Framtíðin nýr námslánasjóður - Lánar að hámarki 13 milljónir

Fram­tíðin er nýr náms­lána­sjóður sem hóf göngu sína í dag og veitir háskóla­nemum bæði fram­færslu- og skóla­gjalda­lán. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Fram­tíð­inni. Fram­tíðin er fjár­mögnuð í gegnum skulda­bréfa­sjóði sem eru í stýr­ingu hjá fjár­mála­fyr­ir­tæk­inu GAMMA. Að baki skulda­bréfa­sjóð­unum standa stofn­ana­fjár­festar eins og líf­eyr­is­sjóðir og trygg­inga­fé­lög, eigna­stýr­ingar og almennir fjár­festar.

Hámarks­lán er þrettán millj­ónir, en lág­markið 500 þús­und, en og end­ur­greiðslu­tím­inn er tólf ár. Byrjað er að greiða lánin til baka einu ári eftir að námi er lokið.

Allir náms­menn sem ætla í háskóla­nám á Íslandi eða erlendis geta sótt um náms­lán hjá Fram­tíð­inni. Einnig er starfs­nám, end­ur­menntun og nám með vinnu á Íslandi láns­hæft, að því er fram kemur í til­kynn­ingu.

Fram­tíðin mun bjóða upp á tvær teg­undir náms­lána, ann­ars vegar óverð­tryggð lán með breyti­legum vöxtum og hins vegar verð­tryggð lán með föstum vöxtum. Sjóð­ur­inn áætlar að veita nokkur hund­ruð náms­mönnum lán á ári.

Vaxta­kjörin eru eft­ir­far­andi, sam­kvæmt því sem fram kemur á vef sjóðs­ins.

Vextir Í námi Eftir náms­lok
Óverð­tryggðir breyti­legir vextir 9,75% 8,75%
Verð­tryggðir fastir vextir 7,45% 6,45%

Þetta eru sam­bæri­legir vextir og bjóð­ast við­skipta­vinum bank­anna til kaupa á bílum, en hámarks­end­ur­greiðslu­tími þeirra lána er sjö ár.

Námsmenn sem eru með lán hjá LÍN, sem lánar náms­mönnum verð­tryggt til lengri tíma með nið­ur­greiddum kjörum af rík­is­sjóði, geta einnig sótt um lán hjá Fram­tíð­inni. „Hér er um við­bót­ar­val­kost að ræða fyrir þá sem þurfa að fjár­magna kostn­að­ar­samt nám, til dæmis erlendis, eða hafa hug á að mennta sig frekar eftir nokkur ár á vinnu­mark­aði eða með­fram vinnu,“ segir í til­kynn­ingu frá sjóðnum.

Hlíf Sturlu­dóttir, stjórn­ar­for­maður Fram­tíð­ar­innar, segir að stofnun lána­sjóðs­ins fjölgi mögu­leikum náms­manna til að kosta nám sitt, hvort sem um er að ræða skjóla­gjöld eða hærri fram­færslu meðan á námi stendur. „Það er til hags­bóta fyrir ein­stak­ling­ana sjálfa að fjár­festa í menntun og um leið sam­fé­lagið allt enda eykst sam­keppn­is­hæfni Íslands með auk­inni menntun,“ segir hún í til­kynn­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár