Karolina Fund: Rökkurtónlist fyrir síðkvöld og letimorgna

Red Barnett er sól­ó­verk­efni Haraldar V. Svein­björns­sonar sem er mörgum kunnur úr íslensku tón­list­ar­lífi þó oft­ast hafi hann starfað á bak­við tjöldin ef svo má segja. En hann er núna að safna á Karolina Fund fyrir loka­spretti útgáf­unar, svo að platan geti komið út í vor.

Við tókum Harald tali til þess að fræð­ast meira um verk­efnið.


Nafnið fæddist í gríni


Segðu mér aðeins frá Red Barnett?

"Red Barnett varð til þegar ég var í klass­ísku tón­smíða­námi í Svíþjóð. Þá hafði ég verið að semja þó nokkuð af rólegum lagstúfum sem hent­uðu ekki beint í þær "klass­ísku” tón­smíðar sem ég var að vinna að á þeim tíma, né hent­uðu þær rokksveit­inni sem ég var þá með­limur í, hinni forn­frægu grugg­sveit Dead Sea Apple. Á meðan ég sinnti nám­inu fann égg þessi stef toga hressi­lega í mig. Ég átt­aði mig á því þau voru mér mjög per­sónu­leg og það var kannski ástæðan að ég kunni ekki við að nýta þau í önnur verk­efni.

Þegar heim var komið ákvað ég að halda áfram að semja í þessum rólega melankól­íska stíl. Þá varð úr að setja lögin undir þennan hatt, Red Barnett, og þróa þau sem eins­konar einka­verk­efni mitt. Þetta verk­efni er svo búið að standa lengi - það var erfitt að skilja við lögin nema ég væri 100% ánægður, þau voru orðin svo sam­vaxin mér. Nafnið á verk­efn­inu, Red Barnett, er svo eitt­hvað sem fædd­ist í gríni hjá mér og vin­konu minni, útúr­snún­ingur á nafni dönsku hjálp­ar­sam­tak­anna sem bera sama nafn mínus eitt té."


Afi með bráðsmitandi ástríðu


Hvaðan kom inn­blást­ur­inn við gerð þess­arar sóló­plötu?

"Á ung­lings­ár­unum sökkti ég mér í Bítlana á sama tíma og ég var hel­tek­inn af Iron Maiden og Zeppelin. Ég var eins og margir, algjör svampur á þeim aldri og skipti ekki máli hvaðan gott var. Svo var afi minn heit­inn með bráðsmit­andi ástríðu á klass­ískri tón­list og nálg­að­ist hana af virð­ingu og þakk­læti. Við áttum það sam­eig­in­legt að vera báðir ein­stak­lega veikir fyrir fal­legum meló­díum. Þannig fékk ég inn­blástur úr öllum áttum á full­komnum mót­un­ar­tíma, eitt­hvað sem hefur gagn­ast mér í leik og starfi fyrir lífs­tíð.

Und­an­farin 10 ár hef ég hlustað svo­lítið á ein­yrkjatón­list, söngvaskáld ný og gömul af báðum kynjum og það hefur eflaust haft þau áhrif að ég fékk á end­anum kjark til að skila af mér þessum per­sónu­legu lögum út í kosmósið. Red Barnett er jú eins­konar söngvaskálds-hlið á mér, þó eflaust megi skil­greina það út og suður."

https://soundcloud.com/redbarnett/shine-part-ii

Gamlir félagar hjálpuðu til


Komu fleiri góðir tón­list­ar­menn að þessu verki?

"Já, ég fékk til liðs við mig mína gömlu félaga Hannes Frið­bjarn­ar­son og Finn Beck, en við þrír stofn­uðum okkar fyrstu hljóm­sveit 11 ára gamlir í Kópa­vog­inum. Saman erum við að hóp­fjár­magna loka­hnykk útgáf­unnar á Karolina Fund en akkúrat núna er vika eftir af söfn­un­inni og spenn­andi að sjá hvort tak­markið náist. Auk þeirra fékk ég Arnþór Þórð­ar­son úr Dead Sea Apple, Garðar Borg­þórs­son úr Differ­ent Turns, Didda Guðnason úr Mönnum árs­ins og SKE, Einar Þór úr Dúnd­ur­fréttum og Buffi, Ragnar Ólafsson úr Árstíðum og vin­konur mínar Kristínu Lár­us­dóttur, Unu Svein­bjarn­ar­dóttur, Margréti og Pálínu Árna­dætur og Guðrúnu Hrund Harð­ar­dóttur á strengja­hljóð­færi. Svo syngja systur mínar Hrefna Hlín og Þóra Björk líka á plöt­unni. Öll eiga þau stóran part í þessum hljóð­heim sem skap­ast á plöt­unni og ég er svo ánægður með."

Hægt er að styrkja ferða­lagið og næla sér þannig í miða í sumar hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár