Vill að ráðuneyti skoði hvernig eigi að fara eftir siðareglum

Kolbrún Bald­urs­dóttir, borg­ar­full­trúi Flokks fólks­ins, segir engan skyldugan til að sam­þykkja siða­reglur eða fylgja þeim.

Vill að ráðuneyti skoði hvernig eigi að fara eftir siðareglum
Kolbrún Bald­urs­dóttir Borg­ar­full­trúi Flokks fólks­ins vill að ráðu­neyti leið­beini um siða­reglur.

Kolbrún Bald­urs­dóttir, borg­ar­full­trúi Flokks fólks­ins og áheyrn­ar­full­trúi í for­sætis­nefnd, vill að skylda borg­ar­full­trúa til að fylgja siða­reglum verði metin af ráðu­neyti. Tillaga hennar þess efnis var felld í for­sætis­nefnd föstu­dag­inn 15. nóv­em­ber.

„Flokkur fólks­ins leggur til að mat verði fengið á því hjá ráðu­neyt­inu hvernig það sam­ræm­ist að segja í lögum að setja eigi siða­reglur og að öllum kjörnum full­trúum beri að fara eftir þeim þegar reyndin er sú að eng­inn er skyld­ugur til að sam­þykkja siða­reglur eða fylgja þeim,“ sagði í til­lög­unni. „Hverjum og einum er það í sjálfs­vald sett hvort hann yfir höfuð sam­þykki siða­reglur og fylgi þeim. Engin við­ur­lög eru auk þess ef við­kom­andi brýtur siða­reglur. Borg­ar­full­trúa Flokks fólks­ins finnst þetta mjög óljóst og að þarna stang­ist á lög og reynd. Mik­il­vægt er að hafa svona skýrt og lagt er því til að leitað verði leið­bein­ingar og skýr­inga hjá ráðu­neyt­inu.“

Samkvæmt sveit­ar­stjórn­ar­lögum eiga sveit­ar­stjórnir að setja sér siða­reglur og senda sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­inu til stað­fest­ingar. „Öllum kjörnum full­trúum í sveit­ar­stjórn og nefndum og ráðum sem sveit­ar­stjórn skipar ber að haga störfum sínum í sam­ræmi við settar siða­reglur,“ segir í lög­unum.

Meiri­hluti Sam­fylk­ingar, Vinstri grænna, Við­reisnar og Pírata felldi til­lögu Kol­brúnar. „Skylda sveit­ar­stjórnar til að setja sér siða­reglur er skýr í lögum,“ segir í bókun þeirra á fund­inum. „Borg­ar­stjórn sam­þykkti nýjar siða­reglur með yfir­gnæf­andi meiri­hluta greiddra atkvæða. Við tökum ekki undir þau sjón­ar­mið að leita þurfi skýr­ingar ráðu­neytis á þeim vanga­veltum sem fram koma í til­lög­unni.“

Kolbrún mun sjálf leita til ráðu­neyt­is­ins og Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga vegna máls­ins að því er kom fram á fund­inum.

Leið­rétt­ing: Í upp­haf­legri frétt var því haldið fram að full­trúi Flokks fólks­ins vildi að skylda til að fylgja siða­reglum yrði afnumin. Rangur tit­ill var í fund­ar­gerð for­sætis­nefndar þar sem til­lagan var sögð snú­ast um „afnám á skyldu til að fylgja siða­reglum“. Réttur tit­ill er: „Tillaga Flokks fólks­ins um að fengið verði mat hjá ráðu­neyti um ýmis álita­efni tengd siða­reglum og skyldu borg­ar­full­trúa til að fara eftir þeim“. Leið­rétt­ist þetta hér með.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa grein.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár