Karolina Fund: Ný íslensk "feel good" kvikmynd

Þegar Snævar Sölvason var hálfn­aður með námið sitt í Kvik­mynda­skóla Íslands ákvað hann að láta draum sinn ræt­ast og búa til bíó­mynd. Hann skrif­aði hand­ritið og safn­aði saman hópi af hæfi­leik­a­ríku fólki. Eftir að hafa tekið upp kvik­mynd í fullri lengd þarf hóp­ur­inn nú aðstoð við að klára eft­ir­vinnsl­una svo myndin kom­ist í kvik­mynda­hús í sumar.

Kjarninn ræddi við Ævar Örn Jóhanns­son leik­ara og fram­leið­anda kvik­mynd­ar­innar ALBATROSS.

https://www.youtube.com/watch?v=AYreFjw7YpA

 

Lét draum rætast


Hvaðan kemur hug­myndin að kvik­mynd­inni ALBATROSS?

"Hug­myndin kemur úr koll­inum hans Snævars Sölva­sonar sem bæði skrif­aði hand­ritið og leik­stýrði mynd­inni. Þegar hann var í sum­ar­fríi frá Kvik­mynda­skóla Íslands þá ákvað hann að taka málin í sínar eigin hendur og bara láta draum­inn ræt­ast með því að búa til bíó­mynd í stað þess að leita að sum­ar­vinnu enn eitt árið. Hugdetta sem vatt fljótt uppá sig og lauk öllum und­ir­bún­ingi og tökum þarna um sum­arið.

Nú erum við í óða önn að safna fyrir þeirri tækni­vinnslu sem eftir er, t.d. hljóð- og mynd­vinnslu, í gegnum Karolina Fund. Allir sem vilja geta þar lagt okkur lið og fengið bíómiða á for­sýn­ing­una og margt fleira skemmti­legt að launum. Stefnan er svo sett á að frum­sýna þennan "feel good" sum­arsmell í lok maí."

Eru til fyr­ir­myndir að per­són­unum?

"Það er nú oft þannig þegar maður kemur úr litlu sam­fé­lagi þar sem allir þekkja alla að maður nýti sér ýmsa kyn­lega kvisti frá hinum og þessum karakt­erum. Þá á það jafn­vel við fyrir leik­ar­ana í þeirra per­sónu­sköpun sem og við hand­rita­skrifin sjálf. Lítið verður þó látið uppi með það þó að ein­hverjar skemmti­legar teng­ingar sé eflaust hægt að finna enda mis­jafnt hvað fólk rýnir í. Mætti segja að ákveðnir karakt­erar í mynd­inni og margar aðstæður líka ef út í það er farið, séu eitt­hvað sem flestir ættu að geta tengt eitt­hvað við úr sínu dag­lega lífi. Allt er þó í góðu gamni gert enda væri heim­ur­inn ekki jafn lit­ríkur ef við værum öll eins.

Ætli Snævar hafi ekki einna mest sniðið aðal­karakt­er­inn Tomma svo­lítið að sjálfum mér í bland við að vera smá rauna­saga frá honum sjálfum. Það hefur hann gert til að nýta sér ákveðna og sér­stæða kosti við kvik­mynda­gerð­ina eins og t.d. svif­vængja­flugið (e. paragli­ding) sem ég er nokkuð viss um að hafi aldrei birst í íslenskri kvik­mynd áður."


Vel samanpúslaður hópur


Segðu mér aðeins frá hópnum sem stendur að ALBATROSS.

"Glæsi­legur hópur í alla staði og val­inn maður og kona í hverju rúmi. For­sprakk­inn að þessu öllu púsl­aði saman vel völdum ein­stak­lingum úr hinum og þessum áttum og náðu allir ein­stak­lega vel saman þó margir væru að hitt­ast í fyrsta skipti þarna við tökur. Nokkrir sem voru með Snævari í kvik­mynda­gerð­ar­nám­inu, bæði tækni­fólk og leik­arar, aðrir úr hans nán­asta umhverfi og margir að stíga sín fyrstu skref í svona stóru verk­efni. Svo bjuggum við svo vel að því að Pálmi Gests, sem hefur heim­sótt flest heim­ili lands­ins í gegnum skjá­inn, er einmitt frá Bol­ung­ar­vík og ákvað að taka slag­inn með okkur í mjög áhuga­verðu hlut­verki. Það er mik­ill lær­dómur sem maður getur dregið frá svo­leiðis sleggju sem þekkir brans­ann út og inn.

Núna reynum við bara öll eins og áður segir að fá fólk til að leggja hönd á plóg til að klára þessa mynd og koma henni í bíó. "

Hægt er að skoða verk­efnið nánar og leggja því lið hér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár