Tinna Laufey útskýrir framboð og eftirspurn

„Framboð og eft­ir­spurn eru hug­tök sem lýsa afstöðu neyt­enda og selj­enda til þess sem þeir vilja gera á ákveðnum mark­aði. Eft­ir­spurnin lýsir afstöðu neyt­enda og fram­boðið afstöðu fram­leið­enda,“ sagði Tinna Laufey Ásgeirs­dóttir, dós­ent í hag­fræði, þegar hún útskýrði fram­boð og eft­ir­spurn fyrir Helga Seljan í síð­asta þætti af Ferð til fjár. Þátt­ur­inn var á dag­skrá síð­ast­liðið fimmtu­dags­kvöld á RÚV.

[caption id="attachment_18068" align="alignnone" width="855"] Tinna Laufey Ásgeirs­dóttir útskýrir eft­ir­spurn. Kúrvan hallar niður, því eftir því sem verð lækkar þá eru neyt­endur til­búnir að kaupa meira magn af vör­unni.[/caption]

„Eft­ir­spurnin lýsir afstöðu neyt­enda til þess sem þeir vilja kaupa. Sú afstaða [greiðslu­vilji] fer eftir marg­vís­legum þáttum, eftir verði vör­unnar og verði á tengdum vörum sem neyt­endur gætu hugs­an­lega notað í stað þess­arar til­teknu vöru, og einnig eftir tekjum ein­stak­ling­anna og svo fram­vegis,“ útskýrði Tinna Laufey.

[caption id="attachment_18070" align="alignnone" width="884"] Tinna Laufey útskýrir fram­boð. Kúrvan hallar upp því eftir því sem verð hækkar, því meira magn eru fram­leið­endur til­búnir að fram­leiða af vör­unni.[/caption]

„Fram­boðið lýsir hins vegar afstöðu fram­leið­end­anna, það er þeirra sem eru að bjóða vör­una á mark­aði. Það segir til um hversu mikið fram­leið­endur eru til í að fram­leiða miðað við verðið sem þeir fá fyrir vör­una og marg­vís­lega aðra þætti. Til dæmis skiptir máli verð á þeim aðföngum sem þeir nota og hvort þeir gætu hugs­an­lega notað aðföngin til þess að fram­leiða eitt­hvað annað sem gæfi betur af sér.“

[caption id="attachment_18071" align="alignnone" width="800"] Framboðs- og eft­ir­spurn­ar­kúrv­urnar. Mark­aðs­verð mynd­ast þar sem þær mæt­ast. Ef verð er of hátt þá kaupa neyt­endur ekki allt sem er fram­leitt og ef verð er of lágt þá eru fram­leið­endur ekki reiðu­búnir að fram­leiða nóg af vör­unni.[/caption]

Tinna Laufey útskýrði síðan sam­spil eft­ir­spurn­ar­innar og fram­boðs­ins. „Það sem er mik­il­vægt að skilja er að þetta sam­spil, þar sem fram­boð og eft­ir­spurn mæt­ast, myndar mark­aðs­verð vör­unnar, það er það verð sem við öll lútum.“

[caption id="attachment_18073" align="alignnone" width="958"] Breki Karlsson og Helgi Seljan fara betur yfir útskýr­ingar Tinnu Lauf­eyjar.[/caption]

Í sóf­anum hjá Helga og Breka Karls­syni, umsjón­ar­mönnum Ferðar til fjár, voru fram­boðs- og eft­ir­spurn­ar­kúrv­urnar ræddar enn frekar. „Ég er svo mikið að ná þessu, að ég þyk­ist vita að þetta er ekki svona ein­falt,“ sagði Helgi. Ályktun hans var að sjálf­sögðu kór­rétt.


„Þetta er fram­boð og eft­ir­spurn í sinni ein­föld­ustu mynd. En yfir­leitt eru ein­hver önnur áhrif sem koma til,“ sagði Breki og tók dæmi af land­náms-hjón­unum Helga magra Eyvind­ar­syni og Þórunni hyrnu.

[caption id="attachment_18074" align="alignnone" width="947"] „Já, ég hefði nú betur sleppt því að fara í þessa versl­un­ar­ferð til Vínlands,“ sagði Þórunn hyrna við eig­in­mann sinn, og sam­þykkti að best væri að halda fjár­hagnum aðskildum.[/caption]

Helgi magri á hænu og reglu­lega selur hann Þórunni tíu egg. „Þannig er betra að hafa þennan fjár­hag okkar, aðskilin enn sem komið er, þangað til þú ert orðin fjár­mála­læs,“ sagði Helgi heldur hroka­fullur við eig­in­konu sína, og skýrði hvers vegna hún þurfti að kaupa af honum eggin!


Tvær álnir vað­máls var verðið sem Þórunn greiddi fyrir eggin. En dag einn barst hjón­unum kon­ungs­bréf þar sem lagður var 50% skattur á öll egg umfram þrjú. Þessi skattur, sem gerði það að verkum að Helgi þyrfti að láta af hendi stóran hluta vað­máls­ins, leiddi til þess að það borg­aði sig ekki fyrir hann að selja konu sinni eggin.


Skatt­lagn­ing kon­ungs, hvort sem hann var danskur eða norskur, er dæmi um hvernig margt annað en verð getur haft áhrif á sam­spil eft­ir­spurnar og fram­boðs. Það má ímynda sér að Þórunn hafi þurft eð leita annað að eggjum og að verð hafi hækkað vegna skatt­lagn­ingar kon­ungs.

Kakan á 1.500 krónur

Eins og Tinna Laufey sagði Helga, þá kemur margt annað til við verð­lagn­ingu en kostn­aður við að fram­leiða hlut­ina. Helgi spurði sér­stak­lega út í verð á tertu­sneið, en í upp­hafi þátt­ar­ins bauð Breki honum að kaupa tertu­sneið á heilar 1.480 krónur. Verð­mið­inn er síður en svo fjar­stæðu­kenndur, en það vakti athygli síð­ast­liðið sumar að sneið af köku var seld á tæpar 1.300 krónur á vin­sælum ferða­manna­staði. Þótt kostn­aður við köku­gerð­ina hafi vafa­laust verið mun lægri en sölu­verð kök­unnar, þá mátu fram­leið­endur það svo að eft­ir­spurnin væri næg auk þess sem greiðslu­vilji neyt­end­anna, það voru mest­megnis ferða­menn, stæði undir svo hárri verð­lagn­ingu. Mark­aðsvirðið köku­sneið­ar­innar var þannig hærra en margir kærðu sig um, en rétt eins og Tinna Laufey benti á, þá er það verðið sem allir verða að lúta!

Kjarninn og Stofnun um fjár­mála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítar­lega um heim­il­is­fjár­mál sam­hliða þátt­unum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vikur. Mark­miðið: Að stuðla að betra fjár­mála­læsi hjá lands­mönnum! Næsti þáttur er á dag­skrá fimmtu­dag­inn 29. jan­úar. Fylgstu með á Facebook-síðu Ferðar til fjár.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferð til fjár

SkýringFerð til fjár

Fjögur gröf sem útskýra fast­eigna­mark­að­inn

Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, árs­fjórð­ungs­legri skýrslu Seðla­banka Íslands, er nokkuð fjallað um þróun fast­eigna­verðs og þær hækk­anir sem orðið hafa á íbúða­verði að und­an­förnu. Þróunin á Íslandi er meðal ann­ars borin saman við önnur lönd en í skýrsl­unni segir að ekki séu merki um bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum í heild. Engu að síður sé fast­eigna­verð orðið hátt á flesta mæli­kvarða í...
FréttirFerð til fjár

Vænt­ingar dvína í skugga kjara­við­ræðna

Vænt­inga­vísi­tala Gallups lækk­aði um 17 stig í apr­íl­mán­uði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísi­töl­unni milli mán­aða í tæp tvö ár. Vísi­talan fór yfir 100 stig í mars síð­ast­liðnum en vísi­talan er mæld á bil­inu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafn­margir aðspurðra neyt­enda eru bjart­sýnir og svart­sýnir á stöðu og horfir...
FréttirFerð til fjár

Per­sónu­af­slátt­ur­inn er 610.825 krónur í ár

Per­sónu­af­sláttur ein­stak­linga er 610.825 krónur fyrir árið 2015 eða 50.902 krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er hækkun um 4.848 krónur frá árinu 2014, eða um 404 krónur á mán­uði. Hækkunin nemur 0,8% en hún er lögum sam­kvæmt í takt við verð­bólgu­þróun. Fjallað er um per­sónu­af­slátt, stað­greiðslu og trygg­inga­gjald árs­ins 2015 í grein í Tíund, frétta­blaði Rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur að...
FréttirFerð til fjár

Verð­bólgan étur kaup­mátt­inn

Hækkun verð­lags í mars­mán­uði varð til þess að kaup­máttur launa dróst saman um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa, eins og hann mælist sam­kvæmt vísi­tölu Hag­stof­unnar, hafði hækkað nán­ast stans­laust í tólf mán­uði en dróst núna saman. Árs­hækkun kaup­máttar launa mælist engu að síður um 4 pró­sent, en árs­hækkun mæld­ist 5,6 pró­sent í febr­úar. Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu launa í...
FréttirFerð til fjár

Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari en aðrir

Íslenskir stúd­entar eru sam­vinnu­þýð­ari en banda­rískir stúd­entar og leggja sig harðar fram við að halda hópa­vinnu gang­andi. Ýmsir félags­þættir benda til að Íslend­ingar sam­svari sig almennt betur í hópi fólks og séu það sem kallað er á ensku group minded á kostnað ein­stak­lings­hyggju. [caption id="attachment_26395" align="alignleft" width="139"] Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir.[/caption]Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar sem Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir hefur unnið að...
SkýringFerð til fjár

Deilt um sam­band launa­hækk­ana og verð­bólgu

Kröfur margra stétt­ar­fé­laga í yfir­stand­andi kjara­deilum á vinnu­mark­aði hljóða upp á veru­lega hækkun launa­taxta og dæmi eru um að kröfur hljóði upp á um 20 pró­sent hækkun lægstu launa. Staðan sem uppi er á vinnu­mark­aði hefur að mati pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verið ein helsta ástæða fyrir því að halda stýri­vöxtum óbreyttum und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir lága verð­bólgu sem er undir 2,5...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár