Bogi útskýrir gengisvísitöluna

Fréttir fjöl­miðla af gengi krón­unnar eru tíðar, enda hefur gengi íslensku krón­unnar og geng­is­sveiflur mikil áhrif á efna­hags­horfur í land­inu. Í síð­asta þætti af Ferð til fjár fylgd­umst við með Helga Seljan stöðva upp­lestur Boga Ágústs­sonar í miðjum frétta­tíma, til þess að fá ítar­legri skýr­ingar á hvað Bogi væri eig­in­lega að meina með þessu öllu saman.

„Gengi krón­unnar hefur ekki verið hærra frá því í maí í fyrra. Krónan hefur styrkst jafnt og þétt frá síð­ari hluta nóv­em­ber­mán­aðar. Geng­is­vísi­tala erlendra mynta hefur ekki verið lægri í 9 mán­uði sem þýðir að krónan hefur ekki verið sterk­ari frá því í maí. Víst er að fjöldi ferða­manna hefur haft áhrif á styrk­ingu krón­unnar en fleira kemur til,” las Bogi í frétta­tím­anum.

Það er ekki nema von að Helgi klóri sér í hausnum yfir öllum þessum hækk­unum, lækk­unum, styrk­ingum og veik­ingum. „Fyr­ir­gefðu Bogi, hvað er geng­is­vísi­tala,“ er spurn­ing sem fleiri en Helgi hafa velt fyrir sér.

Eins og Bogi útskýrði, þá er geng­is­vísi­talan vísi­tala sem að mælir verð­gildi íslensku krón­unnar gagn­vart öðrum myntum. Vísi­talan er sam­sett úr þeim myntum sem Ísland á í mestum við­skiptum með og vegur evran þar þyngst eða tæp­lega 40%. Hækkun geng­is­vísi­töl­unnar, til dæmis úr geng­inu 205 í 206, þýðir að krónan er að lækka. Þá er verð erlendu gjald­miðl­anna gagn­vart íslensku krón­unni að hækka, þ.e. við þurfum þá að nota fleiri krónur til að kaupa aðra gjald­miðla og inn­flutn­ingur verður dýr­ari. Þetta ferli er oft kallað veik­ing krón­unnar. Ef geng­is­vísi­talan aftur á móti lækkar þá er verð erlendu gjald­miðl­anna að lækka og krónan að hækka eða styrkj­ast.

Hækkun geng­is­vísi­töl­unnar: Erlendu gjald­miðl­arnir eru að hækka í verði, fleiri krónur þarf til að kaupa sama magn og áður. Krónan er að veikj­ast eða lækka. Inn­flutn­ingur verður dýr­ari í verði og verð á inn­fluttum varn­ingi hækkar í verði.

Lækkun geng­is­vísi­töl­unnar: Erlendu gjald­miðl­arnir eru að lækka í verði, færri krónur þarf en áður til þess að kaupa gjald­eyri. Krónan er að styrkj­ast eða hækka. Inn­fluttar vörur verða ódýr­ari og vöru­verð lækkar.

„Þetta er ein­falt,“ sagði Bogi við Helga. „Hærri geng­is­vísi­tala þýðir lægri króna, lægri geng­is­vísi­tala þýðir hærri króna.“

Styrking gagn­vart evru en veik­ing á móti dollar

Breyting geng­is­vísi­töl­unnar frá byrjun des­em­ber­mán­aðar |Create infographics

Á mynd­inni hér að ofan má sjá hvernig geng­is­vísi­talan hefur sveifl­ast frá byrjun des­em­ber 2014 til föstu­dags­ins 16. jan­úar 2015. Gengi vísi­töl­unnar var á föstu­dag­inn síð­asta um 208,6 sam­an­borið við 206,2 í byrjun des­em­ber­mán­aðar. Vísi­talan hefur því hækkað frá byrjun des­em­ber og krónan veikst, en eins og línu­ritið ber með sér hafa sveifl­urnar verið í báðar áttir.

Eins og fyrr segir þá breyt­ist geng­is­vísi­talan eftir gengi ein­stakra gjald­miðla. Seðla­bank­inn heldur um skrán­ingu gjald­miðla og í dag er gjald­eyr­is­vísi­talan sam­sett úr 14 gjald­miðlum. Mest vægi hefur gengi evr­unnar, eða 38,4%, og því næst gengi Banda­ríkja­dals, eða 12,4%. Aðrir gjald­miðlar sem vega þungt eru breska pundið (9,7%), danska krónan (9,7%) og norska krónan(9,4%).

Gengi evru gagn­vart krónu frá byrjun des­em­ber 2014 |Create infographics

Gengi evr­unnar gagn­vart krón­unni er á svip­uðum stað og það var í byrjun des­em­ber, en hefur farið

lækk­andi

að und­an­förnu eins og sést og línu­rit­inu. Það þýðir að hver evra kostar færri krónur, og krónan því

styrkst

gagn­vart evru. Gengi evr­unnar er í dag um 153 krónur.

Gengi Banda­ríkja­doll­ars gagn­vart krón­unni frá byrjun des­em­ber |Create infographics

Aðra sögu er að segja af Banda­ríkja­dollar, en krónan hefur veikst gagn­vart dollar að und­an­förnu. Í byrjun des­em­ber kost­aði hver dollar minna en 125 krónu en kostar í dag um 133 krónur. Veiking krón­unnar gagn­vart dollar nemur um 6% frá miðjum des­em­ber. Verð varn­ings sem fluttur er inn frá Banda­ríkj­unum mun því að óbreyttu hækka í verði.

Doll­ar­inn að styrkj­ast gagn­vart öðrum myntum

Þessar mis­mun­andi breyt­ingar á gengi gjald­miðl­anna skýr­ast að miklu leyti af styrk­ingu doll­ars­ins gagn­vart evr­unni. Seðla­banki Íslands hefur beitt sér fyrir því að halda gengi krón­unnar stöð­ugu á móti evru og á síð­ustu miss­erum hefur doll­ar­inn sótt í sig veðrið og styrkst veru­lega gagn­vart öðrum myntum, einkum evru. Þessi styrk­ing doll­ars gagn­vart öðrum myntum heims­ins er meðal ann­ars skýrð með bættum efna­hags­horfum vest­an­hafs.

Að lokum, þá er er athygl­is­vert að skoða sam­an­burð á breyt­ingum geng­is­vísi­töl­unnar milli ára. Eins og Íslend­ingum er vel kunn­ugt, þá hefur krónan oft sveifl­ast eins og lauf í vindi. Á síð­ustu miss­erum hefur hún þó verið til­tölu­lega stöðug, ekki síst í sam­an­burði við fyrri ár, eins og myndin hér að neðan sýnir.

Geng­is­sveiflur krón­unnar 2009 til 2014 |Create infographics

Kjarninn og Stofnun um fjár­mála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítar­lega um heim­il­is­fjár­mál sam­hliða þátt­unum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vikur. Mark­miðið: Að stuðla að betra fjár­mála­læsi hjá lands­mönnum! Næsti þáttur er á dag­skrá fimmtu­dag­inn 22. jan­úar. Fylgstu með á Facebook-síðu Ferð til fjár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferð til fjár

SkýringFerð til fjár

Fjögur gröf sem útskýra fast­eigna­mark­að­inn

Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, árs­fjórð­ungs­legri skýrslu Seðla­banka Íslands, er nokkuð fjallað um þróun fast­eigna­verðs og þær hækk­anir sem orðið hafa á íbúða­verði að und­an­förnu. Þróunin á Íslandi er meðal ann­ars borin saman við önnur lönd en í skýrsl­unni segir að ekki séu merki um bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum í heild. Engu að síður sé fast­eigna­verð orðið hátt á flesta mæli­kvarða í...
FréttirFerð til fjár

Vænt­ingar dvína í skugga kjara­við­ræðna

Vænt­inga­vísi­tala Gallups lækk­aði um 17 stig í apr­íl­mán­uði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísi­töl­unni milli mán­aða í tæp tvö ár. Vísi­talan fór yfir 100 stig í mars síð­ast­liðnum en vísi­talan er mæld á bil­inu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafn­margir aðspurðra neyt­enda eru bjart­sýnir og svart­sýnir á stöðu og horfir...
FréttirFerð til fjár

Per­sónu­af­slátt­ur­inn er 610.825 krónur í ár

Per­sónu­af­sláttur ein­stak­linga er 610.825 krónur fyrir árið 2015 eða 50.902 krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er hækkun um 4.848 krónur frá árinu 2014, eða um 404 krónur á mán­uði. Hækkunin nemur 0,8% en hún er lögum sam­kvæmt í takt við verð­bólgu­þróun. Fjallað er um per­sónu­af­slátt, stað­greiðslu og trygg­inga­gjald árs­ins 2015 í grein í Tíund, frétta­blaði Rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur að...
FréttirFerð til fjár

Verð­bólgan étur kaup­mátt­inn

Hækkun verð­lags í mars­mán­uði varð til þess að kaup­máttur launa dróst saman um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa, eins og hann mælist sam­kvæmt vísi­tölu Hag­stof­unnar, hafði hækkað nán­ast stans­laust í tólf mán­uði en dróst núna saman. Árs­hækkun kaup­máttar launa mælist engu að síður um 4 pró­sent, en árs­hækkun mæld­ist 5,6 pró­sent í febr­úar. Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu launa í...
FréttirFerð til fjár

Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari en aðrir

Íslenskir stúd­entar eru sam­vinnu­þýð­ari en banda­rískir stúd­entar og leggja sig harðar fram við að halda hópa­vinnu gang­andi. Ýmsir félags­þættir benda til að Íslend­ingar sam­svari sig almennt betur í hópi fólks og séu það sem kallað er á ensku group minded á kostnað ein­stak­lings­hyggju. [caption id="attachment_26395" align="alignleft" width="139"] Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir.[/caption]Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar sem Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir hefur unnið að...
SkýringFerð til fjár

Deilt um sam­band launa­hækk­ana og verð­bólgu

Kröfur margra stétt­ar­fé­laga í yfir­stand­andi kjara­deilum á vinnu­mark­aði hljóða upp á veru­lega hækkun launa­taxta og dæmi eru um að kröfur hljóði upp á um 20 pró­sent hækkun lægstu launa. Staðan sem uppi er á vinnu­mark­aði hefur að mati pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verið ein helsta ástæða fyrir því að halda stýri­vöxtum óbreyttum und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir lága verð­bólgu sem er undir 2,5...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár