Forseti ASÍ: „Þessar tölur staðfesta að við höfðum rétt fyrir okkur“

„Það hefur verið okkar skoðun að laun sem hlut­fall af lands­fram­leiðslu séu lægri en við verði unað til lengdar og því þyrfti að hækka laun meira en sem nemur því svig­rúmi sem atvinnu­rek­endur, stjórn­völd og Seðla­banki töldu for­svar­an­legt. Því settu aðild­ar­fé­lög ASÍ fram kröfur sem voru í takt við þessa afstöðu okkar. Rök okkar á síð­asta ári voru einmitt byggð á því mati okkar að afkoma fyr­ir­tækj­anna leyfði slíka nálgun - kjara­samn­ingar snú­ast jú ekki síður um rétt­láta skipt­ingu þeirra verð­mæta sem til verða í efna­hags­starf­sem­inni. Þessar tölur stað­festa að við höfðum rétt fyrir okkur.“

Segir Gylfi Arn­björns­son for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands í sam­tali við Kjarnann. Samkvæmt nýjum álagn­ing­ar­tölum rík­is­skatt­sjóra námu tekjur ein­stak­linga af arði tæpum 30 millj­örðum króna á síð­asta ári, og juk­ust um rúm 50 pró­sent á milli ára. Forseti ASÍ telur að full­yrða megi út frá þessu að engin sér­stök ástæða sé til þess að fyr­ir­tæki velti launa­hækk­unum út í verð­lagið, eins og því miður hafi verið allt of mörg dæmi um und­an­farið.

Fyrirtækin verða að halda aftur af sér


„Ef hér á takast að mynda ein­hverja sátt til lengri tíma litið á vinnu­mark­aði er alveg ljóst að for­ystu­menn fyr­ir­tækj­anna í land­inu verða að halda aftur af sér og tryggja að kaup­máttur hér á landi verði í ein­hverju sam­ræmi við það sem best ger­ist í nágranna­löngum okkar. Að öðrum kosti mun land­flótti halda hér áfram og ólga verður við­var­andi á vinnu­mark­aði,“ segir Gylfi.

En telur for­seti ASÍ að töl­urnar sýni að meira sé hægt að sækja til fyr­ir­tækja lands­ins? „Nú þurfum við að sjá hvernig fyr­ir­tækin bregð­ast við nýgerðum kjara­samn­ingum og hvernig heild­ar­skipt­ing verð­mæta­sköp­un­ar­innar verður í kjöl­farið. Ef fyr­ir­tækin bregð­ast við með umtals­verðum verð­hækk­unum og freista þess að halda launa­hlut­fall­inu niðri og hagn­að­ar­hlut­fall­inu uppi gæti reynt á for­sendur kjara­samn­inga sem koma til skoð­unar í febr­úar á næsta ári og þarnæsta ári.

Náist ekki mark­mið um aukin kaup­mátt eða ef aðrir hópar semja um meiri launa­hækk­anir en samið var um á almennum vinnu­mark­aði munu stétt­ar­fé­lögin geta end­ur­metið þátt­töku sína í þess­ari veg­ferð og sagt kjara­samn­ingum lausum. Ómögu­legt er að segja til um það í dag hvernig þessi þróun verði, en við munum auð­vita fylgj­ast náið með þess­ari þróun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár