Karolina Fund: Lára Rúnars hættir aldrei að leita að því besta í sér

Tón­list­ar­konan Láru Rúnars er að vinna að útgáfu sinnar fimmtu plötu Þel. Fyrstu plöt­una gaf hún út rúm­lega tví­tug og segir sjálf að ýmis­legt hafi breyst síðan. „Núna er til­veran full af skríkj­andi börnum og óhreinu taui en stundum er hún flókin eins og hún var þegar ég var tví­tug. Maður er alltaf að takast á við alls­konar krefj­andi hluti og sem betur fer hættir maður aldrei að leita að því besta í sjálfum sér. Á þess­ari plötu held ég áfram að leita og á stöku stað finn ég eitt­hvað en svo heldur ferða­lagið áfram.“

Hvernig mynd­irðu lýsa tón­list­inni þinni?

"Þessi plata er alveg sér­stök og ólík fyrri verkum. Hún er draum­kennd og ævin­týra­leg. Lögin eru til­finn­inga­þrungin en björt. Við Stefán Örn, sem vann hana með mér, lögðum upp með að gera ein­falda plötu en hún end­aði ein­fald­lega marg­slungin. Það er mikið af fal­legum blást­urs útsetn­ingum á henni og oft byrja lögin rólega en enda í flug­elda­sýn­ingu. Þegar ég sem lög þá er það alltaf lag­línan með ég leita uppi, síðan kemur allt hitt. Tón­listin mín er þannig ævin­týra­lega til­rauna­kennd popptón­list sem gætir áhrifa úr ýmsum áttum. Það er hægt að tryggja sér ein­tak í for­sölu eða miða á útgáfu­tón­leik­ana mina í Frí­kirkj­unni 4. júní inni á hóp­fjár­mögn­un­ar­síð­unni karolina­fund.com. Þar er ég að safna fyrir útgáf­unni á plöt­unni og eru aðeins 2 dagar eftir og ég verð að ná 100% til að verk­efnið fari af stað."

https://soundcloud.com/lararunars/rosir

 

Semur í fyrstu persónu


Hvaðan færðu innblástur?


"Inn­blást­ur­inn kemur aðal­lega frá fólki, hvernig það getur haft áhrif á mig. Ég sem oft­ast í fyrstu per­sónu því mér sjálfri finnst per­sónu­leg lög betri en lög sem segja sögu af ein­hverjum öðrum. En ann­ars sæki ég inn­blástur frá nátt­úr­unni, fjöl­skyld­unni, virð­ing­unni og von­inni. Þegar ég var að semja þessa plötu var ég bæði í kenn­ara­námi í jóga­fræðum og að læra kynja­fræði þannig að ég sótti inn­blástur frá þessum tveimur frá­bæru en ólíku þekk­ing­ar­heimum."

Hvaðan kemur nafnið Þel?

"Þel er innsti kjarni og mér fannst það lýsa verk­inu vel. Þetta er fyrsta platan mín sem er ein­göngu sungin á íslensku en árið 2006 gaf ég út plöt­una Þögn, sem var næstum öll sungin á íslensku. Þel og Þögn, Þagn­ar­innar Þel, Þelsins Þögn. Þetta bara spilar vel saman."

Hægt er að skoða verk­efnið nánar og leggja því lið hér.

https://soundcloud.com/lararunars/lararunarssvefngengill

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár