Kaupmáttur Íslendinga: Hærri laun en minna svigrúm til neyslu

Gylfi Magn­ús­son, pró­fessor í hag­fræði og dós­ent við Háskóla Íslands, segir það ekki skrýtið þótt ein­hverjir skynji launa­þróun í land­inu öðru­vísi en vísi­tala Hag­stof­unnar yfir kaup­mátt launa gefi til kynna. Í dag eru lands­menn að greiða upp lán, öfugt við mikla lán­töku fyrir hrunið, sem þýðir minna svig­rúm til neyslu. Almennt fer þó staða heim­ila batn­andi og hefur gert frá árinu 2010, segir Gylfi.

Í gær birt­ist frétt á vef Kjarnans um kaup­mátt launa sem hefur aldrei mælst hærri en í jan­úar 2015. Vísitala kaup­máttar launa hefur hækkað um 5,5 pró­sent á síð­ustu tólf mán­uðum. Það þýðir, eða ætti að þýða, að launa­fólk getur að jafn­aði keypt 5,5 pró­sentum meira af vörum og þjón­ustu fyrir launin sín í dag en það gerði fyrir ári síðan.


Mörgum fannst fréttin ekki koma heim og saman við eigin raun­veru­leika. Gylfi Magn­ús­son var því spurður að því hvort það geti virki­lega verið að kaup­máttur sé í dag meiri en hann var fyrir efna­hags­hrunið 2008.

Misjafnt eftir hópum

„Það er út af fyrir sig ekk­ert skrýtið þótt ein­hverjir, og jafn­vel margir, skynji launa­þróun öðru­vísi en vísi­tölu kaup­máttar launa. Hluti skýr­ing­ar­innar liggur í því að launa­taxtar og ráð­stöf­un­ar­tekjur eru ekki það sama. Það munar raunar tals­verðu vegna þess að fjár­magnstekjur voru mun hærri í bólunni, en dreifð­ust raunar mjög mis­jafnt. Jafn­framt dróst yfir­vinna tals­vert saman í krís­unni,“ segir Gylfi í svari við skrif­legri fyr­ir­purn Kjarnans og Stofn­unar um fjár­mála­læsi.


Gylfi segir það sama gilda um laun og fjár­magnstekjur, þau séu mis­jöfn milli hópa og þótt meðal-launa­taxtar hækki örar en verð­lag þá eigi það ekki við um alla hópa. Sama gildi um útgjalda­hlið­ina. „Þeir sem eru á leigu­mark­aði, og eru ef til vill að reyna að skrapa saman fyrir fyrsta hús­næði, eiga mun erf­ið­ara upp­dráttar en þeir sem búa í eigin hús­næði, þótt skuld­setn­ingin skipti auð­vitað máli fyrir þann hóp. Vísitala neyslu­verðs [sem mælir verð­bólgu] sýnir ekki endi­lega mjög vel útgjalda­þróun hjá öllum, hún er líka með­al­tal eins og launa­vísi­talan,“ segir Gylfi en vísi­tala kaup­máttar launa ræðst af launa­þróun (þ.e. launa­vísi­töl­unni) ann­ars vegar og verð­bólgu­þróun hins vegar. „Frávik frá með­al­tali skipta ekki minna máli en með­al­tölin sjálf,“ segir Gylfi.

Neyslan var fjármögnuð með lánum

Vísitala kaup­máttar launa var í met­hæðum frá jan­úar 2007 til mars 2008, þegar hún stóð í kringum 120 stig. Eftir mikla lækkun sam­hliða efna­hag­skrís­unni, þá tók vísi­talan að hækka á ný um mitt ár 2010 og hefur hækkað ört síð­ustu mán­uði. Eins og fyrr segir hefur hún aldrei verið hærri en í dag, eða 121,9 stig.


Þróun vísi­tölu kaup­máttar launa frá jan­úar 2005 til jan­úar 2015

|

Create infographics

Þýðir þetta að kaup­máttur lands­manna er, að með­al­tali, meiri í dag en hann var árið 2007?


„Rétt er að hafa í huga að í bólunni jókst mjög skuld­setn­ing heim­ila, það er þau voru að fjár­magna neyslu að ein­hverju marki með lánum [en ekki launum]. Nú eru heim­ilin þvert á móti að með­al­tali að greiða niður lán, sem þýðir vita­skuld að svig­rúm til neyslu er minna en ella, og fólk skynjar það vænt­an­lega í ein­hverjum mæli sem lægri tekjur, þótt þetta sé auk­inn sparn­aður frekar en lægri tekjur,“ segir Gylfi og bætir við að lokum að allt þetta breyti því ekki að staða heim­ila fari almennt batn­andi og hafi gert frá árinu 2010. „En á meðan það eru vænt­ingar um meiri eða örari bata þá verða ein­hverjir, jafn­vel margir, óánægðir,“ segir hann.

Munurinn á launum og ráðstöfunartekjum

Hagstofa Íslands birtir mán­að­ar­lega þróun kaup­máttar launa. Kaup­máttur sýnir hversu mikið af vöru og þjón­ustu er hægt að kaupa fyrir laun. Óbreyttur kaup­máttur frá fyrra ári þýðir að hægt er að kaupa sam­bæri­lega vöru­körfu og fyrir ári. Með þessum hætti er litið til launa­þró­unar í land­inu að teknu til­liti til verð­lags­breyt­inga, þ.e. verð­bólg­unnar. Lág verð­bólga á Íslandi und­an­farið ár auk launa­hækk­ana hefur þannig áhrif til hækk­unar á vísi­tölu kaup­máttar launa.


Árlega birtir Hag­stofan síðan vísi­tölu kaup­máttar ráð­stöf­un­ar­tekna. Þar er tekið til­lit til fleiri þátta en heild­ar­launa, svo sem ann­arra tekna og til­færslna eins og barna- og vaxta­bóta, að frá­dregnum sköttum. Litið er til skatta­fram­tala við útreikn­ing kaup­máttar ráð­stöf­un­ar­tekna og eru nýj­ustu tölur Hag­stof­unnar fyrir árið 2013.


Kjarninn og Stofnun um fjár­mála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítar­lega um heim­il­is­fjár­mál sam­hliða þátt­unum Ferð til fjár, sem sýndir voru á RÚV. Mark­miðið: Að stuðla að betra fjár­mála­læsi hjá lands­mönnum! Fylgstu með á Facebook-síðu Ferðar til fjár.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferð til fjár

SkýringFerð til fjár

Fjögur gröf sem útskýra fast­eigna­mark­að­inn

Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, árs­fjórð­ungs­legri skýrslu Seðla­banka Íslands, er nokkuð fjallað um þróun fast­eigna­verðs og þær hækk­anir sem orðið hafa á íbúða­verði að und­an­förnu. Þróunin á Íslandi er meðal ann­ars borin saman við önnur lönd en í skýrsl­unni segir að ekki séu merki um bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum í heild. Engu að síður sé fast­eigna­verð orðið hátt á flesta mæli­kvarða í...
FréttirFerð til fjár

Vænt­ingar dvína í skugga kjara­við­ræðna

Vænt­inga­vísi­tala Gallups lækk­aði um 17 stig í apr­íl­mán­uði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísi­töl­unni milli mán­aða í tæp tvö ár. Vísi­talan fór yfir 100 stig í mars síð­ast­liðnum en vísi­talan er mæld á bil­inu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafn­margir aðspurðra neyt­enda eru bjart­sýnir og svart­sýnir á stöðu og horfir...
FréttirFerð til fjár

Per­sónu­af­slátt­ur­inn er 610.825 krónur í ár

Per­sónu­af­sláttur ein­stak­linga er 610.825 krónur fyrir árið 2015 eða 50.902 krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er hækkun um 4.848 krónur frá árinu 2014, eða um 404 krónur á mán­uði. Hækkunin nemur 0,8% en hún er lögum sam­kvæmt í takt við verð­bólgu­þróun. Fjallað er um per­sónu­af­slátt, stað­greiðslu og trygg­inga­gjald árs­ins 2015 í grein í Tíund, frétta­blaði Rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur að...
FréttirFerð til fjár

Verð­bólgan étur kaup­mátt­inn

Hækkun verð­lags í mars­mán­uði varð til þess að kaup­máttur launa dróst saman um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa, eins og hann mælist sam­kvæmt vísi­tölu Hag­stof­unnar, hafði hækkað nán­ast stans­laust í tólf mán­uði en dróst núna saman. Árs­hækkun kaup­máttar launa mælist engu að síður um 4 pró­sent, en árs­hækkun mæld­ist 5,6 pró­sent í febr­úar. Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu launa í...
FréttirFerð til fjár

Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari en aðrir

Íslenskir stúd­entar eru sam­vinnu­þýð­ari en banda­rískir stúd­entar og leggja sig harðar fram við að halda hópa­vinnu gang­andi. Ýmsir félags­þættir benda til að Íslend­ingar sam­svari sig almennt betur í hópi fólks og séu það sem kallað er á ensku group minded á kostnað ein­stak­lings­hyggju. [caption id="attachment_26395" align="alignleft" width="139"] Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir.[/caption]Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar sem Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir hefur unnið að...
SkýringFerð til fjár

Deilt um sam­band launa­hækk­ana og verð­bólgu

Kröfur margra stétt­ar­fé­laga í yfir­stand­andi kjara­deilum á vinnu­mark­aði hljóða upp á veru­lega hækkun launa­taxta og dæmi eru um að kröfur hljóði upp á um 20 pró­sent hækkun lægstu launa. Staðan sem uppi er á vinnu­mark­aði hefur að mati pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verið ein helsta ástæða fyrir því að halda stýri­vöxtum óbreyttum und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir lága verð­bólgu sem er undir 2,5...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár