Karolina Fund: Nýtt ilmandi ferskt skáldverk - beint úr ofninum!

Upp­skrifta­bók - skáld­verk er sam­starfs­verk­efni tíu rit­höf­unda og sjö rit­stjóra sem áætlað er að komi út í vor. Við höfðum sam­band við Grétu Sigríði Ein­ars­dóttur, einn af rit­stjórum bók­ar­innar og tókum hana tali.

Hvers vegna fékk bókin nafnið ‘Upp­skrifta­bók’?

„Þetta nafn átti upp­haf­lega bara að vera vinnu­tit­ill, en eftir því sem leið á ferlið fest­ist það æ betur við bók­ina svo að lokum var ákveðið að hún yrði gefin út undir þessu nafni. Þannig er mál með vexti að þegar hóp­ur­inn kom fyrst saman var það eina sem við vissum að áætl­unin væri að gefa út bók, en við vissum ekki hvernig bók né um hvað hún ætti að vera. Fljót­lega var þó ákveðið að bókin yrði safn verka og að unnið yrði út frá ákveðnu þema til að gefa bók­inni heild­ar­svip. Fjöldinn allur af skemmti­legum hug­myndum kom fram en að lokum varð ofan á að öll verkin ættu að byggja á hug­mynd­inni um upp­skriftir.

Þetta er afar opið og áhuga­vert þema, því þó að það fyrsta sem komi upp í hug­ann séu mat­ar­upp­skriftir, þá er upp­skrift í grunn­inn ekk­ert annað en leið­bein­ingar til að kom­ast að ákveð­inni nið­ur­stöðu, sama hvort það sé ákveð­inn réttur eða eitt­hvað allt annað. Af því leiðir að í bók­inni má finna afar ólíkar upp­skriftir, að jógúrt­kökum, nágranna­erjum, gam­alli konu og mörgu fleira.

Til þess að koma í veg fyrir að ein­hverjir verði svekktir yfir því að finna ekki alvöru upp­skriftir í bók­inni bjóðum við fólki upp á að kaupa hefti með hefð­bundn­ari upp­skriftum í söfn­un­inni fyrir bók­inni á www.karolinafund.is.“

Fjölbreyttur hópur á bakvið útgáfuna


Hver er sagan á bak­við hóp­inn sem stendur að verk­inu?

„Þeir sem standa að bók­inni eru allt nem­endur í fram­halds­námi við Háskóla Íslands, ann­ars vegar í rit­list og hins­vegar hag­nýtri rit­stjórn og útgáfu. Það þykir til­valið að láta þessa hópa æfa sig hvora á öðrum, enda er gríð­ar­lega mikla reynslu að fá út úr því að skrifa og gefa út bók upp á eigin spýtur. Í hópnum eru tíu rit­höf­undar og sjö rit­stjórar auk þess sem Sig­þrúður Gunn­ars­dóttir, rit­stjóri á For­lag­inu, hefur umsjón með verk­efn­inu. Hópurinn er afar fjöl­breyttur, inni­heldur fólk á öllum aldri, með alls konar reynslu að baki sem kemur sér afar vel við svo fjöl­breytt og marg­þætt verk­efni. Sem dæmi má nefna að innan hóps­ins má meðal ann­ars finna við­skipta­fræð­ing, fyrrum lög­reglu­þjón og graf­ískan hönnuð.“

https://vimeo.com/122385099

Hvernig gekk að finna jafn­vægi á milli þess­ara ólíku hrá­efna, ljóð, saga og mynda?

„Í safni verka eins og þessu er alltaf hætta á að bókin verði sund­ur­laus. Þegar vel tekst til, eins og við von­umst auð­vitað til að eigi um okkar verk, býður slíkt verk þó upp á marga mögu­leika. Það er hægt lesa hana alla í gegn, enda höfum við raðað köflum bók­ar­innar þannig upp að flæðið milli þeirra sé gott, en það er líka hægt að grípa niður í hana og lesa eitt ljóð eða stutta sögu í einu ef sá gáll­inn er á. Þannig hentar Upp­skrifta­bókin eins vel til að hafa á sér og grípa niður í henni í bið­stofum eða strætó og til að hafa á nátt­borð­inu. Þar fyrir utan gefur hið sam­eig­in­lega þema bók­inni ákveð­inn sam­hljóm. Reyndar má geta þess að þó nokkrir text­anna áttu meira sam­eig­in­legt en upp­skrifta­vink­il­inn, því þegar farið var í að setja text­ana saman í bók kom í ljós að fleiri en einn og fleiri en tveir þeirra gerð­ust á suð­rænum slóðum, sér­stak­lega í kringum Mið­jarð­ar­hafið. Það má þó vænt­an­lega rekja til þess að bókin er að mestu leyti skrifuð í jan­úar og febr­úar eins storma­samasta vet­urs síð­ustu ára.“

[caption id="attachment_25612" align="alignnone" width="800"] Bókin er ríku­lega mynd­skreytt.[/caption]

Hægt er að skoða verk­efnið nánar og leggja því lið hér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár