Karolina Fund: Ný heimildamynd um tattú-menninguna á Íslandi

Listin sem leyn­ist undir skinn­inu er ný heim­ild­ar­mynd eftir Matthías Má Magn­ús­son og Eggert Gunn­ars­son um húð­flúr-menn­ing­una á Íslandi. Myndin er verk­efni vik­unnar hjá Karolina Fund. Við tókum við­tal við fram­leið­end­urna Eggert og Matthías.

Eggert: „Ég er hef unnið við sjón­varp lengi og síð­ustu árin hef ég til að mynda leik­stýrt Ævari vís­inda­manni og fram­leitt þá þátta­röð. Að auki hef ég unnið mikið við tón­list­ar­tengt efni. Þar má nefna Tónaflóð, Stór­tón­leika Rásar 2 á Menn­ing­arnótt, Mús­íktil­raunir og svo hef ég átt gott sam­starf við KÍTON og er að vinna með þeim stórt verk­efni sem nefn­ist Eld­smiðjan. Að auki hef ég unnið heim­ild­ar­myndir um til dæmis Yrsu Sig­urð­ar­dóttur, Rósu Gísla­dóttur og heim­ild­ar­mynd­ina Fyr­ir­heitna landið? um Íslend­inga sem flutt hafa til Noregs.

Það virð­ist vera mikil áhugi á húð­flúri um þessar mundir. Þeir sem eru ekki með húð­flúr eins og ég erum lík­lega í minni­hluta. Það var það sem mig lang­aði að skoða og það líka að það virð­ist vera mik­ill metn­aður í því að vinna mynd­verk sem skipta máli á húð fólks.

Það kom mér mjög á óvart hversu vel menntuð þau eru sem stunda þessa list­grein hér á landi. Við fjöllum um þau öll á ein­hvern hátt og ætlum líka að reyna að skoða það sem þeir sem eru fluttir annað haf­ast að. Það eru nokkrir flúr­arar sem eru að gera það gott erlendis.

Við sækjum í Karolina Fund vegna þess að það er ekki um auð­ugan garð að gresja hvað varðar fjár­mögnun á verk­efnum sem þessum. Við eru að leita til fólks og bjóða þeim að taka þátt í þessu verk­efni með okkur. Það er ýmis­legt sem er í boði fyrir þá sem leggja okkur lið. Endilega skoðið það á síð­unni okkar á Karolina Fund.“

[caption id="attachment_33807" align="alignnone" width="800"] Hér má sjá annan fram­leið­anda mynd­ar­innar, útvarps­mann­inn Matthías Má á Rás 2, fá sér húð­flúr.[/caption]

Hvaðan kemur áhugi ykkar á tattú menn­ing­unni?

Matti: „Ég hef alltaf haft mjög mik­inn áhuga á þessu list­formi og á týp­unum sem verða húð­flúr­arar. Þetta er svona „sub-culture“ sem er að springa út núna. Svo er þessi saga á Íslandi svo stutt, rétt rúm­lega 30 ár eða svo.“

Þó það virð­ist sem að tattú séu núna fyrst að verða almenn þá eru þau ekki ný af nál­inni, ef svo má segja. Er ekki heil­mikil saga í kringum tattú?

„Það er svo sann­ar­lega mikil og löng saga sem spannar mörg þús­und ár. Lengi var talið að Egyptar til forna hafi verið fyrstir til að nota þetta tján­ing­ar­form. Merki um húð­flúr hafa fund­ist á múm­íum. En nýverið fannst Ísmað­ur­inn svo­kall­aði. Hann átti sér heim­kynni á landa­mærum Ítalíu og Aust­ur­ríkis. Þessi fundur gefur það til kynna að húð­flúr hafi verið tján­ing­ar­form mann­fólks í að minnsta­kosti 5200 ár.

Hér á Íslandi var ekki hægt að láta húð­flúra sig fyrr en eftir 1980.“

Hafið þið orðið varir við ein­hverja breyt­ingu varð­andi þetta list­form í hug­ar­heimi íslend­inga á síð­ustu 20 - 30 árum?

„Já, svo sann­ar­lega, fyrir 20 til 30 árum voru nær ein­göngu sjó­menn sem fengu sér tattoo. En í dag eru allir að fá sér tattoo og virð­ist aldur ekki skipta neinu máli. Það sem er einnig áhuga­vert við tattoo í dag er að það virð­ist allt ganga, það er að segja það er engin einn stíl í tísku eins og til dæmis „tri­bal“ tattoo voru á tíunda ára­tugnum. Tattoo í dag er bara ekk­ert til­töku mál eins og það var fyrir 20 til 30 árum síðan. Það eru allir með tattoo núna.“

Hér er hægt að skoða verk­efnið og styðja við það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár