Bogi útskýrir vísitölu neysluverðs

Bogi Ágústs­son frétta­maður greindi frá hækkun vísi­tölu neyslu­verðs í síð­asta þætti Ferðar til fjár. Helga Seljan þótti frétta­lest­ur­inn heldur óskýr og bað Boga um að útskýra þetta betur, rétt eins og hann gerði þegar hann stöðv­aði Boga við að lesa upp heldur tor­skyldar fréttir um við­skipta­jöfnuð og gengi krón­unnar.

„Þetta kann að þykja flókið fyrst. Vísitala neyslu­verðs er í raun­inni mæl­ing á því hversu mikil verð­bólga er. Í hverjum mán­uði þá athugar Hag­stofan verð á yfir fjögur þús­und vöru­teg­undum og þjón­ustu. Ef að verð hefur hækkað, þá vegur það inn í vísi­töl­una sem hækkar. Ef að vöru­verð hefur lækkað, til dæmis ef bensín lækkar í verði, þá lækkar vísi­talan sem þýðir minni verð­bólgu,“ útskýrði Bogi.


Síð­ast­liðna mán­uði hefur verð­bólga á Íslandi, það er breyt­ing á vísi­tölu neyslu­verðs síð­ast­liðna tólf mán­uði, mælst afar lág. Við síð­ustu mæl­ingu var verð­bólgan 0,8 pró­sent, sem þýðir að almennt hefur verð­lag í land­inu hækkað um 0,8 pró­sent á tólf mán­aða tíma­bili. Eins og fram kom í nýlegri umfjöllun okkar um verð­breyt­ingar á Íslandi 2014, þá var afar mis­jafnt hvernig und­ir­liðir vísi­töl­unnar, það eru allar þær vörur og þjón­ustu­liðir sem Hag­stofan mælir í hverjum mán­uði, breytt­ust á árinu. Á meðan sykur og þjón­usta sér­fræði­lækna hækk­uðu um fimmt­ung, þá lækk­aði verð á sjón­varps­tækjum og sveppum tölu­vert.

Hefur áhrif á lánin

Eins og Íslend­ingar þekkja vel, þá hefur vísi­tala neyslu­verðs áhrif á verð­tryggð lán. „Þau eru miðuð við vísi­tölu neyslu­verðs. Ef að vísi­talan hækkar, þá hækkar höf­uð­stóll­inn á lán­inu þínu. Ef hún hækkar mikið, þá hækkar lánið,“ sagði Bogi við Helga.


Breyt­ingar á vísi­tölum neyslu­verðs með og án hús­næðis

|

Create infographics

Hér sést hvernig vísi­tala neyslu­verðs hefur breyst frá jan­úar 2014 til jan­úar 2015. Rauða línan mælir verð­breyt­ingar án hús­næðis en sú gula með hús­næði.


Á seinni mynd­inni má síðan sjá hvernig verð­bólgan, það er tólf mán­aða breyt­ing vísi­töl­unnar, hefur breyst frá árs­byrjun 2014. Ef ekki væri fyrir hækkun fast­eigna­verðs og tengdra liða, þá væri verð­hjöðnun en ekki verð­bólga á Íslandi.


Kjarninn og Stofnun um fjár­mála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítar­lega um heim­il­is­fjár­mál sam­hliða þátt­unum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vikur. Mark­miðið: Að stuðla að betra fjár­mála­læsi hjá lands­mönnum! Næsti þáttur er á dag­skrá fimmtu­dag­inn 5. febr­úar. Fylgstu með á Facebook-síðu Ferðar til fjár.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferð til fjár

SkýringFerð til fjár

Fjögur gröf sem útskýra fast­eigna­mark­að­inn

Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, árs­fjórð­ungs­legri skýrslu Seðla­banka Íslands, er nokkuð fjallað um þróun fast­eigna­verðs og þær hækk­anir sem orðið hafa á íbúða­verði að und­an­förnu. Þróunin á Íslandi er meðal ann­ars borin saman við önnur lönd en í skýrsl­unni segir að ekki séu merki um bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum í heild. Engu að síður sé fast­eigna­verð orðið hátt á flesta mæli­kvarða í...
FréttirFerð til fjár

Vænt­ingar dvína í skugga kjara­við­ræðna

Vænt­inga­vísi­tala Gallups lækk­aði um 17 stig í apr­íl­mán­uði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísi­töl­unni milli mán­aða í tæp tvö ár. Vísi­talan fór yfir 100 stig í mars síð­ast­liðnum en vísi­talan er mæld á bil­inu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafn­margir aðspurðra neyt­enda eru bjart­sýnir og svart­sýnir á stöðu og horfir...
FréttirFerð til fjár

Per­sónu­af­slátt­ur­inn er 610.825 krónur í ár

Per­sónu­af­sláttur ein­stak­linga er 610.825 krónur fyrir árið 2015 eða 50.902 krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er hækkun um 4.848 krónur frá árinu 2014, eða um 404 krónur á mán­uði. Hækkunin nemur 0,8% en hún er lögum sam­kvæmt í takt við verð­bólgu­þróun. Fjallað er um per­sónu­af­slátt, stað­greiðslu og trygg­inga­gjald árs­ins 2015 í grein í Tíund, frétta­blaði Rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur að...
FréttirFerð til fjár

Verð­bólgan étur kaup­mátt­inn

Hækkun verð­lags í mars­mán­uði varð til þess að kaup­máttur launa dróst saman um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa, eins og hann mælist sam­kvæmt vísi­tölu Hag­stof­unnar, hafði hækkað nán­ast stans­laust í tólf mán­uði en dróst núna saman. Árs­hækkun kaup­máttar launa mælist engu að síður um 4 pró­sent, en árs­hækkun mæld­ist 5,6 pró­sent í febr­úar. Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu launa í...
FréttirFerð til fjár

Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari en aðrir

Íslenskir stúd­entar eru sam­vinnu­þýð­ari en banda­rískir stúd­entar og leggja sig harðar fram við að halda hópa­vinnu gang­andi. Ýmsir félags­þættir benda til að Íslend­ingar sam­svari sig almennt betur í hópi fólks og séu það sem kallað er á ensku group minded á kostnað ein­stak­lings­hyggju. [caption id="attachment_26395" align="alignleft" width="139"] Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir.[/caption]Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar sem Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir hefur unnið að...
SkýringFerð til fjár

Deilt um sam­band launa­hækk­ana og verð­bólgu

Kröfur margra stétt­ar­fé­laga í yfir­stand­andi kjara­deilum á vinnu­mark­aði hljóða upp á veru­lega hækkun launa­taxta og dæmi eru um að kröfur hljóði upp á um 20 pró­sent hækkun lægstu launa. Staðan sem uppi er á vinnu­mark­aði hefur að mati pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verið ein helsta ástæða fyrir því að halda stýri­vöxtum óbreyttum und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir lága verð­bólgu sem er undir 2,5...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár