Karolina Fund: Meistarar dauðans safna fyrir fyrstu plötu sinni

Ásþór Loki, 16 ára, og Þórarinn Þeyr Rún­ars­synir, 11 ára, eru bræður og búa í Hlíðunum í Reykja­vík. Ásþór byrj­aði að fikta við gít­ar­leik þegar hann var 8-9 ára. Það komst alvara í æfing­arnar þegar þeir bjuggu ásamt for­eldrum sínum í Atlanta í Banda­ríkj­unum og Þórarinn fékk lítið 150 dala krakkatrommu­sett í jóla­gjöf þegar hann var nýorð­inn fimm ára. Þeir æfðu saman oft og mikið fyrstu tvö árin, oftar en ekki með for­eldrum sínum og voru helg­ar­morgn­arnir sér­lega nota­drjúgir. Á sama tíma uppi á Íslandi eign­að­ist vinur þeirra frá því áður en þeir fluttu út, Albert Elías Arason, sem er nú 15 ára, bassa og fór að æfa sig af miklu kappi. Svo lágu leiðir þeirra fljót­lega saman er for­eldrar Ásþórs og Þórarins fluttu aftur til Íslands og þeir æfa og spila á tón­leikum mjög reglu­lega.

[caption id="attachment_30766" align="alignnone" width="800"] Ásþór Loki Rún­ars­son.[/caption]

Strák­arnir eru nokk­urn­veg­inn alætur á tón­list. Upp­á­halds hljóm­sveit­irnar þeirra eru fjöl­breyti­legar en meðal þeirra má nefna íslensku sveit­irnar Dimmu, Jónas Sig og Ritvélar Fram­tíð­ar­innar, Skálmöld og Sólstafi en meðal erlendra sveita eru Metallica, Led Zeppelin, Iron Maiden, Bítl­arnir og Marylin Manson í upp­á­haldi, ásamt miklum fjölda ann­arra sveita.

Þórarinn og Ásþór ganga í Tónskóla FÍH og eru þar í sam­spils­hljóm­sveit, en að auki sækir Þórarinn tón­fræði­nám í Lista­skóla Mos­fells­bæjar og er í öðru skóla­sam­spili þar. Þeim gengur afskap­lega vel í nám­inu og halda áfram í FÍH næsta vetur. Strák­arnir hafa komið fram mjög víða og hit­uðu síð­ast upp fyrir Dimmu á Húrra við góðan orð­s­týr og svo spil­uðu þeir á styrkt­ar­tón­leikum Ísland-Nepal sam­tak­anna á Gauknum þar sem safnað var fyrir fórn­ar­lömbum jarð­skjálft­anna í Nepal.

Kjarninn tók Ástþór Loka tali.

https://soundcloud.com/s-r-loki/dyflissa-hugans-dungeon-of-the-mind

Vantaði þykktina í hljómsveitina


Hvað kom til að þið tókuð saman höndum og ákváðu að stofna þessa hljóm­sveit?

"Þegar við Þórarinn vorum sjö og ell­efu ára flutti fjöl­skyldan okkar Þórarins aftur til Íslands frá Banda­ríkj­unum. Það var haustið 2010 og við Þórarinn fórum strax að leita að bassa­leik­ara til að bæta í hóp­inn, því við vorum farnir að finna að það vantar þykkt­ina í hljóm­sveit sem er bara gítar og trommur. Pabbi og mamma hjálp­uðu okkur að leita og vildu að það yrði ein­hver jafn­gam­all okkur svo það yrði ekki of mik­ill munur, en allt kom fyrir ekki. Tón­list­ar­skól­arnir sem þau hringdu í vís­uðu hver á annan og gátu ekki stungið upp á neinum sér­stökum á þessum aldri. Pabbi hrindi áreið­an­lega í fimm eða sex skóla.

Við vorum því eig­in­lega búnir að gef­ast upp og ætl­uðum bara að spila tveir áfram, þegar það gerð­ist að for­eldrar okkar skruppu í heim­sókn til æsku­vina sinna seint í jóla­frí­inu 2011 en sonur þeirra var Albert sem við þekktum. Það var í þess­ari heim­sókn sem við komum auga á bass­ann í her­berg­inu hans af algerri til­viljun og misstum alveg and­litið þegar hann spil­aði fyrir okkur en hann var besti bassa­leik­ari sem við höfðum séð. Síðan höfum við bara æft og spilað mikið og reglu­lega. Fleiri hafa verið í hljóm­sveit­inni í lengri og skemmri tíma, stundum fáum við gesti á æfingar að gamni sem spila jafn­vel með okkur á tón­leikum. En við erum alltaf sami kjarn­inn og gerum hell­ing fyrir utan að spila saman í hljóm­sveit."

https://soundcloud.com/s-r-loki/salfraeingur-daudans

Hvernig tón­list eru þið búnir að vera í und­an­farið?

"Við erum aðal­lega búnir að vera að klára að semja og æfa efnið sem verður á plöt­unni sem við erum að safna fyrir á Karolina Fund. Við vorum til dæmis að semja nokkuð þungt rokklag með mjög snú­inni taln­ingu og ég samdi fyrir það eins­konar indjána- eða sjamana­söng um hvernig við erum eitt með öllu í kringum okkur. Í við­lag­inu nota ég til dæmis smá úr indjána­máli en merk­ingin og hrynj­and­inn smellpass­aði við lagið. Síðasta lagið sem við munum klára fyrir plöt­una er að hluta til klárt, en vinnu­heitið á því er Vöggu­vísa. Það er mikið til rólegt og verður nokkuð frá­brugðið hinum lög­unum.

Af tón­list eftir aðra sem við höfum verið að æfa nýverið má nefna lagið Vélráð eftir Dimmu og svo Battery eftir Metallica. Okkur finnst alveg svaka­lega gaman að þeim hljóm­sveitum og per­sónu­lega finnst mér Ingó Geirdal í Dimmu ná ein­hvern­veg­inn að negla akkúrat það sem hann þarf fyrir lögin og gera það sem hann gerir spes og auð­þekkj­an­legt. Battery er svo auð­vitað eitt af þessum lögum sem okkur dreymdi bara alltaf um að spila og núna loks­ins erum við alveg að ná því, en það er alveg mis­kunn­ar­laus hraði á því og ef þú missir af lest­inni þá er hún eig­in­lega bara farin. Það er dálítið snúið að syngja það um leið og ég spila á gítar en ég er alveg að ná því."

https://soundcloud.com/s-r-loki/drekinn

Þið eruð að vinna að fjár­mögnun á útgáfu tón­listar ykkar, hvað er inni­falið í því?

"Söfnunin okkar fer fram á Karolina­fund.com og er svo­lítið sér­stök en við höfum þrjú mark­mið sem við reynum að ná í stað eins mark­miðs. Og því meira sem safn­ast því meira fá allir í verð­laun sem heita á okkur. Við erum alveg að ná lág­marks­upp­hæð­inni en inni­falið í því er öll platan með textum og umslagi á staf­rænu formi sem fólk halar niður. Það eru sem sagt verð­launin ef safn­ast 100% af lág­mark­inu, en það eru 2.500€ (næstum 370.000 kr.). Ef safn­ast meira en það og við komumst í 136% eða meira þá bæt­ist árit­aður geisla­diskur sem við sendum heim til allra í pósti (til við­bótar við nið­ur­hal­aða ein­takið). EF svo safn­ast 189% eða meira, þá gildir áheitið líka sem miði inn á útgáfu­tón­leik­ana þar sem við verðum með góða gesti, veit­ingar og góða stemn­ingu í haust. Það væri frá­bært!

Það er því mik­il­vægt að stoppa ekki í 100% heldur ætlum við að reyna að ná nægi­lega mik­illi upp­hæð þannig að allir fái mjög mikið fyrir pen­ing­inn. Algeng áheit eru frá 19 evrum sem þýir 1 geisla­plata í verð­laun og upp í 90 evrur sem eru 5 geisla­diskar.. Sumir hafa meir að segja heitið á okkur 170 evrum, en þeir fá líka 10 diska, en þarna er líka hægt að bóka með okkur tón­leika hvar sem er á land­inu."

Söfnunin endar á mið­nætti 10. júní og þeir sem vilja leggja henni lið geta skoðað hana hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár