Karolina Fund: Grísalappalísa gefur út á vínyl

Hljóm­sveitin Grísalappalísa var stofnuð árið 2012 af þeim Gunnari Ragn­ars­syni, sem var áður for­söngv­ari hljóm­sveit­ar­innar Jak­obínurínu, og góð­vini hans Baldri Bald­urs­syni, áður pizzugerðarmanni. Þeir félagar syngja báðir og semja texta sveit­ar­innar.

Hug­myndin um hníf­beitt íslensk ljóð í takt við töff og kúl rokk er ekki ný af nál­inni hjá þeim piltum, en tal og þreif­ingar um slíka blöndu hófust, að sögn Alberts Finn­boga­sonar með­lim hljóm­sveit­ar­innar, árið 2010. Gunnar og Baldur hóp­uðu saman tón­list­ar­mönnum úr vina­hópi sínum, en allir eru þeir rót­fastir í gras­rót íslensk tón­list­ar­lífs.

Ásamt þeim Gunnari og Baldri eru hljóm­sveit­ar­með­limir Albert Finn­boga­son, sem leikur á raf­magns­gítar. En Albert hefur m.a. leikið með hljóm­sveit­unum The Heavy Experience, Swords of Chaos, Skelkur í Bringu og tón­list­ar­kon­unni Sóley. Albert er með BS-gráðu í jarð­fræði frá Jarð­vís­inda­deild Háskóla Íslands. Bergur Thomas Anderson leikur á bassagítar. Bergur hefur m.a. leikið með hljóm­sveit­unum Oyama, Sudden Weather Change og Just Another Snake Cult. Bergur er með BA-gráðu í mynd­list frá Lista­há­skóla Íslands en nemur nú heim­speki við Háskóla Íslands.

Á trommu­sett leikur Sigurður Möller Sívert­sen. Sigurður hefur m.a. leikið með hljóm­sveit­unum Jak­obínar­ína og Dream Central Station. Sigurður er nú utan land­steina í námi í kvik­mynda­gerð við Sarajevó, en áður lauk hann námi frá FAMU International í Prag, Tékk­landi.

Á sax­ó­fón leikur Tumi Árnason. Tumi hefur m.a. leikið með hljóm­sveit­unum Ojba Rasta, The Heavy Experience, Just Another Snake Cult, Úlfi Hanssyni og Tonik. Rúnar Örn Mar­ínó­son, hóf leik með hljóm­sveit­inni á tón­leikum eftir útkomu ALI. Fyrst á trommur en nú á raf­gítar. Hann er einnig með­limur hljóm­sveit­ar­innar Oyama og gerði garðin ágæt­lega frægan með hljóm­sveit­unum Hello Norbert og Me, The Slum­ber­ing Napoleon. Rúnar Örn stundar nám í mynd­list við Lista­há­skóla Íslands.

Albert Finn­boga­son var tek­inn tali.

https://www.youtube.com/watch?v=t5OlALTiQco

Ákveðið "statement” í að nefna sveitina eftir Megasarlagi


Hvert er upp­haf hljóm­sveit­ar­innar Grísalappalísa og hvaðan kemur þetta sér­kenni­lega nafnið?

"Hljóm­sveitin Grísalappalísa varð til upp úr gömlum vin­skap, en þreif­ingar hófust upp úr 2010. Hug­myndin var að blanda hníf­beittum íslenskum prósa við rokk tóna. Gunnar og Baldur voru með glósu­bók fulla af textum þegar þeir hófu að banka upp á hjá gömlum félögum. Úr varð félags­skap­ur­inn sem nú skipar Grísalappalísu. Nafnið “Grísalappalísa” er tekið frá sam­nefndu Megasar­lagi sem finnst á plöt­unni Drög að Sjálfs­morði frá árinu 1977. Í lag­inu er talað um Lísu sem er “mesta frík á Fróni” og það þótti okkur við­eig­andi lýs­ing á sveit­inni. Eins og gefur auga­leið, eru texta­smiðir hljóm­sveit­ar­innar miklir aðdá­endur meist­ar­ans og fannst þeim fólgin ákveðið "statem­ent” í að nefna sveit­ina eftir Megasar­lagi. Á síð­asta ári kom Grísalappalísa þrisvar fram á tón­leikum ásamt Megasi – á tón­list­ar­há­tíð Reykavík Grapevine, þar sem sveitin hafði fengið verð­laun fyrir að vera besta tón­leika­sveit lands­ins, Inni­púk­anum um Versl­un­ar­manna­helg­ina og Iceland Airwaves, sem var fyrsti per­fom­ans Megasar í sögu hátíð­ar­innar."

https://www.youtube.com/watch?v=topZf4i-aoA

Hvernig tón­list eru þið aðal­lega í?

"Tón­listin okkar er heldur víð­fem þó að alltaf komi hún við í rót­unum sem eru rokk og ryt­ma­blús. Við reynum að gefa text­anum góðan far­veg og reynum að binda tón­smíð­arnar ekki um of í fjötra svo ef að anda­gift­inni slær niður á miðjum tón­leikum þá ríkir fullt skálda­leyfi."

Þið eruð að vinna að því að vinna að fjár­mögnun útgáfu vín­yl­plötu, segðu okkur aðeins frá því verk­efni?

Með Karólína söfn­un­inni sem nú er í gangi (á) þá erum við að leit­ast eftir að finna styrkt­ar­að­ila til að fjár­magna útgáfu tón­listar Grísalappalísu á vínyl. Okkur finnst tón­listin okkar njóta sín best í albúm-formi hljóm­plöt­unnar, en hingað til hafa breið­skífur sveit­ar­innar aðeins komið út á geisla­disk. Söfnunin er mjög ein­föld þar sem við biðlum í raun til fólks að for-panta sitt ein­tak af plöt­unum okkar. Um er að ræða tvær breið­skífur, Ali og Rökrétt fram­hald og svo glæný tvö­föld tón­leika­plata frá ferða­lagi okkar um Ísland síð­asta sumar, en hún ber nafnið Sumar á Grís­landi. Til að krydda til­ver­una bjóðum við líka upp á að breiða yfir lag að eigin vali, tón­leika í einka­húsi og sitt lítið fleira.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár