Karolina Fund: Hrollvekjur eftir yngstu rithöfunda landsins

Hroll­vekju­safnið Eitthvað illt á leið­inni er er eftir nítján unga rit­höf­unda, svo unga að þeir eru í raun yngstu lista­menn sem hafa leitað á náðir almenn­ings í gegnum Karolina Fund. Með aðstoð rit­stjóra, umbrots­manns og sjö af fær­ustu mynd­skreytum lands­ins ætla þeir að gefa út glæsi­lega og hroll­vekj­andi bók.

Við tókum Markús Már Efraím tali til þess að fræð­ast nánar um verk­efnið.

Hvaðan kemur hug­myndin að því að fá börn til þess að skrifa hroll­vekjur?

„Það er í raun marg­þætt. Sjálfur er ég mjög hrif­inn af hroll­vekjum og þær eru stór partur af lífi mínu. Ég og eldri sonur minn, sem er á fjórða ári, skipt­umst á að segja hvorum öðrum drauga­sögur og sækjum báðir i það sem er pínu drunga­legt.

Rann­sóknir sál­fræð­inga, mann­fræð­inga, lestr­ar­kenn­ara o.fl. sýna að börn hafa gott af hroll­vekjum, sem henta þeirra aldri, og læra heil­mikið af þeim. Þau fara út fyrir þæg­ind­ara­mmann sinn, takast á við erf­iðar til­finn­ingar, fá útrás, efla sjáfs­ör­yggi og beisla jafn­vel sinn eigin ótta. Mann­skepnan hefur notað hroll­vekjur í þessum til­gangi síðan hann byrj­aði að búa til og segja sögur

En mik­il­væg­ast af öllu er að börnum þykja hroll­vekjur og drauga­sögur spenn­andi. Þau sækja í þær og við sem full­orð­inn erum eigum að virkja það sem börnum þykir spenn­andi, sér­stak­lega þegar kemur að lestri og ritun. Það er fátt sem hefur jafn nei­kvæð áhrif á læsi og lestr­ar­á­huga barna og að ætla að stýra því hvað þau mega lesa eða gera lítið úr þeirra vali á bók­menntum.“

[caption id="attachment_26877" align="alignnone" width="800"] Hér gefur að líta hina nítján höf­unda bók­ar­innar. Mynd: Karolina Fund.[/caption]

Hvað eru þetta margir aðilar sem koma að útgáf­unni og hvernig gekk að fá krakk­ana til að vinna verk­efnið með þér?

„Nám­skeiðin voru öll vel sótt, enda hroll­vekjur spenn­andi í augum krakka eins og ég sagði. Ef ég hefði kynnt ritsmiðjur þar sem ég ætl­aði að kenna ást­ar­sögu­gerð þá hefðu þær örugg­leg verið verr sóttar og senni­lega líka þó við hefðum bara kynnt almenna sögu­gerð. Það voru þó ekki allir til­búnir í þá skuld­bind­ingu að mæta alltaf og skrifa eigin sögu. Á end­anum voru þetta 19 rit­höf­undar á aldr­inum 8-9 ára sem voru með í verk­efn­inu til enda. En þessir 19 krakkar sökktu sér líka alveg í verkið og lögðu sig ótrú­lega mikið fram.

Það var magnað að sjá hvað þau voru fljót að til­einka sér það sem þeim var kennt og hvað þau hafa óbeislað ímynd­un­ar­afl til að vinna með. Það mun­aði líka örugg­lega miklu að ég kenndi þeim aldrei í fyr­ir­lestr­ar­formi heldur fór allt fram í sam­ræðum á jafn­ingja­grund­velli. Ég held að mörg börn séu óvön því að það sé hlustað á skoð­anir þeirra og það var aug­ljós­lega vald­efl­andi fyrir þau að fá að segja almenni­lega frá og tjá álit sitt. Það eru auð­vitað áskor­anir fólgnar í því að vinna bók með 19 ungum rit­höf­undum en á heild­ina litið voru þetta skemmti­leg­ustu og mest dríf­andi sam­starfs­menn sem hægt er að hugsa sér.“

Hvaða merk­ingu hefur þetta verk­efni fyrir barna­menn­ingu?

„Þetta verk­efni hefur auð­vitað þegar haft mikla merk­ingu fyrir þau 19 börn sem tóku þátt. Þau bera það með sér að vera örugg­ari með sig og sína sköpun og þau hafa fundið ímynd­un­ar­afl­inu sínu far­veg. En út á við þá hefur þetta von­andi vítæk­ari áhrif. Okkur lang­aði að sýna fram á það að barna­menn­ing ætti ekki heima á jaðr­inum.

Framlag barna til menn­ingar ætti að vera metið af verð­leikum þess. Það er ekki bara eitt­hvað krútt­legt sem á heima í ljós­ritum fyrir for­eldra. Þess vegna fórum við út í það að fá fag­fólk til að vinna að mynskreyt­ing­unum og bók­inni sjálfri. Og þessar sögur verð­skulda það líka fylli­lega. Þetta verk­efni og þessi bók verða von­andi öðrum börnum hvatn­ing til þess að skrifa og skapa hömlu­laust. Að sama skapi vonum við að þetta verði þeim sem starfa með börnum að inn­blæstri til að takast á við krefj­andi og metn­að­ar­full verk­efni.“

Hægt er að skoða verk­efnið nánar og leggja því lið hér

[caption id="attachment_26878" align="alignnone" width="800"] Kápa bók­ar­innar. Mynd: Karolina Fund.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár