Karolina Fund: Sirkus Íslands safnar fyrir ferðalagi um landið

Á haust­mán­uðum 2013 safn­aði Sirkus Íslands fyrir fyrsta sirku­stjald­inu hér á landi. Hópurinn safn­aði sex og hálfri milljón króna og fengu allir styrkj­endur miða í sirkus­inn síð­asta sumar. Hátt í 22.000 manns sáu sýn­ingar sirkuss­ins fyrsta íslenska sirkus­sumarið á Ísafirði, Akureyri, Selfossi, í Reykja­nesbæ og Reykja­vík. „Og núna söfnum við fyrir öðru sirkus­ferða­lagi, á sama hátt - allir sem styrkja eru í raun að kaupa miða næsta sumar," segir Margrét Erla Maack upp­lýs­inga­full­trúi og sirk­us­dýr.

Í sumar stefnir hóp­ur­inn á Gos­loka­há­tíð í Vest­manna­eyjum, Húnavöku á Blöndu­ósi, Franska daga á Fáskrúðs­firði og Síldar­æv­in­týrið á Siglu­firði auk þess að tjalda á Klambra­túni í Reykja­vík.

Aftur í hópfjármögnun


Þið eruð búin að safna fyrir sirku­stjald­inu, af hverju ráð­ist þið aftur í hóp­fjár­mögnun?

"Hóp­fjár­mögnun skemmti­leg leið til að fjár­magna svona óvenju­legt batt­erí eins og sirkus­ferða­lag er. Við erum líka hrifin af því að geta boðið sirku­smið­ana á lægra verði fyrir þá sem styrkja okkur á þessum tíma­punkti - og það þarf ekki að negla niður tíma­setn­ing­una á því þegar maður vill nota mið­ann sinn. Við þurfum að reiða alls konar kostnað af hendi núna og okkur langar líka að poppa sýn­ing­arnar okkar upp, kaupa fleiri græjur og þess háttar. Að leita til fólks­ins á þennan hátt er stór­skemmti­legt, og mun meira spenn­andi en að fara hefð­bund­ari leiðir. Við höfum aldrei hlotið neina opin­bera styrki, heldur fjár­mögnum við okkar starf með því að koma fram við ýmis tæki­færi, reka sirkus­skóla fyrir börn og með sirkus­sýn­ingum."

https://vimeo.com/121854755

Hvað má fólk búast við að sjá í sirku­snum?

"Bók­staf­lega allt sem fólk tengir við sirkus. Í stóru fjöl­skyldu­sýn­ing­unni Heima er best er að finna allt sem fólk tengir við sirkus: Trúða, loft­fim­leika, grippl (djöggl), jafn­væg­is­listir, hjóla­skauta, húlla­hringi... og margt fleira. Krakka­sýn­ingin S.I.R.K.U.S. er styttri og ljúfari, með örlitlum sögu­þræði og er kynn­ing á sirkus­form­inu fyrir leik­skóla­ald­ur­inn, þó ekki á kostnað eldri áhorf­enda. Pabbi minn, 65 ára, sá hana tíu sinnum síð­asta sumar og fannst hún mjög skemmti­leg. Svo erum við með full­orð­ins­sirkus­sýn­ingu sem ber heitið Skinn­semi. Það er kab­ar­etts­irkus með full­orð­ins­bragði. Margir halda að sirkus sé bara fyrir börn, en full­orðna fólkið gapir alveg jafn mikið á sýn­ing­unum okkar. Sirkus Íslands notar ekki dýr, bara heima­rækt­aða hæfi­leika. Við vorum samt að pæla í því að vera með íslenskan sirkus­fýl, en eftir því sem við pældum meira í því varð hug­myndin verri og verri."

[caption id="attachment_23784" align="alignnone" width="800"] Það er, ótrú­legt en satt, hægt að lifa á því að vera sirku­slista­maður á Íslandi.[/caption]

Hægt að lifa á því að vera sirkuslistamaður


Er hægt að lifa á því að vera sirku­slista­maður á Íslandi?

"Þótt ótrú­legt megi virð­ast, þá er svarið við þess­ari spurn­ingu: Ójá. Við vorum tíu sem stofn­uðum sirkus­inn 2007, með for­sprakk­ann Lee Nelson í far­ar­broddi. Við flest litum þá á þetta bara sem hobbí en hann hefur slípað þetta kompaní á þann stað sem það er í dag. Núna störfum við allt árið, og margir í fullu starfi. Við rekum sirkus­skóla og höldum sirkus­nám­skeið fyrir börn og fram­tíðin er sann­ar­lega björt. Þrjú af hópnum nema sirku­slistir í Codarts lista­há­skól­anum í Rott­er­dam og við erum dug­leg að fá til okkar gesta­kenn­ara til að verða betri og betri. Sirkusstór­fjöl­skyldan telur núna 30 manns, og við störfum allt árið, sem kemur fólki á óvart. Hápunktur árs­ins er sirkus­ferða­lagið. En ég meina, það væri eng­inn sirkus ef ekki væru áhorf­endur."

Hvernig er lífið á sirkus­ferða­lagi?

"Það er bæði ljúft og erfitt. Erfitt því við erum að allan dag­inn, alla daga, og við sjálf setjum tjaldið upp og tökum það niður og það er mikil vinna. Sirku­slista­fólkið gengur í öll störf, við eldum, sópum, afgreiðum í sjopp­unni, seljum mið­ana... þetta er eins og stórt heim­ili sem ferð­ast um. Auðvitað verða bæði ástir og árekstrar til í svona nánu sam­starfi. Við ferð­umst á þriðju­degi, setjum tjaldið upp á mið­viku­degi, sýnum fimmtu­dag, föstu­dag, laug­ar­dag og sunnu­dag og pökkum saman og tökum tjaldið niður á mánu­degi. En lífið er ljúft þegar maður er umkringdur ótrú­legu hæfi­leika­fólki og starfar við að láta draumana sína ræt­ast."

[caption id="attachment_23781" align="alignnone" width="800"] Sirkus Íslands hefur áður nýtt sér hóp­fjár­mögnun á Karolina Fund til að safna fyrir sirku­stjald­inu sínu. Sýningar hans nutu mik­illa vin­sælda síð­asta sumar.[/caption]

Sirkus­ferða­lagið 2015 verður á þessa leið:

      1. júlí: Gos­loka­há­tíð í Vest­manna­eyjum
      1. júlí: Reykja­vík
      1. júlí: Húnavaka á Blöndu­ósi
      1. júlí: Franskir dagar á Fáskrúðs­firði
  1. júlí - 3. ágúst: Síldar­æv­in­týrið á Siglu­firði

      1. ágúst: Reykja­vík

Hægt er að styrkja ferða­lagið og næla sér þannig í miða í sumar hér.

Sirkus Íslands á Facebook.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár