Nýr námslánasjóður: Mun hærri vextir en hjá LÍN

Vextir á náms­lánum hjá Fram­tíð­inni, nýstofn­uðum náms­lána­sjóði á vegum fjár­mála­fyr­ir­tæk­is­ins Gamma, eru mun hærri en hjá Lána­sjóði íslenskra náms­manna, LÍN. Hjá Fram­tíð­inni er hægt að velja um tvenns­konar lána­form, ýmist óverð­tryggða 8,75% breyti­lega vexti eða verð­tryggða 6,45% vexti. Vextir á lánum LÍN eru 1% verð­tryggðir. Námsmenn ættu því fyrst að leita fjár­mögn­unar þar, og eru þeir hvattir til þess á heima­síðu Fram­tíð­ar­innar.

Vextir Í námi Eftir náms­lok
Óverð­tryggðir breyti­legir vextir 9,75% 8,75%
Verð­tryggðir fastir vextir 7,45% 6,45%

„Vext­irnir á lánum Fram­tíð­ar­innar ráð­ast af kostn­aði við að fjár­magna lánin. Vext­irnir eru hærri en vextir lána LÍN, það liggur fyrir, en ef litið er til ann­ars konar láns­við­skipta þar sem vextir ráð­ast á mark­aði finnst mér þeir vera sann­gjarnir, sér­stak­lega í ljósi þess að ekki er kraf­ist ábyrgð­ar­manna né veða,“ segir Hlíf Sturlu­dóttir, stjórn­ar­for­maður sjóðs­ins, í skrif­legu svari, spurð um hvað ákvarði lána­kjör hjá Fram­tíð­inni og hvort hún telji vext­ina vera háa. Hlíf svar­aði nokkrum spurn­ingum Kjarnans skrif­lega.


Fram­tíðin náms­lána­sjóður tók til starfa í dag. Hámarks­lán sem náms­maður getur tekið hjá sjóð­inum er þrettán millj­ónir og end­ur­greiðslu­tím­inn, sem hefst einu ári eftir að námi lýkur, er tólf ár. Fram kom í til­kynn­ingu frá sjóð­inum að hann verður í fyrstu fjár­magn­aður í gegnum skulda­bréfa­sjóði í stýr­ingu Gamma en stefnt er að því að fjár­magna hann með útgáfu skulda­bréfa.

Fá greitt óháð árangri

Íslenskir náms­menn þekkja vel þau skil­yrði sem þarf að upp­fylla til þess að fá greidd út náms­lán frá LÍN. Sýna þarf fram á náms­ár­angur og eru lánin því greidd eftir að önn lýkur og ein­kunnir liggja fyrir. Skilyrði Fram­tíð­ar­innar eru ekki jafn ströng, en náms­menn eru þó beðnir um að skila inn upp­lýs­ingum um náms­fram­vindu. Þegar sótt er um lán þarf auk þess að skila inn gögnum svo hægt sé að fram­kvæmda greiðslu­mat á umsækj­anda.


„Fram­færsla er greidd út mán­að­ar­lega og upp­hæðir eru ekki tengdar ein­inga­fjölda. Náms­maður sem fær t.d. sam­þykkt lán á haustönn fær lánið greitt út áður en nið­ur­stöður jóla­prófa liggja fyrir. Við biðjum náms­menn hins vegar um að skila inn upp­lýs­ingum um náms­fram­vindu áður en við hefjum útgreiðslur á vor­önn, ef sótt var um fyrir árið í heild sinni,“ segir Hlíf.

Skapa hvata til að klára námið

Athygli vekur að lána­kjör hjá Fram­tíð­inni eru lak­ari þegar lán­tak­inn er enn í námi, en vext­irnir lækka um eina pró­sentu þegar námi lýkur. Hlíf segir þetta gert til þess að skapa hvata. „Við vildum skapa hvata fyrir náms­menn að klára próf­gráðuna með því að lækka vexti við náms­lok. Eftir það tekur við 12 mán­aða greiðslu­hlé þar til end­ur­greiðslur hefj­ast. End­ur­greiðslu­tíma­bil er 12 ár og þá gilda lægri vext­irnir,“ segir hún.


Í til­kynn­ingu um stofnun sjóðs­ins í dag sagði að náms­lán Fram­tíð­ar­innar væru í boði fyrir alla náms­menn. „Hér er um við­bót­ar­val­kost að ræða fyrir þá sem þurfa að fjár­magna kostn­að­ar­samt nám, til dæmis erlendis, eða hafa hug á að mennta sig frekar eftir nokkur ár á vinnu­mark­aði eða með­fram vinnu,“ sagði í til­kynn­ing­unni. Haft var eftir Hlíf að stofnun sjóð­sns fjölgi mögu­leikum náms­manna til að kosta nám sitt. „Það er til hags­bóta fyrir ein­stak­ling­ana sjálfa að fjár­festa í menntun og um leið sam­fé­lagið allt enda eykst sam­keppn­is­hæfni Íslands með auk­inni menntun,“ sagði hún.


Frétt Kjarnans um stofnun sjóðs­ins.


Kjarninn og Stofnun um fjár­mála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítar­lega um heim­il­is­fjár­mál sam­hliða þátt­unum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vikur. Mark­miðið: Að stuðla að betra fjár­mála­læsi hjá lands­mönnum! Næsti þáttur er á dag­skrá fimmtu­dag­inn 19. febr­úar. Fylgstu með á Facebook-síðu Ferðar til fjár.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferð til fjár

SkýringFerð til fjár

Fjögur gröf sem útskýra fast­eigna­mark­að­inn

Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, árs­fjórð­ungs­legri skýrslu Seðla­banka Íslands, er nokkuð fjallað um þróun fast­eigna­verðs og þær hækk­anir sem orðið hafa á íbúða­verði að und­an­förnu. Þróunin á Íslandi er meðal ann­ars borin saman við önnur lönd en í skýrsl­unni segir að ekki séu merki um bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum í heild. Engu að síður sé fast­eigna­verð orðið hátt á flesta mæli­kvarða í...
FréttirFerð til fjár

Vænt­ingar dvína í skugga kjara­við­ræðna

Vænt­inga­vísi­tala Gallups lækk­aði um 17 stig í apr­íl­mán­uði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísi­töl­unni milli mán­aða í tæp tvö ár. Vísi­talan fór yfir 100 stig í mars síð­ast­liðnum en vísi­talan er mæld á bil­inu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafn­margir aðspurðra neyt­enda eru bjart­sýnir og svart­sýnir á stöðu og horfir...
FréttirFerð til fjár

Per­sónu­af­slátt­ur­inn er 610.825 krónur í ár

Per­sónu­af­sláttur ein­stak­linga er 610.825 krónur fyrir árið 2015 eða 50.902 krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er hækkun um 4.848 krónur frá árinu 2014, eða um 404 krónur á mán­uði. Hækkunin nemur 0,8% en hún er lögum sam­kvæmt í takt við verð­bólgu­þróun. Fjallað er um per­sónu­af­slátt, stað­greiðslu og trygg­inga­gjald árs­ins 2015 í grein í Tíund, frétta­blaði Rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur að...
FréttirFerð til fjár

Verð­bólgan étur kaup­mátt­inn

Hækkun verð­lags í mars­mán­uði varð til þess að kaup­máttur launa dróst saman um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa, eins og hann mælist sam­kvæmt vísi­tölu Hag­stof­unnar, hafði hækkað nán­ast stans­laust í tólf mán­uði en dróst núna saman. Árs­hækkun kaup­máttar launa mælist engu að síður um 4 pró­sent, en árs­hækkun mæld­ist 5,6 pró­sent í febr­úar. Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu launa í...
FréttirFerð til fjár

Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari en aðrir

Íslenskir stúd­entar eru sam­vinnu­þýð­ari en banda­rískir stúd­entar og leggja sig harðar fram við að halda hópa­vinnu gang­andi. Ýmsir félags­þættir benda til að Íslend­ingar sam­svari sig almennt betur í hópi fólks og séu það sem kallað er á ensku group minded á kostnað ein­stak­lings­hyggju. [caption id="attachment_26395" align="alignleft" width="139"] Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir.[/caption]Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar sem Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir hefur unnið að...
SkýringFerð til fjár

Deilt um sam­band launa­hækk­ana og verð­bólgu

Kröfur margra stétt­ar­fé­laga í yfir­stand­andi kjara­deilum á vinnu­mark­aði hljóða upp á veru­lega hækkun launa­taxta og dæmi eru um að kröfur hljóði upp á um 20 pró­sent hækkun lægstu launa. Staðan sem uppi er á vinnu­mark­aði hefur að mati pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verið ein helsta ástæða fyrir því að halda stýri­vöxtum óbreyttum und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir lága verð­bólgu sem er undir 2,5...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár