Karolina Fund: Heimildarmynd um umræðuhefðina í heita pottinum

Stutt­heim­ild­ar­myndin Heiti Pott­ur­inn fangar þá sér­stæðu og skemmti­lega umræðu­hefð og nánd Íslend­inga sem mynd­ast í heita pott­inum - hefð sem á sér hvergi líka ann­ars staðar í heim­inum.

Kvik­mynda­mið­stöð Íslands, ÍTR, Reykja­vík­ur­borg og Vest­ur­bæj­ar­laug hafa öll fjár­magnað verk­efnið, auk þess sem RÚV og Bíó Paradís hafa gefið vil­yrði fyrir sýn­ingum. Nú vantar hins vegar örlítið upp á að geta klárað mynd­ina, og því hefur verið hafin hóp­fjár­mögnun á Karolina Fund, en þar getur fólk heitið á verk­efnið og fengið í stað­inn ýmis verð­laun, eins og til dæmis 5 klippa kaffi­kort á Kaffi Vest, frítt í sund og ís úr Mela­búð­inni, auk þess sem Nýherji gefur vatns­heldan sony walkman fyrir allra hæstu áheitin! Hægt er að leggja verk­efn­inu lið hér.

Kjarninn ræddi við Hörpu Fönn Sig­ur­jóns­dóttur, leik­stjóra og fram­leið­anda mynd­ar­innar. Auk hennar koma að verk­efn­inu Eva Sig­urð­ar­dóttir fram­leið­andi, Anna Sæunn Ólafs­dóttir fram­leiðslu­stjóri, en þær eru báðar hjá Askja Films. Auk þess koma að verk­efn­inu Lára Garð­ars­dóttir, sem mun mynd­skreyta, Agnar Frið­berts­son, sem hljóð­setur, og Gunnar Auðunn Jóhanns­son, sem aðstoðar við kvik­mynda­töku. Þá verður tón­list fengin frá Kira Kira og fleirum, en saman ýtir mynd­skreyt­ing og hljóð­heim­ur­inn undir töfra­heim þessa griða­staðar sem heiti pott­ur­inn er.

https://vimeo.com/128317944

 

Breskur kærasti kveikti neistann


Hvernig kom þessi hug­mynd upp að gera heim­ilda­mynd um heita pott­inn?

"Þessi hug­mynd hefur verið með mér í þó nokkurn tíma, enda við­fangs­efnið afar nálægt mér, eins og eflaust mörgum öðrum. Þegar ég var yngri fór ég oft með ömmu eða afa í sund, en þau áttu bæði sína sér­stöku hópa og mættu þar dag­lega. Þegar þau skildu var einmitt eitt aðal skiln­að­ar­efnið hvernig ætti að skipta sund­laug­unum á milli sín. Amma fékk Vest­ur­bæj­ar­laug­ina, og fór ég ósjaldan með henni, lék mér á meðan hún synti, og fór svo með henni í pott­inn á eftir. I seinni tíð varð ég svo sjálf mjög iðin að sækja sund­laug­arnar, og það hefur í langan tíma verið helsta sálar- og lík­ams­ræktin mín. Það var svo tvennt sem gerði kannski úts­lagið og varð til þess að kveikja end­an­lega neist­ann. Annars vegar þegar fyrr­ver­andi breskur unnusti minn fór alltaf að mæta með mér í sund og hafa orð á því hvað þessir "old dudes, with their bellies talking politics in the hot tub" væru skemmti­legir og hvað þetta væri sér­stök menn­ing. Stuttu seinna sá ég í námi mínu stutt­heim­ild­ar­mynd­ina The Lift, og ekki varð aftur snúið."

Hver er þessi svo­kall­aði Húna­hópur?

"Húna­hóp­ur­inn er hópur fólks sem mætir í Sundlaug Vest­ur­bæjar áður en sund­laugin opnar, eða kl. 6.20, og hangir á hún­inum þangað til starfs­fólkið hleypir þeim inn. Þetta eru allra hörð­ustu pott­orm­arnir, og mæta dag­lega og alltaf á sama tíma, og hafa gert svo í marga tugi ára. Ef ein­hver for­fall­ast til­tek­inn dag, þarf sá hinn sami alltaf að gera grein fyrir sér - og það er alls ekki tekið í mál að sofa yfir sig! Húnarnir koma alls staðar að úr þjóð­fé­lag­inu, en hafa kynnst í gegnum heita pott­inn sem ýtir einmitt undir afar sér­stök tengsl."

Urðu þið varar við ein­hverjar hefðir og reglur í pott­inum?

"já, nóg er af hefðum og reglum í pott­inum. Það tók mig smá tíma að koma auga á þær allar, og vera með­vituð um þær, en ef maður nær að gera það og bera virð­ingu fyrir þeim, og jafn­vel taka þær upp sjálfur, þá er maður nær umsvifa­laust tek­inn inn í hóp­inn. Augljósu regl­urnar eru hvenær hver kemur ofan í og fer, og hvar hver og einn situr. Ein hefðin, og kannski sú lúm­s­kasta, er hvernig maður býður góðan dag, og hvernig maður kveður. Í pott­inum eru miklir íslensku­snill­ingar og þeir vilja að sjálf­sögðu halda í móð­ur­málið og mik­il­vægt að töluð sé íslenska í heita pott­inum! "OK", er til dæmis algert bann­orð."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár