Karolina Fund: Uppgjör listamanns með ólæknandi krabbamein á lokastigi

Hópurinn sem stendur að útgáfu á lista­verka­bók­inni Gildi – Cancer closure, er sam­settur í kringum mynd­lista­mann­inn Sonju Georgs­dóttur. Það eru auk Sonju sjálfrar þau Almar Ingason ljós­mynd­ari, María Pét­urs­dóttir mynd­lista­maður og texta­smiður og Bragi Hall­dórs­son útlits­hönn­uður og umbrots­maður. Hópurinn gefur alla okkar vinnu sína því þetta er honum mik­il­vægt verk­efni en auk hans hafa fleiri boð­ist til að leggja hönd á plóg við texta­gerð, próf­arka­lestur og fleira.

Hópurinn ætlar að gefa út lista­verka­bók og geisla­disk með verkum Sonju en hún er með ill­vígt og ólækn­andi krabba­mein á loka­stigi svo bókin verður eins­konar upp­gjör hennar við líf sitt í gegnum mynd­list­ina og þar er af nógu af taka því hún á mikið myndefni sem er vert að sýna í svona bók. Auk þess á hún nokkur víd­eó­verk sem hóp­ur­inn ætlar að láta fylgja með á geisla­diski.

Kjarninn ræddi við Maríu Pét­urs­dóttur um verk­efnið.


Hugmynd sprottin úr "kímó-kóma"


Hvaðan kom hug­myndin að því að gera þessa bók Gildi - Cancer closure?

"Sonja fékk hug­mynd­ina í einu af mörgum lyfja­tíma­bilum sínum eða "kímó-kóma” eins og hún kallar það. Hana lang­aði að setja saman og gefa út ein­hvers konar yfir­lit yfir far­inn veg og halda þannig til haga ferli sínum í mynd­list fyrir aðstand­endur sína og vini auk list­unn­enda allra. Hún leit­aði til okkar Braga með þessa hug­mynd og við stungum uppá því að fjár­magna útgáf­una í gegnum Karolina Fund svo það væri hægt að gera þetta að veg­legri bók sem næði að koma ævi­starfi hennar til skila.

Almar Ingason ljós­mynd­ari og frændi Sonju hefur áður komið að vinnslu raf­rænna verka hennar og því var að sjálf­sögðu leitað til hans með að taka þátt í verk­efn­inu og ljós­mynda verkin. Kostn­að­ar­samasta hliðin við útgáf­una er sjálfur prent­kostn­að­ur­inn og því gengur söfn­unin fyrst og fremst út á að safna fyrir þeim kostn­að­ar­lið."


Verið að gera upp 25 ára feril


Er ein­hver rauður þráður sem liggur í gegnum bók­ina?

"Þráður bók­ar­innar teng­ist því að Sonja er að gera upp 25 ára feril sinn sem mynd­lista­maður og veit að hún mun þurfa að kveðja. Hún vildi hafa titil bók­ar­innar þann sama og á mynd­bands­verk­inu sínu Gildi sem hún gerði árið 2012 en und­ir­tit­il­inn “Cancer closure” sem segir allt sem segja þarf. Bókin er kveðju­verk Sonju. Í mynd­list­inni veltir hún oft fyrir sér gildi hluta og hug­taka í gegnum mynd­rænna fram­setn­ingu og orr­ustan sem hún háir í dag er vissu­lega til­efni til að horfa um öxl og velta fyrir sér gildi hlut­anna. Hún er auk þess að ganga frá ver­ald­legum hlutum og flokka og koma í höfn og það á við um mynd­list­ina líka.

Þetta hefur verið dálítið sér­stakt því þegar verk­efnið fór af stað var Sonja oft mikið lasin í tengslum við krabba­meins lyfjakúrana. Hún hafði auk þess nýverið fest kaup á húsi sem mikið þurfti að laga þegar hún grein­ist með krabba­meinið haustið 2014 og bjó því inná ætt­ingjum á þessum tíma og búslóðin með öllum verk­unum hennar bund­inni í geymslu. Þannig dróst það tölu­vert að kom­ast í myndefnið svo hægt væri að byggja upp síð­una á Karolina Fund. Einnig þurfti að sæta lagis með ýmsa upp­lýs­inga­öflun því Sonja var ekki alltaf við­ræðu­hæf vegna lyfj­anna. Núna er verk­efnið komið vel á veg en við Sonja höfum verið að fara í gegnum verk og skrá niður ártöl og skoða tíma­bil. Almar er byrj­aður að mynda svo það er nóg að gera hjá honum núna en auk þess er Sonja búin að velja pappír í bók­ina og er að vinna að for­síðu í sam­vinnu við Braga. Svo er bara að vona að við náum að sigla þessu skipi vel í höfn fyrr en seinna og mark­miðið er að halda uppá útgáf­una með mynd­lista­sýn­ingu á vel völdum verkum eftir lista­mann­inn.

Bókin sjálf er þó fyrst og fremst hennar upp­gjör við lífs­hlaup sitt í gegnum mynd­list og hennar loka­gjöf til lífs­ins og þeirra sem munu lifa hana.

Við erum afskap­lega þakk­lát fyrir áheitin sem komin eru inni á Karolina fund en þar getur fólk styrkt verk­efnið auk þess að geta tryggt sér ein­tak af bók­inni eða verk eftir lista­mann­inn."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár