Bogi útskýrir viðskiptajöfnuðinn

Í öðrum þætti af Ferð til fjár trufl­aði Helgi Seljan, annar umsjón­ar­manna þátt­anna, Boga Ágústs­son eina ferð­ina enn við að lesa upp kvöld­fréttir. „Fyr­ir­gefðu Bogi, við­skipta­jöfn­uður,“ sagði Helgi með spurn­ar­tón. Bogi var þá að greina frá nýjum upp­lýs­ingum frá Seðla­bank­anum um greiðslu­jöfnuð við útlönd á fjórða árs­fjórð­ungi.

„Við­skipta­jöfn­uður mælir mun­inn á verð­mæti inn- og útflutn­ings. Ef við flytjum út fyrir tíu millj­arða og inn fyrir níu millj­arða þá er við­skipta­jöfn­uð­ur­inn hag­stæður um einn millj­arð króna,“ sagði Bogi. „Þetta er mæli­tæki til þess að fylgj­ast streymi pen­inga inn og út úr land­inu. Við­skipta­jöfn­uð­ur­inn tekur til­lit til bæði einka­að­ila og opin­bera aðila.“

Eins og hann benti Helga á, þá þarf við­skipta­halli ekki endi­lega að vera slæmur. „Það getur verið merki um að ein­hver sé að fjár­festa í ein­hverju, sem síðan mun leiða til meiri útflutn­ings. Þá jafn­ast við­skipta­hall­inn út,“ sagði Bogi.

Auk þess að mæla mun á verð­mæti inn- og útflutn­ings þá tekur við­skipta­jöfn­uður til­lit til greiðslna á vöxtum, arði og lánum milli inn­lendra og erlendra aðila. Kallast það jöfn­uður frum­þátta­tekna og saman kall­ast pen­inga­flæðið greiðslu­jöfn­uður.

Skiptir þetta mál?

„Nei, í raun­inni ekki,“ sagði hann síðan þegar Helgi spurði hvort við­skipta­jöfn­uð­ur­inn skipti hann þá engu máli í dag­legu lífi. „En ef við­skipta­hall­inn er við­var­andi þá getur það leitt til þess að krónan veik­ist, við gætum þurft að taka lán til þess að bæta upp við­skipta­hall­ann og að allt sem við flytjum inn frá útlöndum hækki í verði,“ sagði Bogi.

Gengi krón­unnar hefur mikið að segja um verð­mæti útflutn­ings­varn­ings og verð á inn­fluttum vörum. Sterkara gengi krón­unnar þýðir að minna fæst fyrir útflutn­ing­inn, ódýr­ara er að flytja inn og ýtir þannig sterkara gengi undir við­skipta­halla. Þessi þróun sást vel fyrir efna­hags­hrunið 2008, eins og sjá má á graf­inu hér fyrir neðan. Súlurnar sýna við­skipta­jöfn­uð­inn á hverju ári frá 2004, mik­ill við­skipta­halli var á árunum fyrir hrun: verð­mæti útflutn­ings­vara og þjón­ustu var miklu minna en verð­mæti varn­ings sem var fluttur til lands­ins.

Við­skipta­jöfn­uður 2004 - 2014 |Create infographics

Með veik­ara gengi, auknu virði útflutn­ings og minni inn­flutn­ingi, þá dróst við­skipta­halli veru­lega saman eftir hrun og var jákvæður árið 2013. Allt útlit er fyrir að það verði einnig afgangur af við­skiptum í ár, en upp­lýs­ingar um við­skipta­jöfnuð á síð­asta árs­fjórð­ungi 2014 hafa ekki verið birtar (og sýnir súlan fyrir 2014 því aðeins við­skipta­jöfn­uð­inn á fyrstu níu mán­uðum árs­ins).

Við­skipta­jöfn­uður 2004 til 2014 (án áhrifa gömlu bank­anna frá 4. árs­fjórð­ungi 2008) |Create infographics

Í fyrsta graf­inu er ekki tekið sér­stakt til­lit til þrota­búa gömlu bank­anna. Vegna þess hve mikil áhrif upp­gjör þeirra getur haft á við­skipta­jöfn­uð­inn, þá birtir Seðla­bank­inn við­skipta­jöfnuð bæði með og án áhrifa gömlu bank­anna. Í graf­inu hér að ofan má sjá þró­un­ina án áhrifa gömlu bank­anna.

Kjarninn og Stofnun um fjár­mála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítar­lega um heim­il­is­fjár­mál sam­hliða þátt­unum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vikur. Mark­miðið: Að stuðla að betra fjár­mála­læsi hjá lands­mönnum! Næsti þáttur er á dag­skrá fimmtu­dag­inn 29. jan­úar. Fylgstu með á Facebook-síðu Ferðar til fjár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferð til fjár

SkýringFerð til fjár

Fjögur gröf sem útskýra fast­eigna­mark­að­inn

Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, árs­fjórð­ungs­legri skýrslu Seðla­banka Íslands, er nokkuð fjallað um þróun fast­eigna­verðs og þær hækk­anir sem orðið hafa á íbúða­verði að und­an­förnu. Þróunin á Íslandi er meðal ann­ars borin saman við önnur lönd en í skýrsl­unni segir að ekki séu merki um bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum í heild. Engu að síður sé fast­eigna­verð orðið hátt á flesta mæli­kvarða í...
FréttirFerð til fjár

Vænt­ingar dvína í skugga kjara­við­ræðna

Vænt­inga­vísi­tala Gallups lækk­aði um 17 stig í apr­íl­mán­uði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísi­töl­unni milli mán­aða í tæp tvö ár. Vísi­talan fór yfir 100 stig í mars síð­ast­liðnum en vísi­talan er mæld á bil­inu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafn­margir aðspurðra neyt­enda eru bjart­sýnir og svart­sýnir á stöðu og horfir...
FréttirFerð til fjár

Per­sónu­af­slátt­ur­inn er 610.825 krónur í ár

Per­sónu­af­sláttur ein­stak­linga er 610.825 krónur fyrir árið 2015 eða 50.902 krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er hækkun um 4.848 krónur frá árinu 2014, eða um 404 krónur á mán­uði. Hækkunin nemur 0,8% en hún er lögum sam­kvæmt í takt við verð­bólgu­þróun. Fjallað er um per­sónu­af­slátt, stað­greiðslu og trygg­inga­gjald árs­ins 2015 í grein í Tíund, frétta­blaði Rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur að...
FréttirFerð til fjár

Verð­bólgan étur kaup­mátt­inn

Hækkun verð­lags í mars­mán­uði varð til þess að kaup­máttur launa dróst saman um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa, eins og hann mælist sam­kvæmt vísi­tölu Hag­stof­unnar, hafði hækkað nán­ast stans­laust í tólf mán­uði en dróst núna saman. Árs­hækkun kaup­máttar launa mælist engu að síður um 4 pró­sent, en árs­hækkun mæld­ist 5,6 pró­sent í febr­úar. Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu launa í...
FréttirFerð til fjár

Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari en aðrir

Íslenskir stúd­entar eru sam­vinnu­þýð­ari en banda­rískir stúd­entar og leggja sig harðar fram við að halda hópa­vinnu gang­andi. Ýmsir félags­þættir benda til að Íslend­ingar sam­svari sig almennt betur í hópi fólks og séu það sem kallað er á ensku group minded á kostnað ein­stak­lings­hyggju. [caption id="attachment_26395" align="alignleft" width="139"] Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir.[/caption]Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar sem Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir hefur unnið að...
SkýringFerð til fjár

Deilt um sam­band launa­hækk­ana og verð­bólgu

Kröfur margra stétt­ar­fé­laga í yfir­stand­andi kjara­deilum á vinnu­mark­aði hljóða upp á veru­lega hækkun launa­taxta og dæmi eru um að kröfur hljóði upp á um 20 pró­sent hækkun lægstu launa. Staðan sem uppi er á vinnu­mark­aði hefur að mati pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verið ein helsta ástæða fyrir því að halda stýri­vöxtum óbreyttum und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir lága verð­bólgu sem er undir 2,5...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár