Styttri vinnudagur gæti aukið framleiðni – Deilt um hvort komi á undan

Stytting vinnu­vik­unnar og aukin fram­leiðni eru meðal helstu atriða til umfjöll­unar í kom­andi kjara­samn­ingum ýmissa stétt­ar­fé­laga og sam­taka vinnu­veit­enda. Ísland er eft­ir­bátur við­mið­un­ar­ríkja þegar kemur að fram­leiðni vinnu­afls, reiknuð sem lands­fram­leiðsla á hverja vinnu­stund. Því vilja bæði laun­þegar og atvinnu­rek­endur breyta, enda allra hagur. Heyra má sam­hljóm um vanda­málið þótt aðilar séu ekki endi­lega á einu máli um hvernig það megi leysa – og auka fram­leiðni íslensks vinnu­afls.

Það er í sjálfu sér ekki ný staða að Ísland komi illa út úr sam­an­burði við önnur ríki Efnahags- og fram­fara­stofn­un­ar­innar, OECD, þegar fram­leiðni vinnu­afls er borin saman. Slík hefur staðan verið um ára­bil. Árið 2013 var Ísland í 17. sæti á lista yfir fram­leiðni ríkj­anna. Í sam­an­burði við með­al­tal fram­leiðni tíu efstu ríkj­anna þá er fram­leiðni vinnu­afls á Íslandi aðeins um 73% af fram­leiðni tíu efstu ríkj­anna. Í skýrslu McKinsey frá 2012 um Ísland og vaxta­mögu­leika sagði að fram­leiðni á Íslandi væri að jafn­aði um 20% minni en í við­mið­un­ar­ríkjum.


Hér fyrir neðan má sjá fram­leiðni vinnu­afls, reiknað sem lands­fram­leiðsla á hverja vinn­stund í doll­urum, árið 2013. Sú stað­reynd að Ísland er yfir með­al­tali OECD ríkja þegar litið er til lands­fram­leiðslu á mann, en undir með­al­tali þegar litið er til fram­leiðni á vinnu­afls, segir ein­fald­lega að við sækjum hag­sæld með lengri vinnu­degi en aðrar þjóðir.


Fram­leiðni vinnu­afls í ríkjum OECD árið 2013

|

Create infographics


Grunnlaunin dugi til framfærslu


[caption id="attachment_22307" align="alignleft" width="150"] Guð­mundur Ragn­ars­son, for­maður VM.[/caption]

Guð­mundur Ragn­ars­son, for­maður félags Vél­stjóra og málm­tækni­manna (VM), segir mik­il­vægt að auka fram­leiðni meðal sinna félags­manna og að lausnin felist í hækkun grunn­launa. Að hans mati er íslenskur vinnu­mark­aður fastur í víta­hring og ráð­ast þurfi í grund­vall­ar­breyt­ingar til þess auka fram­leiðni og kom­ast úr víta­hringnum. „Davinnu­laun duga ekki fyrir fram­færslu. Því þurfa allir að vinna auka­vinnu til þess að fram­fleyta sér og fjöl­skyld­unni. Starfs­menn geta vel fram­kallað sama vinnu­fram­lag á átta tímum, sem þeir gera í dag á tíu til tólf tímum.,“ segir hann og bendir á að fram­leiðni á Íslandi hafi í sam­an­burði við aðrar þjóðir verið léleg í ára­tugi.


Rúm fjögur ár eru síðan VM fór að ræða þátt fram­leiðni af mik­illi alvöru og kort­leggja hvernig hana megi auka meðal félags­manna. Af aðild­ar­fé­lögum Alþýðu­sam­bands­ins, þá er VM komið einna lengst laun­þega­hreyf­inga í þess­ari vinnu.


Kröfur VM eru ekki að stytta 40 stunda vinnu­vik­una, heldur að vinda ofan af auka­vinnu og fram­kvæma það sama og gert er í dag á venju­legum vinnu­tíma á ásætt­an­legum dag­vinnu­launum, segir Guð­mundur.

Kúltúrinn þarf að breytast

Spurður hvort vanda­málið felist í íslenskum „vinnu­kúltúr“ tekur hann að að hluta undir það. „Bæði við og atvinnu­rek­endur verðum vör við breyttar áherslur. Á síð­ustu tíu árum eða svo hefur ungt fólk komið út á vinnu­mark­að­inn og hefur allt annað við­horf en fyrri kyn­slóðir. Þau segja: Við ætlum að eiga líf eftir vinnu. Þetta sáum við til dæmis í lækna­deil­unni, þar sem læk­arnir sýndu að þeir ætli ekki að eiga heima á Land­spít­al­anum og vera ann­ars á bak­vakt heima hjá sér,“ segir hann.


„Á Íslandi við­gengst mik­ill vinnu­tími og orsökin er lág dag­vinnu­laun. Ég full­yrði að ef við hækkum þau þá gerum við það sama á átta vinnu­stundum og gert er í dag á tíu til tólf tímum. Við verðum að kom­ast út úr þessum víta­hring með því að fram­kvæma vinn­una á styttri tíma. Fram­leiðni vinnu­afls mun þá mæl­ast eins og hjá sið­uðum þjóðum,“ segir Guð­mundur.

Stærðaróhagkvæmni og rangir hvatar

[caption id="attachment_22308" align="alignleft" width="150"] Bjarni Már Gylfason, hag­fræð­ingur SI.[/caption]

Bjarni Már Gylfason, hag­fræð­ingur Samtaka iðn­að­ar­ins, telur nokkrar ástæður geta skýrt hvers vegna fram­leiðni íslensks vinnu­afls mælist svo illa í sam­an­burði. Samtök iðn­að­ar­ins hafa látið þátt fram­leiðni sig sér­stak­lega varða og gáfu meðal ann­ars út blað í fyrra sem hét ein­fald­lega „Aukum fram­leiðni“.


„Ein ástæðna er sú að við erum þjökuð af stærðar-óhag­kvæmni. Rekstr­ar­ein­ingar á Íslandi eru margar ótrú­lega litlar. Það eru þús­undir fyr­ir­tækja í bygg­ing­ar­iðn­aði og helm­ingur þeirra er með einn starfs­mann.“ Í þessu felst mikil óhag­kvæmni, þegar sami starfs­mað­ur­inn þarf að ganga í mörg, mis­mun­andi verk, segir Bjarni Már.


„Önnur mögu­leg skýr­ing snýr að opin­bera geir­anum. Ýmsar grunn­stofn­anir eru að ákveð­inni lág­marks­stærð. Dæmi um slíka stofnun er Trygg­inga­stofnun. Ef íbúa­fjöldi tvö­fald­ast þá þyrfti Trygg­inga­stofnun, eða aðrar rík­is­stofn­anir, ekki að tvö­fald­ast að stærð,“ skýrir hann.


Þriðja skýr­ingin á lít­illi fram­leiðni vinnu­afls snýr að yfir­vinnu­tímum og röngum hvötum. „Við viljum öll standa okkur vel í vinn­unni en einnig bera sem mest úr bítum. Á Íslandi er yfir­vinnu­tím­inn 80 pró­sent dýr­ari en dag­vinnu­tím­inn [þ.e. yfir­vinna greiðir 80 pró­sent meira en dag­vinna]. Í Hollandi, svo dæmi sé tekið, er yfir­vinnu­tím­inn 20 pró­sent dýr­ari. Það er hvati til staðar fyrir starfs­menn að reyna að ná í þess­ari launa­hærri vinnu­stundir.“ Bjarni segir þetta skapa ranga hvata til þess að reyna að vinna á hærri launa­taxta.

Hvort kemur á undan?

Bjarni Már og Guð­mundur tala báðir um mik­il­vægi þess að unnið sé á vinnu­tíma, það er að starfs­fólk sé ekki að skreppa eða í per­sónu­legum útrétt­ingum á vinnu­tíma. Það dragi aug­ljós­lega úr fram­leiðni, það er vinnu­fram­lagi á hverri vinn­stund. Guð­mundur talar fyrir hærri dag­vinnu­launum, svo laun­þegar þurfi ekki að vinna yfir­vinnu, og Bjarni Már segir það til skoð­unar hvort breyta eigi eðli kjara­samn­inga þannig að greitt sé fyrir vinnu­fram­lag. Þessar nálg­anir á vand­ann eru ekki and­stæður, þótt þær séu ekki nákvæm­lega eins.


En hvort er það sem kemur á undan, laun eða fram­leiðni? Myndi launa­hækkun skila auk­inni fram­leiðni eða þarf aukna fram­leiðni til þess að hægt sé að hækka laun? Þessu er ekki auðsvarað, að mörgu leyti snýst umræðan um þessa spurn­ingu og ekki myndu allir hag- eða sér­fræð­ingar á vinnu­mark­aði gefa sama svarið.

[caption id="attachment_22309" align="alignleft" width="93"] Viðar Ingason, hag­fræð­ingur VR.[/caption]

Viðar Ingason, hag­fræð­ingur VR stétt­ar­fé­lags, skrifar athygl­is­verða grein í nýjasta tölu­blaði VR blaði. Þar segir hann: „Yfir­leitt er gert ráð fyrir því að fram­leiðni þurfi fyrst að aukast, svo hækki launin. Margar hag­fræði­kenn­ingar og rann­sóknir sýna að sam­bandið sé frá auknum launa­hækk­unum til auk­innar fram­leiðni. Hækkun launa getur vissu­lega haft áhrif á verð­lag en atvinnu­rek­endur leita oft ann­arra leiða til að mæta hækkun launa en að velta þeim út í verð­lag. Þeir reyna til að mynda að auka afköst með því að auka starfs­hæfni starfs­fólks og mennt­un­ar­stig sem getur leitt til virð­is­auka. Þannig eykst fram­leiðni eftir að laun hækka. Starfs­fólk getur einnig lagt sig meira fram eftir að laun þess hækka, þar sem nú er meira í húfi. Þannig virka launa­hækk­anir sem hvatn­ing til að gera betur,“ skrifar Viðar.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferð til fjár

SkýringFerð til fjár

Fjögur gröf sem útskýra fast­eigna­mark­að­inn

Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, árs­fjórð­ungs­legri skýrslu Seðla­banka Íslands, er nokkuð fjallað um þróun fast­eigna­verðs og þær hækk­anir sem orðið hafa á íbúða­verði að und­an­förnu. Þróunin á Íslandi er meðal ann­ars borin saman við önnur lönd en í skýrsl­unni segir að ekki séu merki um bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum í heild. Engu að síður sé fast­eigna­verð orðið hátt á flesta mæli­kvarða í...
FréttirFerð til fjár

Vænt­ingar dvína í skugga kjara­við­ræðna

Vænt­inga­vísi­tala Gallups lækk­aði um 17 stig í apr­íl­mán­uði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísi­töl­unni milli mán­aða í tæp tvö ár. Vísi­talan fór yfir 100 stig í mars síð­ast­liðnum en vísi­talan er mæld á bil­inu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafn­margir aðspurðra neyt­enda eru bjart­sýnir og svart­sýnir á stöðu og horfir...
FréttirFerð til fjár

Per­sónu­af­slátt­ur­inn er 610.825 krónur í ár

Per­sónu­af­sláttur ein­stak­linga er 610.825 krónur fyrir árið 2015 eða 50.902 krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er hækkun um 4.848 krónur frá árinu 2014, eða um 404 krónur á mán­uði. Hækkunin nemur 0,8% en hún er lögum sam­kvæmt í takt við verð­bólgu­þróun. Fjallað er um per­sónu­af­slátt, stað­greiðslu og trygg­inga­gjald árs­ins 2015 í grein í Tíund, frétta­blaði Rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur að...
FréttirFerð til fjár

Verð­bólgan étur kaup­mátt­inn

Hækkun verð­lags í mars­mán­uði varð til þess að kaup­máttur launa dróst saman um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa, eins og hann mælist sam­kvæmt vísi­tölu Hag­stof­unnar, hafði hækkað nán­ast stans­laust í tólf mán­uði en dróst núna saman. Árs­hækkun kaup­máttar launa mælist engu að síður um 4 pró­sent, en árs­hækkun mæld­ist 5,6 pró­sent í febr­úar. Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu launa í...
FréttirFerð til fjár

Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari en aðrir

Íslenskir stúd­entar eru sam­vinnu­þýð­ari en banda­rískir stúd­entar og leggja sig harðar fram við að halda hópa­vinnu gang­andi. Ýmsir félags­þættir benda til að Íslend­ingar sam­svari sig almennt betur í hópi fólks og séu það sem kallað er á ensku group minded á kostnað ein­stak­lings­hyggju. [caption id="attachment_26395" align="alignleft" width="139"] Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir.[/caption]Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar sem Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir hefur unnið að...
SkýringFerð til fjár

Deilt um sam­band launa­hækk­ana og verð­bólgu

Kröfur margra stétt­ar­fé­laga í yfir­stand­andi kjara­deilum á vinnu­mark­aði hljóða upp á veru­lega hækkun launa­taxta og dæmi eru um að kröfur hljóði upp á um 20 pró­sent hækkun lægstu launa. Staðan sem uppi er á vinnu­mark­aði hefur að mati pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verið ein helsta ástæða fyrir því að halda stýri­vöxtum óbreyttum und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir lága verð­bólgu sem er undir 2,5...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár