur svo reyndar í ljós að af þeim tutt­ugu og tveimur aðilum sem tóku þátt í kosn­ing­unum - hefur alla vega helm­ingur kjós­end­anna verið sterk­lega bendl­aður við spill­ingu, á einn eða annan hátt, í stjórn­ar­tíð sinni hjá FIFA.

Hvernig sem því líður þá til­kynnti Blatter um sigur Rúss­lands þann 2. des­em­ber árið 2010, en Sviss­lend­ing­ur­inn hefur síðar ekki farið leynt með stuðn­ing sinn við Rússa og þá sér­stak­lega við Pútín. Rússar fengu sem sagt níu atkvæði í fyrstu umferð atkvæða­greiðsl­unnar á meðan sam­eig­in­legt fram­boð Spán­verja og Portú­gala fékk sjö atkvæði, en tólf atkvæði þurfti til að vinna kosn­ing­una. Eng­lend­ingar voru aftur á móti neðstir með aðeins tvö atkvæði í fyrstu umferð­inni og féllu strax úr leik, en ein­hverjir kenndu heim­ild­ar­þætti BBC þar um með því að skapa fram­boði Eng­lend­inga óvild. Rússar lönd­uðu svo sigrinum nokkuð sann­fær­andi í annarri umferð atkvæða­greiðsl­unnar með þrettán atkvæðum gegn sjö atkvæðum Spán­verja og Portú­gala.

Katar vann sam­dæg­urs bar­átt­una um rétt­inn til að halda heims­meist­ara­mótið árið 2022 en í umræð­unni síð­ustu daga hefur miklu frekar verið ræddur mögu­leik­inn um að Katar missi rétt sinn frekar en Rússar til móts­halds, ef færðar verða sönnur á að ólög­mætar kosn­ingar hafi átt sér stað. Enda Rússar komnir langt á veg með und­ir­bún­ing sinn fyrir mótið árið 2018.

[caption id="attachment_30800" align="alignnone" width="800"] Gríð­ar­legar end­ur­bygg­ing­ar­fram­kvæmdir standa nú yfir á Luzhniki-leik­vang­inum en bæði opn­un­ar­leikur og úrslita­leikur heims­meist­ara­móts­ins árið 2018 verða spil­aðir þar. MYND: Stadi­umdb.com[/caption]

Pólitískar hótanir og kynþáttafordómar


Þrátt fyrir að ólík­legt verði að telj­ast að rann­sókn sviss­neskra og banda­ríska stjórn­valda eigi eftir að koma í veg fyrir að Rússar muni halda næsta heims­meist­ar­mót - þá eru önnur eld­fim mál­efni sem gætu leitt til þess að ákveðnar þjóðir neiti alfarið að taka þátt í mót­inu.

Innlimun Rússa á Krím­skaga og áfram­hald­andi póli­tískar þving­anir í garð Rússa í kjöl­farið gætu mögu­lega þró­ast í þá átt að ein­hverjar þjóðir ákveði að snið­ganga heims­meist­ara­mótið 2018. Í þessu sam­hengi er vert að minn­ast þess að Banda­ríkja­menn leiddu hóp þjóða sem ákvað að snið­ganga sum­ar­ólymp­íu­leik­ana í Moskvu árið 1980 til að mót­mæla inn­rás Sov­ét­ríkj­anna inn í Afganistan sem hófst árið áður. Sov­ét­menn og banda­menn þeirra svör­uðu svo með því að snið­ganga sum­ar­ólymp­íu­leik­ana í Los Angeles fjórum árum síðar.

Þá eru kyn­þátta­for­dómar á knatt­spyrnu­völlum orðnir mjög alvar­legt og djúp­stætt vanda­mál í Rúss­landi. Samkvæmt skýrslu Fare network -og SOVA centre-sam­tak­anna voru til­greind yfir tvö hund­ruð atvik tengd kyn­þátta­for­dómum á knatt­spyrnu­völlum lands­ins frá maí 2012 til maí 2014. Í skýrsl­unni er enn­fremur tekið skýrt fram að þessi atvik séu ekki tæm­andi taln­ing og bæði knatt­spyrnu­sam­band Rúss­lands og rúss­nesk stjórn­völd eru ein­dregið hvött til að taka þetta vanda­mál fast­ari tökum.

Knatt­spyrnu­sam­bandið svar­aði skýrsl­unni með því að koma á lagg­irnar vinnu­hóp sem hefur það verk­efni að gefa skýrslu um öll atvik kyn­þátta­for­dóma hjá stuðn­ings­mönnum félaga í rúss­nesku deild­inni. Knatt­spyrnu­sam­bandið refsar svo við­kom­andi félögum í kjöl­farið. Félagið Torpedo Moskva var til að mynda í fjór­gang dæmt til að greiða sektir og var í tvígang dæmt til að spila heima­leiki sína fyrir luktum dyrum vegna kyn­þátta­for­dóma stuðn­ings­manna þess á nýaf­stöðnu tíma­bili. Harðn­andi aðgerðir af þessu tagi eru vissu­lega til marks um við­leitni rúss­neska knatt­spyrnu­sam­bands­ins til að upp­ræta kyn­þátta­for­dóma á knatt­spyrnu­völlum en ljóst þykir að ennþá sé langt í land hvað það varðar.

Fangar notaðir sem ódýrt vinnuafl?


Efna­hags­vanda­mál Rúss­lands hafa verið í sviðs­ljós­inu upp á síðkastið og því myndu eflaust margir telja að und­ir­bún­ingur heims­meist­ara­móts­ins gæti reynst þungur fjár­hags­legur baggi fyrir Rússa að bera. Rússnesk stjórn­völd ákváðu því nýverið að skera niður kostnað um 70 millj­ónir doll­ara í und­ir­bún­ingi fyrir mótið og heild­ar­kostn­að­ar­á­ætlun hljóðar núna upp á um það bil 12,7 millj­arða doll­ara.

Fregnum þess efnis að Rússar ætli sér að nota fanga til að halda niðri kostn­aði í miklum bygg­inga­fram­kvæmdum tengdum heims­meist­ara­mót­inu hefur reyndar verið haldið á lofti í vest­rænum fjöl­miðlum síð­ustu daga. Alex­ander Khinshtein, með­limur neðri deildar rúss­neska þings­ins, Dúmunar, er þar sagður vera að und­ir­búa til­lög­una í sam­starfi við fang­els­is­yf­ir­völd í Rúss­landi. Engar mark­tækar stað­fest­ingar liggja þó fyrir um málið.

Meðal þeirra bygg­inga­fram­kvæmda sem ráð­ist var í er umfangs­mikil end­ur­bygg­ing á hinum fræga Luzhniki-leik­vangi í Moskvu en bæði opn­un­ar­leikur og úrslita­leikur móts­ins fer þar fram. Heims­meist­ara­mótið mun fara fram á alls tólf leik­vöngum í ell­efu borgum Rúss­lands. Að öllu óbreyttu verður svo dregið í riðla fyrir und­ankeppni heims­meist­ara­móts­ins við hátíð­lega athöfn í Pét­urs­borg þann 25. júlí næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár