Vill að Efling beiti sér í fjárfestingum í gegnum Gildi

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, boðar að verka­lýðs­hreyf­ingin muni beita sér í við­skipta­líf­inu í gegnum stjórn­ar­setu í líf­eyr­is­sjóðum. Hún segir mál­flutn­ing í leið­urum Frétta­blaðs­ins ógeðs­legan og kallar boð­aðar verð­hækk­anir stjórn­lausa frekju.

„Efling hefur til dæmis þessi ótrú­legu völd sem eru líf­eyr­is­sjóða­kerfið þegar kemur að afskiptum af við­skipta­líf­inu. Nú er það búið að ger­ast að Efling er komin með tvo stjórn­ar­menn í stjórn Gildis. Stefán Ólafsson er vara­for­maður Gildis fyrir hönd Eflingar.“

Þetta segir Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, í við­tali við Frétta­blaðið í dag þar sem hún boðar að verka­lýðs­hreyf­ingin muni beita sér mun fastar innan líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins en hingað til hefur tíðkast. Hún rifjar upp að íslenskir líf­eyr­is­sjóðir hafi haldið íslensku efna­hags­kerfi uppi eftir hrun. „Sjóð­irnir hafa verið not­aðir mark­visst til að keyra áfram kap­ít­al­ísku mask­ín­una án þess að það sé nokkru sinni tekið til­lit til hags­muna vinnu­aflsins. Við eigum í gegnum sjóð­ina að beita áhrifum okkar, ekki síst þegar kemur að fjár­fest­ingum í fyr­ir­tækjum. Þá fáum við raun­veru­leg völd.“

Segir málflutning í leiðurum Fréttablaðsins ógeðslegan

Í við­tal­inu ræðir Sólveig Anna líka nýyf­ir­staðna kjara­samn­inga, og þá bar­áttu sem háð var í aðdrag­anda þeirra. Hún seg­ist hafa orðið fyrir æru­meið­ingum og hafa verið þjóf­kennd með ógeðs­legum mál­flutn­ingi.

Þar nefnir hún sér­stak­lega ákveðin leið­ara­skrif í Frétta­blað­inu. „Leiðarar Harðar Ægis­sonar í Frétta­blað­inu eru með því­líkum ólík­indum að þegar ég svar­aði þeim mjög harka­lega fannst mér ég þurfa að gera það og fannst það mjög skemmti­legt[...]Þetta var árás. Þótt það sé margt sem ég styðst við í krist­inni hug­mynda­fræði þá myndi ég aldrei bjóða hinn vang­ann.“

Hún gagn­rýnir líka það heiti sem stjórn­völd völdu á sitt fram­lag til þess að láta kjara­samn­inga ganga saman, hina svoköll­uðu lífs­kjara­samn­inga. „Mér er mis­boðið yfir þessu svona upp­nefni. Í eðli sínu eru allir samn­ingar lífs­kjara­samn­ingar. Við erum að semja um kjör fólks sem hefur áhrif á líf þess. Það er partur af nýfrjáls­hyggj­unni að vera alltaf að skella ein­hverjum merki­miðum á allt.“

Sólveig Anna er þó ánægð með það sem stjórn­völd komu með að borð­inu til að liðka fyrir gerð samn­ing­anna og lítur á það sem sigur að hafa náð þeirri aðkomu. Hún hafi sann­ar­lega ekki staðið til boða við upp­haf kjara­við­ræðna. „Það skal eng­inn halda að stjórn­völd kom­ist upp með það að standa ekki við lof­orðin. Við verðum vakin og sofin yfir því.“

Stjórnlaus frekja

Upp á síðkastið hafa nokkur fyr­ir­tæki boðað verð­hækk­anir í kjöl­far kjara­samn­inga. Mesta athygli hefur vakið að ÍSAM, eitt stærsta fram­leiðslu- og inn­flutn­ings­fyr­ir­tæki sem er í eigu Ísfé­lags­fjöl­skyld­unnar í Vest­manna­eyjum, einnar rík­ustu fjöl­skyldu lands­ins, ætlar að hækka verð á vörum hjá sér umtals­vert.

Sólveig Anna við­ur­kennir að snið­ganga á vörum sé lík­ast til bit­laus en segir hót­anir fyr­ir­tækj­anna um hækk­anir ótrú­legar. „Þarna enn eina ferð­ina afhjúp­ast afstaða þeirra sem í stjórn­lausri frekju sinni trúa því af öllu hjarta að þeirra sé algjört valdið. Ég skil mjög vel þá sem fara í snið­göngu en á end­anum skilar það litlu. Ég held við ættum frekar að koma okkur mjög mark­visst frá þeim stað að þurfa að beita slíkum aðgerðum og raun­veru­lega öðl­ast völd í sam­fé­lag­inu. Sem við höfum að mörgu leyti nú þegar en höfum ekki náð að nota mark­visst.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár