Karolina Fund: Safnað fyrir bættu aðgengi fyrir fólk í hjólastólum að bíói

Bíó Paradís vill bæta aðgengi fólks í hjóla­stólum að bíó­inu. Kjarninn ræddi við Hrönn Sveins­dóttur, fram­kvæmda­stjóra Bíó Paradís, um söfnun fyrir hinu bættu aðgengi sem nú stendur yfir á Karolina Fund. Og ýmis­legt fleira tengt bíó­inu.

Hver er hug­mynda­fræðin á bak­við Bíó Paradís?

"Bíó Paradís – Heimili kvik­mynd­anna var stofnað árið 2010 af fag­fé­lög­unum í kvik­mynda­gerð og rekur fyrsta og eina kvik­mynda­húsið á menn­ing­ar­legum for­sendum á Íslandi. Til­gangur félags­ins er að efla og styðja við kvik­mynda­menn­ingu og kvik­mynda­fræðslu á Íslandi. Félagið er rekið án hagn­að­ar­sjón­ar­miða, öll stjórn­ar­störf eru unnin í sjálf­boða­vinnu og fjöl­margir kvik­mynda­gerð­ar­menn koma að starfi bíós­ins í sjálf­boða­vinnu."

Hvernig bíó­myndir eruð þið að sýna?

"Bíó Paradís sýnir list­rænar kvik­myndir frá öllum heims­hornum, klass­ískar myndir, költ myndir, heim­ilda­myndir og stutt­myndir. Bíóið er mjög mik­il­vægur vett­vangur fyrir íslenskt kvik­mynda­efni sem ratar ekki í hin hefð­bundnu afþrey­ing­ar­bíó, einsog heim­ilda­myndir, stutt­myndir, til­rauna­verk og fleira. Einnig sýnir Bíó Paradís allar íslenskar kvik­myndir með enskum texta. Bíó Paradís er einnig vett­vangur fyrir kvik­mynda­við­burði á vegum erlendra sendi­ráða, menn­ing­ar­stofn­ana og áhuga­manna­sam­taka.

Húsið hýsir reglu­lega kvik­mynda­dag­skrá í tengslum við ýmsa við­burði í Reykja­vík og félagið rekur tvær kvik­mynda­há­tíðir, Alþjóð­lega barna­kvik­mynda­há­tíð og Stockfish kvik­mynda­há­tíð­ina. Við leggjum líka mikla áherslu á fræðslu og Bíó Paradís býður uppá kennslu í kvik­mynda­fræðslu fyrir alla grunn­skóla og fram­halds­skóla borg­ar­innar auk fyr­ir­lestra, spurt og svarað og örnám­skeiða með fag­fólki í grein­inni. Yfir 22.000 leik,- grunn- og fram­halds­skóla­nemar hafa komið í Bíó Paradís í kvik­mynda­fræðslu."

Hver er ykkar helsti mark­hópur?

"Það eru í raun­inni allir lands­menn, því hóp­arnir eru jafn margir og mynd­irnar sem við erum að sýna. Við sögðum einu sinni að bíóið væri fyrir alla á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en nú erum við farin að taka fær­an­lega sýn­ing­ar­bún­að­inn okkar hring­inn um landið á vorin og halda bíó­sýn­ingar, svo að það hafa fleiri lands­menn tæki­færi til að upp­lifa Bíó Paradís, kvik­mynda­fræðslu og mynd­irnar sem við erum að sýna. Bíó Paradís er ekki bara list­rænt bíó heldur líka öðru­vísi og skemmti­legt bíó, og við viljum að allir finn­ist þeir vel­komnir og hafi eitt­hvað að sækja í Bíó Paradís."

Þið voruð að hleypa af stað verk­efni á Karolina Fund að bæta aðgengi fatl­aðra að bíó­inu, hvaða hópur stendur að verk­efn­inu og hvernig lýsir það sér?

"Þeir fjöl­mörgu kvik­mynda­gerð­ar­menn sem koma að stjórn og starf­semi bíós­ins í sjálf­boða­vinnu standa á bak við verk­efnið, auk vel­gjörð­ar­að­ila eins og verk­fræði­stof­unnar Mannvits sem hefur aðstoðað okkur við útfærsl­una á þessu. Við erum að vinna í húsi sem er engan veg­inn hannað með aðgengi fatl­aðra í huga, og við höfum lengi vitað að við þyrftum að fara í kostn­að­ar­samar aðgerðir til að breyta því.

Við höfum unnið með fag­að­ilum til þess að gera áætl­anir um að gera húsið aðgengi­legt öllum, óháð hreyfi­hömlun og höfum stofnað til söfn­unar á Karolina fund síð­unni til að fjá­magna þessar breyt­ingar. Við vonum að sem flestir geti lagt okkur lið og gert kosta­kaup í leið­inni, því við lofum áfram frá­bærri og fjöl­breyttri dag­skrá í Bíó Paradís. Það er til dæmis hægt að kaupa bara tvo venju­lega bíómiða á 2.250 kr, klippikort á 4.500 kr. eða árskort á 13.500 kr og styðja þannig verk­efnið. Eða þá ger­ast bak­hjarl og vera sér­stakur heið­urs­gestur okkar! Það eru mjög góð kaup í þessu og það ættu allir að geta fundið sér skemmti­lega við­burði við sitt hæfi hjá okkur í vetur."

Verk­efnið á Karolina fund.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár