Karolina Fund: Svavar Knútur, loksins á vínyl elskurnar!

Tón­list­ar­mað­ur­inn Svavar Knútur er að vinna að útgáfu sólóplatna sinna, Kvöld­vaka, Amma og Ölduslóð á vínyl og freistar þess að hóp­fjár­magna útgáf­una á Karolina Fund. Sjálfur segir hann ekk­ert not­ar­legra en að „skella hlý­legri þjóð­lagatón­list­inni með ólg­andi melankólíu og nötr­andi von­ar­strái á fón­inn þegar til­vist­ar­kreppan nagar und­ir­stöður sál­ar­innar eða jafn­vel kúra sig undir brak­andi kunn­ug­leik Ömmu­plöt­unnar á köldu vetr­ar­kvöldi."


Ættaður alls staðar að


Hverjar eru rætur þínar og hvenær fórstu að vinna að tón­list?

"Ég er nú ætt­aður alls staðar að á Íslandi, m.a. að austan, Borg­ar­firði eystri og Álfta­firði og svo frá Barða­strönd­inni og Breiða­firði, Grinda­vík og Trölla­skaga. Þessi mixt­úra hefur reynst afskap­lega flókin og ill­skýr­an­leg gegnum tíð­ina. Svo yfir­leitt seg­ist ég bara vera list­fengur lands­byggð­ar­lúði.

Ég bý núna í Reykja­vík með fjöl­skyld­unni minni og geri út þaðan. Ég byrj­aði að starfa sem tón­list­ar­maður rétt fyrir hrun. Það vatt hratt upp á sig og ég hætti í öruggri og traustri inni­vinnu næstum sama dag og Geir H. Haarde sagði „Guð blessi Ísland“. Það var gáfu­legt. Ég hef sem­sagt starfað alfarið við tón­list síðan 2008 og verið mikið á tón­leika­ferða­lögum und­an­farin ár sam­fara útgáfu og öðru tón­list­ar­starfi. Svo hef ég verið að teygja mig inn í leik­hús líka und­an­farið, unnið með íslenskum og þýskum leik­hópum og samið tón­list fyrir nokkur leik­rit.

Eftir und­an­farin sjö ár og allt það ströggl og erf­ið­leika sem þeim hafa fylgt get ég ekki hugsað mér að vinna annað starf en tón­list."

https://soundcloud.com/svavarknutur/emotional-anorexic

Vill koma öllum sólóplötunum á vínyl


Segðu aðeins frá tón­list­ar­verk­efn­inu se þú ert að reyna að hóp­fjár­magna?

"Verk­efnið felst í því ann­ars vegar að koma öllum sóló­plöt­unum mínum hingað til á vínyl, sem er afskap­lega kostn­að­ar­samt verk­efni í sjálfu sér, en einnig að gefa út, í til­efni af því, 12 tommu EP-plötu með fjórum lögum, teknum upp á tón­leikum, heima hjá vinum og svo í vonsku­veðri, heima í stofu.

Í því til­efni ákvað ég, í sam­ráði við útgef­and­ann minn, Dimmu útgáfu, að láta gera alger­lega ný koverl­ista­verk fyrir plöt­urnar. Dóttir mín, Dagbjört Lilja, hafði teiknað mynd­irnar á geisla­diska­út­gáf­urnar á sínum tíma, en við hugs­uðum að í stað þess að blása þær út og láta plöt­urnar líta eins út, bara með stækk­uðum myndum, væri flott að end­ur­hugsa pæl­ing­arnar fyrir þennan stóra „striga“. Það kall­aði á ný kóverl­ista­verk og alger­lega nýja útlits­hönnun.

Fyrir EP plöt­una, Songs of Weltschmerz, Waldeinsamkeit and Wanderlust (WWW), var síðan fylgt nýrri hug­mynd, en hún dregur svo­lítið saman pæl­ing­arnar á Kvöld­vöku og Ölduslóð í eina stutta sögu."

Hvað er líkt og ólíkt með þessum þremur sóló­plötum: Kvöld­vöku, Ömmu og Ölduslóð?

"Kvöld­vaka og Ölduslóð eru lík­ari inn­byrðis, enda eru þar frum­samin lög. Þær segja hvor sína sögu og ég rað­aði lög­unum upp þannig fram­vinda sög­unnar gengur upp. Hún á líka að ganga upp eins og vín­yl­plata skipt­ist á hliðar, svo það er mjög skemmti­legt. Ég hugs­aði plöt­urnar alltaf þannig að hægt yrði að gefa þær út á vínyl, út frá lengd.

Þær eru samt örlítið ólíkar inn­byrðis. Kvöld­vaka fjallar um brekk­una frá eymd til end­ur­lausnar, en Ölduslóð er að taka á ham­ingj­unni sem því verk­efni sem hún er, með öllu ves­en­inu og þraut­unum sem því fylgja.

Amma, hins vegar, sker sig út þar sem á henni eru bara íslensk sönglög, „lög fyrir ömmu mína“. Mér þykir afskap­lega vænt um þá plötu og það var rosa­lega gaman að taka svona naktar, hlýjar, trú­badora­út­gáfur af sígildum íslenskum lögum, sem fólk er kannski van­ara að heyra í píanó­út­setn­ingum.

Svo kemur EP platan (WWW) með læv og stríp­uðum útgáfum af tveimur lögum af Kvöld­vöku og Ölduslóð, einu lagi af næstu plötu og svo lagi sem er eig­in­lega eins og af plöt­unni „Oma“, ef Amma hefði verið gefin út í Þýska­landi, In Stiller Nacht, þýskt þjóð­lag í útsetn­ingu Johann­esar Brahms, en end­ur­út­sett fyrir gítar."


Nýjar myndir af plötunum


Hverju finnst þér breyta að gefa tón­list­ina út á vínyl?

"Mér finnst aðal­lega skemmti­legt að end­ur­hugsa plötu­umslögin og list­ina á þeim, að gefa fólki alger­lega nýjar myndir af plöt­unum. Svo er nátt­úru­lega verið að láta undan ákveðnum þrýst­ingi frá þessum vín­ylnör­dum sem eru alltaf að tuða um að eng­inn sé maður með mönnum nema maður gefi út á vínyl. Það má líka. En það hefur alltaf staðið til að þessar plötur kæmu út á vínyl. Það hefði verið skemmti­legt að gera það sam­hliða upp­runa­legu útgáf­unni, en það er eig­in­lega ennþá skemmti­legra að gera þetta svona saman sem eitt verk­efni, því það bauð upp á þessa end­ur­hugsun og nýtt sam­hengi. Ég er bara ótrú­lega spenntur."

Hægt er að skoða verk­efnið nánar og leggja því lið hér

https://soundcloud.com/svavarknutur/while-the-world-burns

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár