Olíulækkanir skila tugþúsundum í vasa heimilanna

Hríð­lækk­andi heims­mark­aðs­verð olíu getur haft veru­leg áhrif á útgjöld íslenskra heim­ila og lækkað rekstr­ar­kostnað þeirra um tug­þús­undir króna á árinu, hald­ist olíu­verð lágt eða það lækki enn frekar. Verð á mörk­uðum hefur lækkað um 60% frá því í júní 2014 og kostar olíu­fatið nú minna en 50 doll­ara. Það hefur ekki verið ódýr­ara síðan í efna­hag­skrepp­unni 2009 og spá mark­aðs­sér­fræð­ingar því að verð muni lækka enn frekar og hald­ast lágt á árinu 2015.

En hvað þýðir verð­fallið fyrir útgjöld íslenskra heim­ila? Í töfl­unni hér að neðan má skoða nokkur dæmi og stilla töfl­una eftir teg­und bíls og árlegum akstri. Taflan sýnir mán­að­ar­legan kostnað við bens­ín­kaup árið 2014 og árið 2015. Fyrir árið 2014 er miðað við að lítri af 95 oktan bens­íni hafi kostað 245 krónur, sem er með­al­tals­verð sam­kvæmt árs­fjórð­ungs­legum mæl­ingum Hag­stof­unnar, og fyrir árið 2015 mið­ast útreikn­ingar við lítra­verðið 197 krónur.

<a href='#'><img alt='Das­h­bo­ard 1 ' src='https:&#47;&#47;publicrevizit.tableausoftware.com&#47;static&#47;ima­ges&#47;be&#47;bens­in­verdi­Jan2015x&#47;Das­h­bo­ard1&#47;1_rss.png' style='border: none' /></a>


Learn About Tableau


Dæmi úr töfl­unni eru útgjöld eig­anda bíls sem keyrir um 14 kíló­metra á hverjum bens­ín­lítra, til dæmis eig­andi Toyota Corollu eða sam­bæri­legs bíls. Miðað við 12.000 keyrða kíló­metra á ári, eða um 1.000 kíló­metra á mán­uði, nam kostn­aður við bens­ín­kaup um 17.500 krónum á mán­uði á síð­asta ári. Verð­lækk­anir að und­an­förnu hafa dregið útgjöldin saman um tæpar 3.500 krónur á mán­uði eða rúm­lega 40.000 krónur á árs­grund­velli. Útgjalda­lækkun jeppa­eig­enda getur með sama hætti numið yfir hund­rað þús­undum á árs­grund­velli.

Hægt er að sjá hvað þinn bíll kemst marga kíló­metra á bens­ín­lítr­anum með ein­földum hætti hér, á vef­síðu FÍB.

Frekari lækk­anir í kort­unum

Bens­ín­verð á afgreiðslu­stöðvum olíu­fé­lag­anna hefur lækkað um rúm 22% frá því verðið stóð í um 250 krónur síð­ast­liðið sumar. Búast má við að afgreiðslu­verð lækki enn frekar í krafti enn frek­ari lækk­ana á heims­mark­aðs­verð­inu sem nemur um 60% á sama tíma­bili. Veiking krón­unnar gagn­vart Banda­ríkja­dollar getur þó vegið á móti meiri lækk­unum en ella. Doll­ar­inn hefur styrkst gagn­vart öðrum gjald­miðlum að und­an­förnu og er styrk­ingin meðal ann­ars rakin til sterk­ari stöðu banda­rísks efna­hags­lífs. Krónan hefur þar ekki verið und­an­skilin öðrum gjald­miðlum, veik­ing gagn­vart dollar frá miðjum des­em­ber nemur um 5% og skilar sér í dýr­ari inn­kaupum olíu­fé­lag­anna á olíu.

Kjarninn og Stofnun um fjár­mála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítar­lega um heim­il­is­fjár­mál sam­hliða þátt­unum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vikur. Mark­miðið: Að stuðla að betra fjár­mála­læsi hjá lands­mönnum! Fyrsti þátt­ur­inn er á dag­skrá fimmtu­dag­inn 15. jan­úar. Fylgstu með á Facebook-síðu Ferð til fjár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferð til fjár

SkýringFerð til fjár

Fjögur gröf sem útskýra fast­eigna­mark­að­inn

Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, árs­fjórð­ungs­legri skýrslu Seðla­banka Íslands, er nokkuð fjallað um þróun fast­eigna­verðs og þær hækk­anir sem orðið hafa á íbúða­verði að und­an­förnu. Þróunin á Íslandi er meðal ann­ars borin saman við önnur lönd en í skýrsl­unni segir að ekki séu merki um bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum í heild. Engu að síður sé fast­eigna­verð orðið hátt á flesta mæli­kvarða í...
FréttirFerð til fjár

Vænt­ingar dvína í skugga kjara­við­ræðna

Vænt­inga­vísi­tala Gallups lækk­aði um 17 stig í apr­íl­mán­uði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísi­töl­unni milli mán­aða í tæp tvö ár. Vísi­talan fór yfir 100 stig í mars síð­ast­liðnum en vísi­talan er mæld á bil­inu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafn­margir aðspurðra neyt­enda eru bjart­sýnir og svart­sýnir á stöðu og horfir...
FréttirFerð til fjár

Per­sónu­af­slátt­ur­inn er 610.825 krónur í ár

Per­sónu­af­sláttur ein­stak­linga er 610.825 krónur fyrir árið 2015 eða 50.902 krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er hækkun um 4.848 krónur frá árinu 2014, eða um 404 krónur á mán­uði. Hækkunin nemur 0,8% en hún er lögum sam­kvæmt í takt við verð­bólgu­þróun. Fjallað er um per­sónu­af­slátt, stað­greiðslu og trygg­inga­gjald árs­ins 2015 í grein í Tíund, frétta­blaði Rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur að...
FréttirFerð til fjár

Verð­bólgan étur kaup­mátt­inn

Hækkun verð­lags í mars­mán­uði varð til þess að kaup­máttur launa dróst saman um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa, eins og hann mælist sam­kvæmt vísi­tölu Hag­stof­unnar, hafði hækkað nán­ast stans­laust í tólf mán­uði en dróst núna saman. Árs­hækkun kaup­máttar launa mælist engu að síður um 4 pró­sent, en árs­hækkun mæld­ist 5,6 pró­sent í febr­úar. Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu launa í...
FréttirFerð til fjár

Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari en aðrir

Íslenskir stúd­entar eru sam­vinnu­þýð­ari en banda­rískir stúd­entar og leggja sig harðar fram við að halda hópa­vinnu gang­andi. Ýmsir félags­þættir benda til að Íslend­ingar sam­svari sig almennt betur í hópi fólks og séu það sem kallað er á ensku group minded á kostnað ein­stak­lings­hyggju. [caption id="attachment_26395" align="alignleft" width="139"] Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir.[/caption]Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar sem Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir hefur unnið að...
SkýringFerð til fjár

Deilt um sam­band launa­hækk­ana og verð­bólgu

Kröfur margra stétt­ar­fé­laga í yfir­stand­andi kjara­deilum á vinnu­mark­aði hljóða upp á veru­lega hækkun launa­taxta og dæmi eru um að kröfur hljóði upp á um 20 pró­sent hækkun lægstu launa. Staðan sem uppi er á vinnu­mark­aði hefur að mati pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verið ein helsta ástæða fyrir því að halda stýri­vöxtum óbreyttum und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir lága verð­bólgu sem er undir 2,5...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár