Hægt að nýta gott lánshæfismat – Frítt fyrir einstaklinga

Í síð­asta þætti af Ferð til fjár fylgd­umst við með Andreu ofur­neyt­anda í bar­átt­unni um að bæta kjör sín sem víð­ast og auka yfir­sýn heim­il­is­bók­halds­ins. Hún fór meðal ann­ars með falda mynda­vél í bank­ann og ræddi við þjón­ustu­full­trúa í von um lægri korta­gjöld og betri inn­láns­kjör. Hér má sjá hvernig Andreu gekk. Það var sann­ar­lega ferð til fjár!

Áður en Andrea hélt í bank­ann þá hitti hún Tinnu Björk Bryde, við­skipta­stjóra hjá CreditInfo. CreditInfo er gagna­fyr­ir­tæki og reiknar meðal ann­ars láns­hæfi ein­stak­linga. Andrea fékk ein­kunn­ina B1 á skal­anum A til E úr sínu láns­hæf­is­mati, þar sem áhættu­minnstu Lán­tak­end­urnir fá A. Samkvæmt mat­inu eru lík­urnar á að Andrea lendi á van­skila­skrá aðeins 0,7%. Með þessi gögn að vopni, auk góðra ráða frá Aðal­steini Leifs­syni samn­inga-sér­fræð­ingi, hélt Andrea á fund þjón­ustu­full­trú­ans.

Frítt lánshæfismat

Með sam­starfi Ferðar til fjár og CreditInfo, þá býðst öllum ein­stak­lingum að fá láns­hæf­is­mat sitt að kostn­að­ar­lausu til 28. febr­úar næst­kom­andi. Það eina sem þarf að gera er að sækja um aðgang að þjón­ustu­vef CreditInfo.


Við fengum Stefán B. Önunda­son, mark­aðs­stjóra hjá CreditInfo, til að útskýra betur hvað býr að baki láns­hæf­is­mati. Hvað þýðir þetta allt saman og hvernig getur mat á láns­hæfi hjálpað okkur? Hann bendir á að góða ein­kunn úr láns­hæf­is­mati megi t.d. nota sem rök­stuðn­ing fyrir því að fá lægri vexti ef ein­stak­ling­ur­inn er að taka til dæmis bíla­lán eða fram­kvæmda­lán. „Það er minni áhætta að lána skil­vísum ein­stak­lingum,“ segir Stefán.


Hér að neðan má lesa það sem Stefán sagði um láns­hæf­is­matið. Skýrt og fræð­andi!


„Það getur skipt heil­miklu máli að vera með­vit­aður um stöðu sína þegar samið er um kaup og kjör við lán­töku. Ein­stak­lingar með gott láns­hæf­is­mat standa betur að vígi og geta farið fram á betri kjör en ella, almennt stendur fólk betur að vígi ef það er með allar sömu upp­lýs­ing­arnar og gagn­að­ili þegar samið er.


Þegar ein­stak­lingur sækir um lán þá er láns­hæfi hans og staða könnuð af lán­veit­anda í sam­ræmi við neyt­enda­lög sem sett voru í lok árs 2013. Þá var fyr­ir­tækjum í lána­starf­semi gert skylt að kanna láns­hæfi umsækj­enda áður en til láns kæmi, þ.e. að gera svo­kallað láns­hæf­is­mat. Einnig geta trygg­inga­fé­lög, síma­fyr­ir­tæki og fyr­ir­tæki sem ein­stak­lingar eru í reikn­ings­við­skiptum við óskað eftir að gera láns­hæf­is­mat áður en samn­ingur er gerður um við­skipti.


Misjafnt er hvernig lán­veit­endur gera láns­hæf­is­mat en það er alltaf byggt á ein­hverjum gögnum um þann sem sækir um lánið. Ef til er við­skipta­saga þá er hún gjarnan notuð en ef lán­veit­and­inn á engin gögn um lán­tak­ann þá er hægt að nota láns­hæf­is­mat Creditinfo. Góðar og nákvæmar upp­lýs­ingar hjálpa lán­veit­and­anum að meta áhættu á tapi og öðrum vanda­málum.


Láns­hæf­is­mat er m.a. byggt á

  • Sögu­legum van­skilum
  • Upp­flett­ingum í van­skila­skrá
  • Upp­lýs­ingum úr skatt­skrá
  • Aldri og búsetu
  • Hjú­skap­ar­stöðu
  • Tengslum við fyr­ir­tæki

Láns­hæf­is­mat er lík­inda­reikn­ingur þar sem lík­urnar á því að ein­stak­lingur lendi í van­skilum eru metnar. Láns­hæf­is­mat segir ekk­ert til um það hversu mikið ein­stak­lingur getur greitt af láni, til þess er gert svo kallað greiðslu­mat.

Þú hefur aðgang að sömu upplýsingum

Creditinfo er gagna­fyr­ir­tæki sem býður fyr­ir­tækjum upp á gerð láns­hæf­is­mats, en býður ein­stak­lingum aðgang að sömu upp­lýs­ingum um sjálfa sig (ekki um aðra). Allir Íslend­ingar sem náð hafa 18 ára aldri geta því verið upp­lýstir um hvað eykur eða dregur úr þeirra per­sónu­legu mögu­leikum á lán­töku. Þeir sem eru með gott láns­hæf­is­mat eru lík­legri til að hljóta fyr­ir­greiðslu heldur en þeir sem eru með slæmt mat.


Í til­efni af sam­starfi Creditinfo við Stofnun um fjár­mála­læsi í þátt­unum „Ferð til fjár“ býður Creditinfo nú öllum ein­stak­lingum að fá láns­hæf­is­matið sitt sér að kostn­að­ar­lausu til 28. febr­úar 2015. Það eina sem þú þarft að gera er að sækja um aðgang að þjón­ustu­vef Creditinfo hér, þú færð lyk­il­orð sent í heima­bank­ann og getur sótt láns­hæf­is­matið þitt.

Hvernig á svo að nota lánshæfismatið?

Ef þú færð góða ein­kunn og þarft t.d. að taka bíla­lán eða fram­kvæmda­lán getur þú notað þær upp­lýs­ingar sem rök­stuðn­ing fyrir því að fá lægri vexti á lánið vegna þess að það er minni áhætta að lána skil­vísum ein­stak­lingum. Mik­il­vægt er að hafa í huga að lán­veit­endur hafa nokk­urt frjáls­ræði um það hvaða gögn þeir nota við láns­hæf­is­mat og getur nið­ur­staðan verið breyti­leg eftir því.“


Kjarninn og Stofnun um fjár­mála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítar­lega um heim­il­is­fjár­mál sam­hliða þátt­unum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vikur. Mark­miðið: Að stuðla að betra fjár­mála­læsi hjá lands­mönnum! Næsti þáttur er á dag­skrá fimmtu­dag­inn 29. jan­úar. Fylgstu með á Facebook-síðu Ferð til fjár.



Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferð til fjár

SkýringFerð til fjár

Fjögur gröf sem útskýra fast­eigna­mark­að­inn

Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, árs­fjórð­ungs­legri skýrslu Seðla­banka Íslands, er nokkuð fjallað um þróun fast­eigna­verðs og þær hækk­anir sem orðið hafa á íbúða­verði að und­an­förnu. Þróunin á Íslandi er meðal ann­ars borin saman við önnur lönd en í skýrsl­unni segir að ekki séu merki um bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum í heild. Engu að síður sé fast­eigna­verð orðið hátt á flesta mæli­kvarða í...
FréttirFerð til fjár

Vænt­ingar dvína í skugga kjara­við­ræðna

Vænt­inga­vísi­tala Gallups lækk­aði um 17 stig í apr­íl­mán­uði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísi­töl­unni milli mán­aða í tæp tvö ár. Vísi­talan fór yfir 100 stig í mars síð­ast­liðnum en vísi­talan er mæld á bil­inu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafn­margir aðspurðra neyt­enda eru bjart­sýnir og svart­sýnir á stöðu og horfir...
FréttirFerð til fjár

Per­sónu­af­slátt­ur­inn er 610.825 krónur í ár

Per­sónu­af­sláttur ein­stak­linga er 610.825 krónur fyrir árið 2015 eða 50.902 krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er hækkun um 4.848 krónur frá árinu 2014, eða um 404 krónur á mán­uði. Hækkunin nemur 0,8% en hún er lögum sam­kvæmt í takt við verð­bólgu­þróun. Fjallað er um per­sónu­af­slátt, stað­greiðslu og trygg­inga­gjald árs­ins 2015 í grein í Tíund, frétta­blaði Rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur að...
FréttirFerð til fjár

Verð­bólgan étur kaup­mátt­inn

Hækkun verð­lags í mars­mán­uði varð til þess að kaup­máttur launa dróst saman um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa, eins og hann mælist sam­kvæmt vísi­tölu Hag­stof­unnar, hafði hækkað nán­ast stans­laust í tólf mán­uði en dróst núna saman. Árs­hækkun kaup­máttar launa mælist engu að síður um 4 pró­sent, en árs­hækkun mæld­ist 5,6 pró­sent í febr­úar. Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu launa í...
FréttirFerð til fjár

Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari en aðrir

Íslenskir stúd­entar eru sam­vinnu­þýð­ari en banda­rískir stúd­entar og leggja sig harðar fram við að halda hópa­vinnu gang­andi. Ýmsir félags­þættir benda til að Íslend­ingar sam­svari sig almennt betur í hópi fólks og séu það sem kallað er á ensku group minded á kostnað ein­stak­lings­hyggju. [caption id="attachment_26395" align="alignleft" width="139"] Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir.[/caption]Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar sem Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir hefur unnið að...
SkýringFerð til fjár

Deilt um sam­band launa­hækk­ana og verð­bólgu

Kröfur margra stétt­ar­fé­laga í yfir­stand­andi kjara­deilum á vinnu­mark­aði hljóða upp á veru­lega hækkun launa­taxta og dæmi eru um að kröfur hljóði upp á um 20 pró­sent hækkun lægstu launa. Staðan sem uppi er á vinnu­mark­aði hefur að mati pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verið ein helsta ástæða fyrir því að halda stýri­vöxtum óbreyttum und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir lága verð­bólgu sem er undir 2,5...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár