Ekki gefið að launahækkanir skili auknum kaupmætti

Það er alls ekki sjálf­gefið að miklar nafn­launa­hækk­anir skili sér í auknum kaup­mætti, en það er nokkuð víst að þróun nafn­launa eins og hún var 2011 er lík­leg til að kynda undir verð­bólgu, leiða af sér vaxta­hækk­anir, hækka fjár­magns­kostnað almenn­ings og fyr­ir­tækja, lækka raun­tekjur ríkis og sveit­ar­fé­laga og draga úr sam­keppn­is­hæfni hag­kerf­is­ins í gegnum sterkara raun­gengi.

Þetta er mat grein­ing­ar­deildar Arion banka sem fjallar um stöð­una á vinnu­mark­aði í grein sem ber yfir­skrift­ina „Hvað má læra af fyrri kjara­samn­ingum?“. Í grein­inni segir að frá sjón­ar­hóli laun­þega skipti mestu máli að kom­andi kjara­samn­ingar skili ásætt­an­legri kaup­mátt­ar­aukn­ingu. Á móti vilji atvinnu­rek­endur ekki sjá hækkun launa­kostn­aðar umfram verð­mæta­sköpun, enda versni afkoma af rekstri sem því nemur og verði aðeins komið í veg fyrir verri afkomu með hækkun verð­lags eða fækkun starfa. „Þar gildir einu hvort atvinnu­rek­and­inn er einka­geir­inn eða hið opin­bera. Það sem eng­inn vill sjá er að kjara­bæt­urnar glat­ist í hækkun verð­lags, að verð­bólgu­skot leiði af sér hækkun verð­tryggðra skulda og að Seðla­bank­inn telji sig nauð­beygðan til að hækka vexti ofan í við­kvæman hag­vöxt. Það er því vert að skoða þann lær­dóm sem draga má af síð­ustu tveimur kjara­samn­ingum og að hve miklu leyti launa­hækk­anir hafi skilað sér í auknum kaup­mætti,“ segir grein­ing­ar­deild bank­ans.

Meiri kaupmáttur í fyrra en 2011

Rifjað er upp að kjara­samn­ing­arnir 2011 fólu í sér 11,4 pró­senta almenna launa­hækkun yfir þriggja ára tíma­bil. Frá maí 2011 til maí 2013 hækk­aði launa­vísi­talan um 17,1 pró­sent. Til sam­an­burðar byggðu samn­ing­arnir 2014 á 2,8 almennri launa­hækkun yfir eitt ár. Á sama tíma hækk­aði launa­vísi­talan um 6,6 pró­sent.


Sam­an­burður á kaup­mátt­ar­aukn­ingu á þessum tveimur tíma­bilum sýnir að kaup­máttur jókst að með­al­tali um 2,9 pró­sent á ári frá 2011 til 2013 en um 3,7 pró­sent árið 2014. Að mati grein­ing­ar­deild­ar­innar þarf hækkun nafn­launa að vera í takt við fram­leiðni­vöxt í hag­kerf­inu til lengri tíma litið, að öðrum kosti er verð­stöð­ug­leika ógnað.

Hægir á bata við miklar launahækkanir

Nýlegar tölur úr vinnu­mark­aðs­könnun Hag­stof­unnar eru til umfjöll­unar í grein­inni og eru sagðar góðar fréttir. „Þar kemur fram að fjöldi starf­andi á vinnu­mark­aði í jan­úar jókst um 5,4% frá sama tíma í fyrra. Einnig jókst með­al­vinnu­tími um 1,8% frá síð­asta ári og heild­ar­vinnu­stundum fjölg­aði því um 7,3% frá jan­úar í fyrra. Þetta eru jákvæð tíð­indi og merki um að öfl­ugur bati sé á vinnu­mark­aði í byrjun árs þótt vissu­lega geti verið sveiflur í mán­að­ar­legum tölum. Tölurnar benda til þess að þó nokkur eft­ir­spurn sé eftir vinnu­afli en aukn­ing heild­ar­vinnu­stunda gefur vís­bend­ingar um aukin umsvif í hag­kerf­inu og er ágæt vís­bend­ing um und­ir­liggj­andi hag­vaxt­ar­þróun.“


Miklar launa­hækk­anir geti þó orsakað verð­bólgu­þrýst­ing, velti fyr­ir­tækin launa­kostn­aði út í verð­lagið. „Önnur afleið­ing af miklum launa­hækk­unum kann því að sú að fyr­ir­tæki dragi úr ráðn­ingum eða jafn­vel segi upp starfs­fólki til að draga úr kostn­aði í stað þess að ýta auknum launa­kostn­aði út í verð­lag. Það getur því orðið bakslag á þeim bata á vinnu­mark­aði sem við höfum séð und­an­farin miss­eri. Eftir kjara­samn­inga 2011 hægði nokkuð á fjölgun vinnu­stunda og fjölda starf­andi á vinnu­mark­aði líkt og sést á mynd­inni að ofan. Upp úr ára­mótum 2013 tók heild­ar­vinnu­stundum svo aftur að fjölga og hefur verið nokkuð öfl­ugur bati síðan þá. Nið­ur­staða kjara­samn­inga mun því ekki ein­ungis hafa áhrif á verð­stöð­ug­leika og raun­gengi heldur einnig fjölgun starfa á vinnu­mark­aði og atvinnu­leysi. Of miklar launa­hækk­anir geta því hægt á þeim bata sem við höfum séð und­an­farið og við samn­ings­gerð þarf að hafa í huga þau áhrif sem nið­ur­staða kjara­samn­inga mun hafa á verð­lag, raun­gengi og þróun vinnu­mark­aðar.“


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferð til fjár

SkýringFerð til fjár

Fjögur gröf sem útskýra fast­eigna­mark­að­inn

Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, árs­fjórð­ungs­legri skýrslu Seðla­banka Íslands, er nokkuð fjallað um þróun fast­eigna­verðs og þær hækk­anir sem orðið hafa á íbúða­verði að und­an­förnu. Þróunin á Íslandi er meðal ann­ars borin saman við önnur lönd en í skýrsl­unni segir að ekki séu merki um bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum í heild. Engu að síður sé fast­eigna­verð orðið hátt á flesta mæli­kvarða í...
FréttirFerð til fjár

Vænt­ingar dvína í skugga kjara­við­ræðna

Vænt­inga­vísi­tala Gallups lækk­aði um 17 stig í apr­íl­mán­uði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísi­töl­unni milli mán­aða í tæp tvö ár. Vísi­talan fór yfir 100 stig í mars síð­ast­liðnum en vísi­talan er mæld á bil­inu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafn­margir aðspurðra neyt­enda eru bjart­sýnir og svart­sýnir á stöðu og horfir...
FréttirFerð til fjár

Per­sónu­af­slátt­ur­inn er 610.825 krónur í ár

Per­sónu­af­sláttur ein­stak­linga er 610.825 krónur fyrir árið 2015 eða 50.902 krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er hækkun um 4.848 krónur frá árinu 2014, eða um 404 krónur á mán­uði. Hækkunin nemur 0,8% en hún er lögum sam­kvæmt í takt við verð­bólgu­þróun. Fjallað er um per­sónu­af­slátt, stað­greiðslu og trygg­inga­gjald árs­ins 2015 í grein í Tíund, frétta­blaði Rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur að...
FréttirFerð til fjár

Verð­bólgan étur kaup­mátt­inn

Hækkun verð­lags í mars­mán­uði varð til þess að kaup­máttur launa dróst saman um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa, eins og hann mælist sam­kvæmt vísi­tölu Hag­stof­unnar, hafði hækkað nán­ast stans­laust í tólf mán­uði en dróst núna saman. Árs­hækkun kaup­máttar launa mælist engu að síður um 4 pró­sent, en árs­hækkun mæld­ist 5,6 pró­sent í febr­úar. Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu launa í...
FréttirFerð til fjár

Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari en aðrir

Íslenskir stúd­entar eru sam­vinnu­þýð­ari en banda­rískir stúd­entar og leggja sig harðar fram við að halda hópa­vinnu gang­andi. Ýmsir félags­þættir benda til að Íslend­ingar sam­svari sig almennt betur í hópi fólks og séu það sem kallað er á ensku group minded á kostnað ein­stak­lings­hyggju. [caption id="attachment_26395" align="alignleft" width="139"] Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir.[/caption]Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar sem Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir hefur unnið að...
SkýringFerð til fjár

Deilt um sam­band launa­hækk­ana og verð­bólgu

Kröfur margra stétt­ar­fé­laga í yfir­stand­andi kjara­deilum á vinnu­mark­aði hljóða upp á veru­lega hækkun launa­taxta og dæmi eru um að kröfur hljóði upp á um 20 pró­sent hækkun lægstu launa. Staðan sem uppi er á vinnu­mark­aði hefur að mati pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verið ein helsta ástæða fyrir því að halda stýri­vöxtum óbreyttum und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir lága verð­bólgu sem er undir 2,5...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár