Samhljómur með Obama og Kára Stefánssyni

Barack Obama Banda­ríkja­for­seti ætlar á síð­ustu tveimur árum í emb­ætti að beita sér fyrir skatta­breyt­ingum sem ætlað er að auka jöfnuð í banda­rísku sam­fé­lagi. Áform for­set­ans eru meðal ann­ars að leggja á hærri banka­skatta, hækka þak fjár­magnstekju­skatts, loka glu­fum í skatt­kerf­inu sem for­set­inn segir hina efna­meiri hafa getað nýtt sér, og bjóða náms­mönnum og barna­fjöl­skyldum skatta­af­slætti.

Skatt­kerfið og jöfn­uður í sam­fé­lag­inu voru meðal áherslu­at­riða í stefnu­ræðu Obama sem hann flutti í gær­kvöldi, svo­kall­aðri State of the Union ræðu. For­set­inn vill með breyt­ing­unum auka skatta á hina efna­meiri en lækka skatt­byrði á milli­stétt og lág­tekju­fólk. Það er alls óvíst hvort þessu bar­áttu­máli for­set­ans verði veitt braut­ar­gengi, en Repúblikanar eru í meiri­hluta á bæði lög­gjaf­ar­þing­inu og í öld­ung­ar­deild þings­ins.

Aukinn þungi í umræðunni

Það má velta fyrir sér orðum Obama í stærra og smærra sam­hengi hlut­anna. Und­an­farin miss­eri hefur auk­inn ójöfn­uður í sam­fé­lag­inu, þar sem hinir ríkir verða rík­ari, verið í sviðs­ljósi hag­fræð­innar og stjórn­mál­anna. Bókin Fjármagn á 21. öld­inni eftir franska hag­fræð­ing­inn Thomas Piketty vakti mikla athygli á síð­asta ári og þrátt fyrir að hafa hlotið bæði lof og mikla gagn­rýni er óum­deilt að bókin hefur hrist upp í umræð­unni um ójöfnuð svo um munar. Megin kenn­ing Piketty er sú að yfir lengri tíma þá ávaxt­ist fjár­magn hraðar heldur en vöxtur lands­fram­leiðslu. sem leiði óum­flýj­an­lega til sam­þjöpp­unar auðs.

Efnahags- og fram­fara­stofn­unin, OECD, hefur einnig lagt aukna áherslu á rann­sóknir og stefnu­mál tengd jöfn­uði og mis­skipt­ingu auðs. Í fyrra var birt skýrsla þar sem full­yrt var að ójöfn­uður dragi úr hag­vexti. Ýmis gögn hafa verið lögð fram sem sýna fram á sam­þjöppun auðs og auk­inn ójöfnuð. Meðal ann­ars var nýlega haft eftir Lawrence Summers, pró­fessor við Harvard háskóla og efna­hags­ráð­gjafa Obama, að ef tekju­skipt­ing í Banda­ríkj­unum í dag væri eins og árið 1979, þá ættu neðstu 80% sam­fé­lags­ins einni billjón meira, eða ell­efu þús­und doll­urum meira á hverja fjöl­skyldu, og rík­asta eina pró­sent fólks ætti einni billjón minna, eða 750 þús­und doll­urum minna hver.

Þá hefur nýút­gefin skýrsla Oxfam sam­tak­anna vakið mikla athygli í lið­inni viku, en þar er litið til auðs rík­ustu ein­stak­linga heims­ins. Samtökin segja bil milli hinna ofur­ríku og ann­arra fara vax­andi. Á sama hraða muni þessi fámenni hópur eiga 50% alls auðs fyrir lok næsta árs. Skýrsla Oxfam kemur út í aðdrag­anda Alþjóð­lega efna­hags­þings­ins, World Economic Forum í Davos. Þingið hófst í dag, mið­viku­dag.

[caption id="attachment_17079" align="alignnone" width="300"] Kári Stef­áns­son í við­tali hjá Helga Seljan í þátt­unum Ferð til fjár.[/caption]

Kári og forsetinn sammála

Umræðan um jöfnuð, mis­skipt­ingu auðs, skatt­byrði og rétt­læti er ekki ein­skorðuð við Banda­ríkin. Ummæli Kára Stef­áns­sonar í fyrsta þætt­inum af Ferð til fjár vöktu mikla athygli í síð­ustu viku. Þar sagði Kári íslenska skatt­kerfið órétt­látt og það hygla hinum efna­meiri. Það fælist meðal ann­ars í mis­hárri skatt­lagn­ingu á fjár­magnstekjur og launa­tekjur, og leiði til ójöfn­uðar sem íslenskt sam­fé­lag þoli verr en stærri sam­fé­lög.

Heyra má sam­hljóm í mál­flutn­ingi Kára og Banda­ríkja­for­seta. Báðir tala fyrir að hinir efna­meiri beri auk­inn skatt­byrði sem verði á móti lækkuð á tekju- og eigna­lægri hópa sam­fé­lags­ins. Þetta verði meðal ann­ars gert í gegnum hærri fjár­magsntekju­skatt. Ólíkt haf­ast þeir þó að, því á meðan Obama leggur brátt fram frum­varp með til­lögum að skatta­breyt­ingum, þá sagði Kári í við­tali við Helga Seljan að „kannski, guði sé lof fyrir ykkur, þá hef ég afskap­lega lítil áhrif á þetta sam­fé­lag“.

Kjarninn og Stofnun um fjár­mála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítar­lega um heim­il­is­fjár­mál sam­hliða þátt­unum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vikur. Mark­miðið: Að stuðla að betra fjár­mála­læsi hjá lands­mönnum! Næsti þáttur er á dag­skrá fimmtu­dag­inn 22. jan­úar. Fylgstu með á Facebook-síðu Ferð til fjár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferð til fjár

SkýringFerð til fjár

Fjögur gröf sem útskýra fast­eigna­mark­að­inn

Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, árs­fjórð­ungs­legri skýrslu Seðla­banka Íslands, er nokkuð fjallað um þróun fast­eigna­verðs og þær hækk­anir sem orðið hafa á íbúða­verði að und­an­förnu. Þróunin á Íslandi er meðal ann­ars borin saman við önnur lönd en í skýrsl­unni segir að ekki séu merki um bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum í heild. Engu að síður sé fast­eigna­verð orðið hátt á flesta mæli­kvarða í...
FréttirFerð til fjár

Vænt­ingar dvína í skugga kjara­við­ræðna

Vænt­inga­vísi­tala Gallups lækk­aði um 17 stig í apr­íl­mán­uði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísi­töl­unni milli mán­aða í tæp tvö ár. Vísi­talan fór yfir 100 stig í mars síð­ast­liðnum en vísi­talan er mæld á bil­inu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafn­margir aðspurðra neyt­enda eru bjart­sýnir og svart­sýnir á stöðu og horfir...
FréttirFerð til fjár

Per­sónu­af­slátt­ur­inn er 610.825 krónur í ár

Per­sónu­af­sláttur ein­stak­linga er 610.825 krónur fyrir árið 2015 eða 50.902 krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er hækkun um 4.848 krónur frá árinu 2014, eða um 404 krónur á mán­uði. Hækkunin nemur 0,8% en hún er lögum sam­kvæmt í takt við verð­bólgu­þróun. Fjallað er um per­sónu­af­slátt, stað­greiðslu og trygg­inga­gjald árs­ins 2015 í grein í Tíund, frétta­blaði Rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur að...
FréttirFerð til fjár

Verð­bólgan étur kaup­mátt­inn

Hækkun verð­lags í mars­mán­uði varð til þess að kaup­máttur launa dróst saman um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa, eins og hann mælist sam­kvæmt vísi­tölu Hag­stof­unnar, hafði hækkað nán­ast stans­laust í tólf mán­uði en dróst núna saman. Árs­hækkun kaup­máttar launa mælist engu að síður um 4 pró­sent, en árs­hækkun mæld­ist 5,6 pró­sent í febr­úar. Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu launa í...
FréttirFerð til fjár

Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari en aðrir

Íslenskir stúd­entar eru sam­vinnu­þýð­ari en banda­rískir stúd­entar og leggja sig harðar fram við að halda hópa­vinnu gang­andi. Ýmsir félags­þættir benda til að Íslend­ingar sam­svari sig almennt betur í hópi fólks og séu það sem kallað er á ensku group minded á kostnað ein­stak­lings­hyggju. [caption id="attachment_26395" align="alignleft" width="139"] Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir.[/caption]Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar sem Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir hefur unnið að...
SkýringFerð til fjár

Deilt um sam­band launa­hækk­ana og verð­bólgu

Kröfur margra stétt­ar­fé­laga í yfir­stand­andi kjara­deilum á vinnu­mark­aði hljóða upp á veru­lega hækkun launa­taxta og dæmi eru um að kröfur hljóði upp á um 20 pró­sent hækkun lægstu launa. Staðan sem uppi er á vinnu­mark­aði hefur að mati pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verið ein helsta ástæða fyrir því að halda stýri­vöxtum óbreyttum und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir lága verð­bólgu sem er undir 2,5...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár