Sykur og sérfræðingar dýrari - Sveppir og sjónvörp ódýrari

Sykur og þjón­usta sér­fræði­lækna eru þeir tveir útgjalda­liðir sem hækk­uðu mest í verði á árinu 2014, sam­kvæmt verð­bólgu­mæl­ingum Hagstofu Íslands. Verð á sykri hækk­aði um nærri 35% á tíma­bil­inu, sem nær frá des­em­ber 2013 til des­em­ber 2014, og þjón­usta sér­fræð­ing­anna hækk­aði um ríf­lega 20%. Á móti dug­legum hækk­unum ýmissa útgjalda­liða þá lækk­aði verð fjöl­margra vara og þjón­ustna á liðnu ári. Verðkannannir á „sveppum, rót­ar­hnýði og laukum“ sýndu þannig fram á tæp­lega 20% verð­lækkun milli ára auk þess sem raf­tæki lækk­uðu tölu­vert í verði.

Í hverjum mán­uði reiknar hag­stofan breyt­ingar á vísi­tölu neyslu­verðs. Vísi­talan skipt­ist í tólf flokka, svo­kall­aðar und­ir­vísi­tölur, sem síðan skipt­ast aftur í undir-und­ir­vísi­tölur. Samtals kannar Hag­stofan mán­að­ar­lega verð­breyt­ingar á um þriðja hund­ruð útgjalda­liða, allt frá kostn­aði við mat­ar­inn­kaup og ferða­lög til verð­breyt­inga hjá hár­greiðslu­stofum og heilsu­rækt­ar­stöðvum. Dæmi um slíkar undir-und­ir­vísi­tölur eru útgjalda­lið­irnir „Sykur“ og „Sveppir, rót­ar­hnýði og laukar“. Þessar mat­vörur eru hluti af mat­ar­körf­unni sem myndar und­ir­vísi­töl­una „Matur og drykkj­ar­vörur“.

Und­ir­vísi­tölur verð­bólg­unnar - Hækkanir & lækk­anir 2014 |Create infographics

Á mynd­inni hér að ofan má sjá hvernig und­ir­vísi­töl­urnar tólf breytt­ust á árinu 2014. Með því að smella á „hlut­falls­leg skipt­ing“ er jafn­framt hægt að sjá vægi þess­ara liða í útreikn­ingi á vísi­tölu neyslu­verðs. Matur og drykkj­ar­vara lækk­uðu í verði um tæpt 1% en sú und­ir­vísi­tala myndar um 14,5% af vísi­tölu neyslu­verðs. Langstærsti liður end­an­legu vísi­töl­unnar er „Húsnæði, hiti og raf­magn“ sem á síð­ustu tólf mán­uðum hefur hækkað um 4,44%. Þessi útgjöld vega þungt, sam­tals um 28%.

Eins og mörgum er kunn­ugt þá er tólf mán­aða breyt­ing á vísi­tölu neyslu­verðs hin alræmda verð­bólga. Hún mæld­ist í des­em­ber 0,8%. Með öðrum orðum þá hefur verð­lag í land­inu, eins og það mælist í könn­unum Hag­stof­unnar, almennt hækkað um 0,8% á síð­ustu tólf mán­uðum. Fara þarf allt aftur til árs­ins 1998 til þess að finna tíma­bil þar sem verð­bólgan fór undir 1%.

Inn­an­lands­flug dýr­ara – Utan­lands­flug ódýr­ara

Þegar undir-und­ir­vísi­töl­urnar eru skoð­aðar nánar eftir hækk­unum og lækk­unum á tíma­bil­inu stilla nokkrir liðir tengdir heil­brigð­is­þjón­ustu sér ofar­lega á lista yfir mestu verð­hækk­an­irnar. Und­ir­vísi­talan „Heilsa“ hækk­aði um tæp 6% á árinu en nokkrar undir-und­ir­vísi­tölur Heils­unnar hækk­uðu mikið, eins og sjá má á mynd­inni hér að neðan. Þjónusta sér­fræð­inga var 23,3% dýr­ari en hún var í des­em­ber 2013 og þjón­usta heim­il­is­lækna hækk­aði í verði um 19,5%.

Vörur og þjón­usta sem hækk­uðu mest á árinu 2014 |Create infographics

Flug­far­gjöld inn­an­lands hækk­uðu á árinu um 7,5%. Á sama tíma lækk­uðu flug­far­gjöld til útlanda um 13,2%. Einungis raf­tæki og fyrr­nefndir sveppir, rót­ar­hnýði og laukar lækk­uðu meira í verði á árinu sem leið. Sjónvörp, útvörp og mynd­spil­arar lækk­uðu um 17,4% milli des­em­ber­mán­aða 2013 og 2014. Gera má ráð fyrir að þær lækk­anir hafi verið fram­kvæmdar í aðdrag­anda afnáms vöru­gjalda nú um ára­mótin en raf­tæki af ýmsu tagi eru áber­andi á list­anum yfir þær vörur og þjón­ustu sem lækk­uðu mest. Af þeim þrettán liðum sem lækk­uðu mest í verði þá voru fimm þeirra raf­tæki.

Vörur og þjón­usta sem lækk­uðu mest á árinu 2014 |Create infographics

Kjarninn og Stofnun um fjár­mála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítar­lega um heim­il­is­fjár­mál sam­hliða þátt­unum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vikur. Mark­miðið: Að stuðla að betra fjár­mála­læsi hjá lands­mönnum! Fyrsti þátt­ur­inn er á dag­skrá fimmtu­dag­inn 15. jan­úar. Fylgstu með á Facebook-síðu Ferð til fjár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferð til fjár

SkýringFerð til fjár

Fjögur gröf sem útskýra fast­eigna­mark­að­inn

Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, árs­fjórð­ungs­legri skýrslu Seðla­banka Íslands, er nokkuð fjallað um þróun fast­eigna­verðs og þær hækk­anir sem orðið hafa á íbúða­verði að und­an­förnu. Þróunin á Íslandi er meðal ann­ars borin saman við önnur lönd en í skýrsl­unni segir að ekki séu merki um bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum í heild. Engu að síður sé fast­eigna­verð orðið hátt á flesta mæli­kvarða í...
FréttirFerð til fjár

Vænt­ingar dvína í skugga kjara­við­ræðna

Vænt­inga­vísi­tala Gallups lækk­aði um 17 stig í apr­íl­mán­uði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísi­töl­unni milli mán­aða í tæp tvö ár. Vísi­talan fór yfir 100 stig í mars síð­ast­liðnum en vísi­talan er mæld á bil­inu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafn­margir aðspurðra neyt­enda eru bjart­sýnir og svart­sýnir á stöðu og horfir...
FréttirFerð til fjár

Per­sónu­af­slátt­ur­inn er 610.825 krónur í ár

Per­sónu­af­sláttur ein­stak­linga er 610.825 krónur fyrir árið 2015 eða 50.902 krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er hækkun um 4.848 krónur frá árinu 2014, eða um 404 krónur á mán­uði. Hækkunin nemur 0,8% en hún er lögum sam­kvæmt í takt við verð­bólgu­þróun. Fjallað er um per­sónu­af­slátt, stað­greiðslu og trygg­inga­gjald árs­ins 2015 í grein í Tíund, frétta­blaði Rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur að...
FréttirFerð til fjár

Verð­bólgan étur kaup­mátt­inn

Hækkun verð­lags í mars­mán­uði varð til þess að kaup­máttur launa dróst saman um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa, eins og hann mælist sam­kvæmt vísi­tölu Hag­stof­unnar, hafði hækkað nán­ast stans­laust í tólf mán­uði en dróst núna saman. Árs­hækkun kaup­máttar launa mælist engu að síður um 4 pró­sent, en árs­hækkun mæld­ist 5,6 pró­sent í febr­úar. Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu launa í...
FréttirFerð til fjár

Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari en aðrir

Íslenskir stúd­entar eru sam­vinnu­þýð­ari en banda­rískir stúd­entar og leggja sig harðar fram við að halda hópa­vinnu gang­andi. Ýmsir félags­þættir benda til að Íslend­ingar sam­svari sig almennt betur í hópi fólks og séu það sem kallað er á ensku group minded á kostnað ein­stak­lings­hyggju. [caption id="attachment_26395" align="alignleft" width="139"] Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir.[/caption]Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar sem Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir hefur unnið að...
SkýringFerð til fjár

Deilt um sam­band launa­hækk­ana og verð­bólgu

Kröfur margra stétt­ar­fé­laga í yfir­stand­andi kjara­deilum á vinnu­mark­aði hljóða upp á veru­lega hækkun launa­taxta og dæmi eru um að kröfur hljóði upp á um 20 pró­sent hækkun lægstu launa. Staðan sem uppi er á vinnu­mark­aði hefur að mati pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verið ein helsta ástæða fyrir því að halda stýri­vöxtum óbreyttum und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir lága verð­bólgu sem er undir 2,5...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár