Samanburður á sparnaðarleiðum bankanna

Við­skipta­bank­arnir og Spari­sjóð­irnir bjóða upp á fjöl­marga, mis­mun­andi sparn­að­ar­reikn­inga, sam­tals yfir fimm­tíu tals­ins. Þegar kemur að vali á sparn­að­ar­reikn­ingi er spurn­ingin ein­föld: Hvaða reikn­ingur hentar mínum sparn­aði best?

Svarið er aðeins flókn­ara, en ekki svo. Hér eru nokkur atriði sem hafa ber í huga þegar við veljum reikn­ing fyrir sparnað. Sum atrið­anna eru vafa­laust aug­ljós­ari en önnur. Í töfl­unni fyrir neðan má síðan bera saman og skoða hvaða vaxta­kjör og bindi­tíma reikn­ing­arnir bera. Taflan mið­ast við upp­lýs­ingar fengnar af vef­síðum bank­anna í byrjun febr­úar 2015.

Allar leiðir hentar ekki öllum

Margir inn­láns­reikn­ing­anna eru sér­sniðnir að ákveðnum sparn­aði eða að ákveðnum ald­urs­hópi. Nöfn reikn­ing­anna gefa oft til kynna hvað um ræðir, en þó ekki alltaf. Sem dæmi eru Fram­tíð­ar­reikn­ingar Íslands­banka og Arion banka og Fram­tíð­ar­grunnur Lands­bank­ans handa börnum til 18 ára ald­urs. Það má síðan ímynda sér hvers konar sparn­aður á sér stað á reikn­ing­unum Hús­næð­is­sparn­aður hjá Íslands­banka og Fast­eigna­grunnur hjá Lands­bank­anum. Báðir reikn­ing­arnir eru auð­vitað handa þeim sem eru að safna fyrir íbúð.

Tími og upphæð hefur áhrif

Bindi­tími: Eftir því sem þú bindur pen­ing­anna lengur inn á banka­bók, því betri vextir fást hjá bank­anum. Bindi­tími getur verið allt frá engum eða örfáum dögum til 60 mán­aða, eða fimm ár.


Fjárhæð inn­láns: Flestar sparn­að­ar­leiðir krefj­ast engrar lág­marks­fjár­hæðar. Á því eru þó und­an­tekn­ingar og sumar sparn­að­ar­leiðir bank­anna eru aðeins fyrir fjár­hæðir hærri en til dæmis hund­rað þús­und krónur, fimm hund­ruð þús­und krónur eða ein milljón króna. Því hærri fjár­hæð sem þú sparar, því hærri vexti ber inn­láns­reikn­ing­ur­inn.


Þum­al­putta­reglan er því sú að vaxta­kjör batna eftir því sem bindi­tími leng­ist og fjár­hæð sparn­aðar hækkar.

Verðtryggt eða óverðtryggt?

Bindi­tími verð­tryggðs sparn­aðar er jafnan lengri en óverð­tryggðs. Lang­tíma­sparn­aður á borð við fram­tíð­ar­reikn­inga bank­anna er þannig verð­tryggður. Vilji maður verð­tryggja sparn­að­inn þá þarf að binda hann til að minnsta kosti 36 mán­aða.


Uppgefin vaxta­kjör á verð­tryggðum reikn­ingum eru lægri en á sam­bæri­legum, óverð­tryggðum reikn­ingum. Til þess að gera vaxta­kjör þess­ara ólíku sparn­að­ar­leiða sam­an­burð­ar­hæf er hægt að draga verð­bólg­una frá vaxta­kjörum óverð­tryggðra lána. Verð­bólgan er í dag 0,8% en rétt eins og fyrri dag­inn þá er ómögu­legt að spá fyrir um með fullri vissu hver verð­bólgan verður eftir nokkra mán­uði eða ár. Með því að binda sparifé sitt á verð­tryggðum reikn­ingum er það tryggt að verð­bólgan rýri ekki sparn­að­inn.

Samanburður á reikningum

Það er ýmis­legt sem þarf að hafa í huga þegar valin er sparn­að­ar­leið. Oft spörum við fyrir ein­hverju ákveðnu og bank­arnir bjóða leiðir ætl­aðar slíkum sparn­aði. Þá er til dæmis lík­legt að langur bindi­tími henti ein­fald­lega ekki. Sparn­aður til efri áranna gæti aftur á móti hentað vel til þess að binda til langs tíma, með verð­trygg­ingu og sem hæstum vöxtum.


Taka ber að taflan sýnir kjörin eins og þau birt­ast á vef­síðum bank­anna. Vaxta­kjör eru breyti­leg og upp­færa bank­arnir kjörin mán­að­ar­lega. Til þess að kynna sér þessar leiðir nánar eru frek­ari upp­lýs­ingar að finna á vef­síðum bank­anna og spari­sjóð­anna.



<a href='#'><img alt='Das­h­bo­ard 1 ' src='https:&#47;&#47;public.tableau.com&#47;static&#47;ima­ges&#47;Sp&#47;Sparnad­ar­reikn­ingar&#47;Das­h­bo­ard1&#47;1_rss.png' style='border: none' /></a>


Kjarninn og Stofnun um fjár­mála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítar­lega um heim­il­is­fjár­mál sam­hliða þátt­unum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vikur. Mark­miðið: Að stuðla að betra fjár­mála­læsi hjá lands­mönnum! Næsti þáttur er á dag­skrá fimmtu­dag­inn 12. febr­úar. Fylgstu með á Facebook-síðu Ferðar til fjár.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferð til fjár

SkýringFerð til fjár

Fjögur gröf sem útskýra fast­eigna­mark­að­inn

Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, árs­fjórð­ungs­legri skýrslu Seðla­banka Íslands, er nokkuð fjallað um þróun fast­eigna­verðs og þær hækk­anir sem orðið hafa á íbúða­verði að und­an­förnu. Þróunin á Íslandi er meðal ann­ars borin saman við önnur lönd en í skýrsl­unni segir að ekki séu merki um bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum í heild. Engu að síður sé fast­eigna­verð orðið hátt á flesta mæli­kvarða í...
FréttirFerð til fjár

Vænt­ingar dvína í skugga kjara­við­ræðna

Vænt­inga­vísi­tala Gallups lækk­aði um 17 stig í apr­íl­mán­uði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísi­töl­unni milli mán­aða í tæp tvö ár. Vísi­talan fór yfir 100 stig í mars síð­ast­liðnum en vísi­talan er mæld á bil­inu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafn­margir aðspurðra neyt­enda eru bjart­sýnir og svart­sýnir á stöðu og horfir...
FréttirFerð til fjár

Per­sónu­af­slátt­ur­inn er 610.825 krónur í ár

Per­sónu­af­sláttur ein­stak­linga er 610.825 krónur fyrir árið 2015 eða 50.902 krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er hækkun um 4.848 krónur frá árinu 2014, eða um 404 krónur á mán­uði. Hækkunin nemur 0,8% en hún er lögum sam­kvæmt í takt við verð­bólgu­þróun. Fjallað er um per­sónu­af­slátt, stað­greiðslu og trygg­inga­gjald árs­ins 2015 í grein í Tíund, frétta­blaði Rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur að...
FréttirFerð til fjár

Verð­bólgan étur kaup­mátt­inn

Hækkun verð­lags í mars­mán­uði varð til þess að kaup­máttur launa dróst saman um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa, eins og hann mælist sam­kvæmt vísi­tölu Hag­stof­unnar, hafði hækkað nán­ast stans­laust í tólf mán­uði en dróst núna saman. Árs­hækkun kaup­máttar launa mælist engu að síður um 4 pró­sent, en árs­hækkun mæld­ist 5,6 pró­sent í febr­úar. Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu launa í...
FréttirFerð til fjár

Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari en aðrir

Íslenskir stúd­entar eru sam­vinnu­þýð­ari en banda­rískir stúd­entar og leggja sig harðar fram við að halda hópa­vinnu gang­andi. Ýmsir félags­þættir benda til að Íslend­ingar sam­svari sig almennt betur í hópi fólks og séu það sem kallað er á ensku group minded á kostnað ein­stak­lings­hyggju. [caption id="attachment_26395" align="alignleft" width="139"] Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir.[/caption]Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar sem Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir hefur unnið að...
SkýringFerð til fjár

Deilt um sam­band launa­hækk­ana og verð­bólgu

Kröfur margra stétt­ar­fé­laga í yfir­stand­andi kjara­deilum á vinnu­mark­aði hljóða upp á veru­lega hækkun launa­taxta og dæmi eru um að kröfur hljóði upp á um 20 pró­sent hækkun lægstu launa. Staðan sem uppi er á vinnu­mark­aði hefur að mati pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verið ein helsta ástæða fyrir því að halda stýri­vöxtum óbreyttum und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir lága verð­bólgu sem er undir 2,5...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár