Tinna Laufey útskýrir vexti og tímavirði peninga

„Ef við tökum bíl á bíla­leigu þá borgum við fyrir hann leigu. Það er ekki þannig að við getum sagt: Ég fæ bíl­inn og skila honum til baka eins og ég fékk hann. Við borgum fyrir afnotin. Sama gildir með fjár­muni. Ef ein­stak­lingur fær lán þá borgar hann leigu fyrir að nota þessa pen­inga. En við köllum það ekki leigu heldur vexti.“ Þetta sagði Tinna Laufey Ásgeirs­dóttir þegar hún útskýrði vexti og tíma­virði pen­inga í þátt­unum Ferð til fjár á RÚV.

Tinna Laufey sagði vexti þannig í ein­hverjum skiln­ingi vera leigu á pen­ingum. „Við þurfum að skila fjár­mun­unum til baka, en líka greiða leig­una, eða vext­ina, fyrir lánið,“ sagði hún. Þegar við tökum lán þá greiðum við gjald fyrir að fá pen­ing­ana lán­aða.

Þeir Breki Karlsson og Helgi Seljan, umsjón­ar­menn þátt­anna, tóku dæmi af manni sem skuld­aði félaga sínum tíu þús­und krónur. „Ímyndaðu þér að þú ert staddur í mið­bænum og hittir gamlan vin. Hann segir: Hvar er tíu þús­und kall­inn?“

[caption id="attachment_19758" align="alignnone" width="975"] „Ég skal láta þig fá 14 þús­und seinna ef ég má halda tíu þús­und kall­inum.“[/caption]

Félaginn segir á móti: „Ég get látið þig fá tíu þús­und krónur núna eða fengið að halda pen­ingnum lengur og látið þig fá 14 þús­und krónur næst þegar við hitt­umst.“

Ef lán­veit­and­inn sam­þykkir þennan samn­ing þá er hægt að segja að tíma­virði þess­ara pen­inga fyrir honum sé fjögur þús­und krónur, á þeim tíma sem líður milli dags­ins í dag og þar til þeir hitt­ast næst. Þessi tími er jafnan tal­inn í árum hjá bönk­unum og öðrum lána­stofn­unum, þ.e.a.s. þegar talað er um vexti þá er átt við vexti á einu ári. Í dæm­inu okkar eru vext­irnir 40%,. Það myndi þykja hátt leigu­verð á pen­ingum!

Traust skiptir máli


[caption id="attachment_19759" align="alignnone" width="986"] Dæmið lítur öðru­vísi út ef við teljum það ólík­legt að við fáum lánið nokkurn tím­ann til baka.[/caption]

Breki breytti dæm­inu og spurði Helga hvort hann myndi áfram lána tíu þús­und krón­urnar, gegn því að fá 14 þús­und til baka, ef lán­tak­inn væri ógæfu­kona. Það flækir stöð­una, því alls óvíst er hvort lán­veit­and­inn fá þá nokkuð af upp­hæð­inni greidda til baka. Traust skiptir því máli þegar vaxta­kjör og tíma­virði pen­inga er reiknað.

„Og ef að þetta væri til dæmis mamma þín þá mynd­irðu líta öðru­vísi á hlut­ina,“ spurði Breki og átti þá við að eflaust myndi Helgi þá veita góð kjör og ein­ungis biðja um lág­marks­vexti eða enga. „Jú, en þá myndi dæmi held ég snú­ast við,“ sagði Helgi.

Tengt efni:

Sam­an­burður á vaxta­kjörum á inn­láns­reikn­ingum bank­anna.

Kjarninn og Stofnun um fjár­mála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítar­lega um heim­il­is­fjár­mál sam­hliða þátt­unum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vikur. Mark­miðið: Að stuðla að betra fjár­mála­læsi hjá lands­mönnum! Næsti þáttur er á dag­skrá fimmtu­dag­inn 12. febr­úar. Fylgstu með á Facebook-síðu Ferðar til fjár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferð til fjár

SkýringFerð til fjár

Fjögur gröf sem útskýra fast­eigna­mark­að­inn

Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, árs­fjórð­ungs­legri skýrslu Seðla­banka Íslands, er nokkuð fjallað um þróun fast­eigna­verðs og þær hækk­anir sem orðið hafa á íbúða­verði að und­an­förnu. Þróunin á Íslandi er meðal ann­ars borin saman við önnur lönd en í skýrsl­unni segir að ekki séu merki um bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum í heild. Engu að síður sé fast­eigna­verð orðið hátt á flesta mæli­kvarða í...
FréttirFerð til fjár

Vænt­ingar dvína í skugga kjara­við­ræðna

Vænt­inga­vísi­tala Gallups lækk­aði um 17 stig í apr­íl­mán­uði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísi­töl­unni milli mán­aða í tæp tvö ár. Vísi­talan fór yfir 100 stig í mars síð­ast­liðnum en vísi­talan er mæld á bil­inu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafn­margir aðspurðra neyt­enda eru bjart­sýnir og svart­sýnir á stöðu og horfir...
FréttirFerð til fjár

Per­sónu­af­slátt­ur­inn er 610.825 krónur í ár

Per­sónu­af­sláttur ein­stak­linga er 610.825 krónur fyrir árið 2015 eða 50.902 krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er hækkun um 4.848 krónur frá árinu 2014, eða um 404 krónur á mán­uði. Hækkunin nemur 0,8% en hún er lögum sam­kvæmt í takt við verð­bólgu­þróun. Fjallað er um per­sónu­af­slátt, stað­greiðslu og trygg­inga­gjald árs­ins 2015 í grein í Tíund, frétta­blaði Rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur að...
FréttirFerð til fjár

Verð­bólgan étur kaup­mátt­inn

Hækkun verð­lags í mars­mán­uði varð til þess að kaup­máttur launa dróst saman um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa, eins og hann mælist sam­kvæmt vísi­tölu Hag­stof­unnar, hafði hækkað nán­ast stans­laust í tólf mán­uði en dróst núna saman. Árs­hækkun kaup­máttar launa mælist engu að síður um 4 pró­sent, en árs­hækkun mæld­ist 5,6 pró­sent í febr­úar. Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu launa í...
FréttirFerð til fjár

Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari en aðrir

Íslenskir stúd­entar eru sam­vinnu­þýð­ari en banda­rískir stúd­entar og leggja sig harðar fram við að halda hópa­vinnu gang­andi. Ýmsir félags­þættir benda til að Íslend­ingar sam­svari sig almennt betur í hópi fólks og séu það sem kallað er á ensku group minded á kostnað ein­stak­lings­hyggju. [caption id="attachment_26395" align="alignleft" width="139"] Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir.[/caption]Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar sem Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir hefur unnið að...
SkýringFerð til fjár

Deilt um sam­band launa­hækk­ana og verð­bólgu

Kröfur margra stétt­ar­fé­laga í yfir­stand­andi kjara­deilum á vinnu­mark­aði hljóða upp á veru­lega hækkun launa­taxta og dæmi eru um að kröfur hljóði upp á um 20 pró­sent hækkun lægstu launa. Staðan sem uppi er á vinnu­mark­aði hefur að mati pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verið ein helsta ástæða fyrir því að halda stýri­vöxtum óbreyttum und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir lága verð­bólgu sem er undir 2,5...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár