Árið 2014: Af réttri leið

Gylfi Magn­ús­son, dós­ent við við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands og fyrrum efna­hags- og við­skipta­ráð­herra, skrifar um nið­ur­fell­ingu á verð­tryggðum hús­næð­is­lánum, hina svoköll­uðu Leið­rétt­ingu.

Undir lok árs­ins 2014 var því sem rík­is­stjórnin kallar Leið­rétt­ing­una hrint í fram­kvæmd. Þetta er um margt mjög áhuga­verð efna­hags­að­gerð. Um það bil 80 millj­arðar króna eru teknir úr sam­eig­in­legum sjóðum og not­aðir til að lækka höf­uð­stól hús­næð­is­lána nokkuð stórs hóps lands­manna.

[caption id="attachment_13531" align="align­right" width="150"] Gylfi Magn­ús­son, lektor við við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands.[/caption]

Nafnið á áætl­un­inni er auð­vitað skemmti­lega óskamm­feilið. Látið sem verið sé að leið­rétta eitt­hvað. Breyta ein­hverju sem var rangt og gera það rétt. Það er mjög lang­sótt. Það er ekk­ert rangt við þau lán sem lækka. Þau hafa ein­fald­lega hækkað að nafn­virði eða krónu­tölu þegar hver króna varð sífellt minna virði.

Skuldin hefur ekk­ert hækkað að raun­virði við það. Það er eðli verð­tryggðra lána og það vissu vænt­an­lega allir sem tóku slík lán. Grunn­mis­skiln­ing­ur­inn hér er að halda – eða þykj­ast halda – að krónan sé eins og ein­ing­arnar í metra­kerf­inu, tákni alltaf það sama, hvort sem það þarf 10 slíkar til að kaupa lítra af mjólk eða 100. Það er engin leið­rétt­ing fólgin í því að lækka slík lán með frekar handa­hófs­kenndum hætti og senda skatt­greið­endum reikn­ing­inn.

Hins vegar er auð­vitað rétt að mjög margir urðu fyrir tjóni í svipt­ingum und­an­far­inna ára, m.a. þeir sem keyptu sína fyrstu fast­eign þegar verð þeirra var hátt og horfðu svo upp á eigið fé hverfa þegar verðið lækk­aði aftur. Vandinn hér er sveiflur í fast­eigna­verði, bóla sem þenst út og springur. Nákvæm­lega það sama gerð­ist í fjölda ann­arra landa með sömu afleið­ingum án þess að lán væru verð­tryggð.

[quote font="0" align="right"]Meg­in­vand­inn við hina meintu leið­rétt­ingu er að það er reynt að taka á síð­ari vand­anum, sveiflum í fast­eigna­verði og búsifjum fast­eigna­kaup­enda vegna þess, með því að hræra í lán­unum sem á hús­næð­inu hvíla. Það er ein­stak­lega ómark­viss leið[/quote]

Meg­in­vand­inn við hina meintu leið­rétt­ingu er að það er reynt að taka á síð­ari vand­anum, sveiflum í fast­eigna­verði og búsifjum fast­eigna­kaup­enda vegna þess, með því að hræra í lán­unum sem á hús­næð­inu hvíla. Það er ein­stak­lega ómark­viss leið, jafn­vel þótt menn fall­ist á, sem ekki er erfitt, að rétt sé að skipta þessum byrðum á fleiri en ein­göngu þá sem sann­an­lega urðu fyrir tjóni.

Dýrt og árangursrýrt


Fyrir vikið verður þessi efna­hags­að­gerð óskap­lega dýr og árang­urs­rýr. Megnið af kostn­að­inum er vegna pen­inga sem renna úr rík­is­sjóði til fólks sem hefur litla þörf fyrir þá. Margir þeirra hafa raunar ekki orðið fyrir neinu tjóni vegna svipt­inga á fast­eigna­mark­aði, t.d. þeir sem keyptu sér sitt fyrsta hús­næði áður en bólan tók að þenj­ast út af krafti síðla árs 2004.

Þeir sem urðu fyrir mestu tjóni eða þurfa mest á aðstoð að halda fá í mörgum til­fellum lítið eða jafn­vel ekki neitt. Ein ástæða þess er að fyrri aðstoð er dregin frá greiðslum vegna hinnar svoköll­uðu leið­rétt­ingar. Af því að hún var að hluta tekju­tengd verður tekju­teng­ingin öfug núna, mest fer til fólks með til­tölu­lega háar tekjur. Annað sem veldur því er auð­vitað sú stað­reynd að tekju­hátt fólk býr almennt í dýr­ari húsum en tekju­lágt og skuldar meira. Þeir tekju­lægstu eiga raunar sjaldan eigið hús­næði og fá því ekk­ert út úr þess­ari aðgerð, óháð því hve grátt svipt­ingar und­an­far­inna ára hafa leikið þá.

[quote font="0" align="right"]Aðgerðin var sem sé sam­þykkt án þess að fyrir lægi nema að litlu leyti hvernig hún myndi nýt­ast. Það á ekki að gefa upp fyrr en í sér­stakri skýrslu á næsta ári.[/quote]

Það er þó ekki hægt að full­yrða hve mikið af millj­örð­unum 80 fer til spillis í þessum skiln­ingi. Skýr­ingin er að ein­ungis mjög tak­mark­aðar upp­lýs­ingar hafa verið gefnar um það hvernig þessir 80 millj­arðar skipt­ast á hópa. Það var bara kynnt með glæru­sýn­ingu sem vakti fleiri spurn­ingar en hún svar­aði. Aðgerðin var sem sé sam­þykkt án þess að fyrir lægi nema að litlu leyti hvernig hún myndi nýt­ast. Það á ekki að gefa upp fyrr en í sér­stakri skýrslu á næsta ári.

Aðgerð sem þessa verður auð­vitað að vega og meta út frá því ann­ars vegar hvaða árangri hún skilar og hins vegar hverju hefði verið hægt að ná fram með sama til­kostn­aði með annarri ráð­stöfun þessa fjár.

Ýmislegt hægt að gera fyrir 80 milljarða


Fyrir 80 millj­arða hefði verið hægt að gera tölu­vert. Það hefði verið hægt að bæta heil­brigð­is­kerfið (hefði lík­lega dugað lang­leið­ina fyrir nýjum Land­spít­ala), mennta­kerfið eða vega­kerfið. Það hefði verið hægt að bæta mjög hag þeirra verst settu í sam­fé­lag­inu með auknum fram­lögum til bóta­kerf­is­ins. Það hefði verið hægt að lækka skatta – nú eða sleppa því að hækka þá. Það hefði t.d. mátt sleppa því alveg að hækka mat­ar­skatt­inn. Það hefði líka mátt lækka skuldir hins opin­bera. Það hefði jafn­vel verið hægt að kaupa heilu skips­farmana af vél­byssum fyrir lög­regl­una ef út í það er farið. Nú eða reisa tvær Hörpur í Skaga­firði. Listinn er nán­ast enda­laus.

En ekk­ert af þessu var gert. Um það var tekin póli­tísk ákvörðun. Sú ákvörðun kom auð­vitað ekki á óvart. Hún var óum­flýj­an­leg í ljósi þeirra lof­orða sem gefin höfðu verið í síð­ustu kosn­inga­bar­áttu. Bless­un­ar­lega varð þó upp­hæðin sem varið var í þetta ein­ungis brot af því sem gefið var í skyn í aðdrag­anda kosn­ing­anna.

Í lýð­ræð­is­þjóð­fé­lagi er auð­vitað skrýtið að skamma stjórn­mála­menn þegar þeir hrinda því í fram­kvæmd sem þeir hafa fengið umboð kjós­enda til að gera, eins og í þessu til­felli. Þá er í raun við kjós­end­urna sjálfa að sakast, eða a.m.k. þann hluta þeirra sem veitti slíkt umboð.

Það sama átti auð­vitað við í bólunni sem leiddi til hruns­ins. Rík­is­stjórnir þess tíma höfðu nokkuð skýrt lýð­ræð­is­legt umboð til að þenja út fjár­mála­kerfið, veikja reglu­verkið og taka ýmsar aðrar ákvarð­anir sem kyntu undir brjál­æð­inu. Enda gerðu þær það. 90% íbúða­lánin voru skýrt kosn­inga­lof­orð sem var efnt. Það er dæmi um grá­glettni örlag­anna að nú skuli þeir sem tóku þau fá hluta skuld­anna nið­ur­felldan vegna ann­ars kosn­inga­lof­orðs.

Kannski stað­festir þetta bara að Winston Churchill hafði rétt fyrir sér þegar hann komst að þeirri nið­ur­stöðu að lýð­ræði væri versta hugs­an­lega stjórn­ar­farið – að und­an­skyldum öllum öðrum sem reynd hafa verið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árið 2014

SkýringÁrið 2014

Árið 2014: Mark­að­irnir í máli og myndum

Þegar litið er á þróun mark­aða með fast­eignir, hluta­bréf og gjald­eyri á árinu 2014 má sjá merki um auk­inn stöð­ug­leika sam­an­borið við árin á undan. Sveiflur eru mýkri og meira jafn­vægi ríkir en gerði á árunum 2009 til 2013, hvað þá heldur í sam­an­burði við árin 2005-2008. Verð­bólgu hefur verið haldið í skefjum, áhrif meiri­háttar stjórn­valds­að­gerða hafa ekki komið fram...
FréttirÁrið 2014

Árið 2014: Vin­sæl­ast í Kjarn­anum á árinu

Alm­an­aks­árið hefur verið við­burða­ríkt í Kjaranum. Kjarninn færði sig alfarið á ver­ald­ar­vef­inn í lok sum­ars og hefur nú eitt heim­il­is­fang í stað nokk­urra. Fjöldi heim­sókna á kjarn­inn.is síðan þá hefur verið framar vonum og því áhuga­vert að kanna hvaða færslur hafa verið vin­sælastar meðal les­enda á þessum tíma.10. Gáma­kyn­slóðin Hrafn Jónsson, einn pistla­höf­unda Kjarnans, átti eina af vin­sæl­ustu færslum árs­ins...
PistillÁrið 2014

Auðunn Atlason

Árið 2014: Stríð og friður í Evrópu

Auðunn Atlason er fasta­full­trúi Íslands hjá Öryggis- og sam­vinnu­stofnun Evrópu, og hefur á árinu 2014 haft ein­stak inn­sýn í utan­rík­is­póli­tíska heims­við­burði í Austur-Evrópu. Hann skrifa hér um spenn­una í Úkraínu og nágrenni og hvernig hún birt­ist okkur á árinu. Sumarið 2012 var Evr­ópu­mótið í fót­bolta haldið í Póllandi og Úkraínu. Þá horfðum við Íslend­ingar – og hálf heims­byggðin – á...
PistillÁrið 2014

Hafsteinn Hauksson hagfræðingur

Árið 2014: Enn eitt hafta­árið á enda

Haf­steinn Gunnar Hauksson, hag­fræð­ingur og meist­ara­nemi við London School of Economics, fer yfir vendi­punkta í efna­hags­málum þjóð­ar­innar á árinu sem senn er á enda. Þetta var tíð­inda­mikið ár, og allt útlit fyrir að það næsta verði það líka. Gjald­eyr­is­kaup Seðla­bank­ans og gengi krón­unnar Vorið 2013 tók Seðla­banki Íslands upp stefnu sem bank­inn kallar „stýrt flot­gengi“, en hún felur í sér...
FréttirÁrið 2014

Árið 2014: Bárð­ar­bunga bærir á sér

Ég er í dokt­ors­námi við Cambridgeháskóla í Bret­landi og lenti í ótrú­legri atburða­rás þegar Bárð­ar­bunga fór að bæra á sér. Ég var nýbyrjuð í nám­inu þannig að Bárð­ar­bunga hefur yfir­tekið verk­efnið mitt. Ótrúleg heppni að lenda í miðri hring­iðunni. Cambridge hefur verið með skjálfta­mæla­net á Öskju­svæð­inu síðan 2006 sem hefur hægt og rólega farið stækk­andi. Þegar aukin skjálfta­virkni í Bárð­ar­bungu...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár