Árið 2014: Bárðarbunga bærir á sér

Ég er í dokt­ors­námi við Cambridgeháskóla í Bret­landi og lenti í ótrú­legri atburða­rás þegar Bárð­ar­bunga fór að bæra á sér. Ég var nýbyrjuð í nám­inu þannig að Bárð­ar­bunga hefur yfir­tekið verk­efnið mitt. Ótrúleg heppni að lenda í miðri hring­iðunni. Cambridge hefur verið með skjálfta­mæla­net á Öskju­svæð­inu síðan 2006 sem hefur hægt og rólega farið stækk­andi. Þegar aukin skjálfta­virkni í Bárð­ar­bungu hófst vildi svo vel til að ég var á Íslandi og við vorum með marga skjálfta­mæla í geymslu í Reykja­vík sem biðu þess að verða settir út um haustið. Við buðum því Veð­ur­stof­unni og Almanna­vörnum að samnýta nokkra af mæl­unum okkar til að fá betri upp­lýs­ingar um hvað var að ger­ast.

Allir voru mjög óró­legir því gos undir mörg hund­ruð metra þykkum jökli getur valdið stóru jök­ul­hlaupi. Sem betur fer hefur það ekki gerst þar sem kvikan rennur eftir neð­an­jarð­ar­gangi undir Dyngju­jökli og kemur upp í til­tölu­lega stöð­ugu hraun­gosi í Holu­hrauni NNA af Bárð­ar­bungu.

Vegna þess­ara jarð­hrær­ing­ana í Bárð­ar­bungu settum við upp fleiri skjálfta­mæla á Vatna­jökul og við enda kviku­gangs­ins í Holu­hrauni í lok ágúst, til að fá nákvæm­ari stað­setn­ingar á jarð­skjálft­unum undir jökl­inum og átta sig þannig betur á því hvar kvikan var að brjóta sér leið neð­an­jarðar. Við erum nú með 75 mæli­tæki á svæð­inu. Jarð­skjálfta­virknin í Vatna­jökli, og kviku­hlaupið þaðan yfir í Holu­hraun er merki­legur atburður á heims­vísu og með því að vera skráður af til­tölu­lega þéttu neti jarð­eðl­is­fræði­legra mæli­tækja m.a. frá Cambridgeháskóla, Veð­ur­stofu Íslands og Jarð­vís­inda­stofnun háskól­ans hafa safn­ast mjög mik­il­væg vís­inda­gögn. Það er gríð­ar­lega merki­legt að sjá kviku­gang ferð­ast 45 km frá eld­stöð­inni út í sprungu­sveim­inn og fá svo gos í ofaná­lag.

Það er gríð­ar­lega mikil vinna að setja upp og þjón­usta stórt skálfta­mæla­net. Þegar skjálfta­virknin hófst þann 17. ágúst fór ég með þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar og tækni­manni Veð­ur­stofu Íslands auk nokk­urra starfs­manna Alm­ana­varna að setja niður skjálfta­mæli á Vatna­jökli. Það tókst þrátt fyrir að stuttur tími hafi gef­ist til verks­ins, því var farið nokkrum dögum seinna á vélsleðum aftur uppá Vatna­jökul að setja niður fleiri skjálfta­mæla og GPS tæki fyrir Cambridgeháskóla Veð­ur­stofu Íslands og Jarð­vís­inda­stofnun háskól­ans.

[caption id="attachment_15503" align="alignnone" width="1024"] Margir skjálfta­mælar biðu þess að vera settir upp þegar Bárð­ar­bunga fór að bæra á sér í sumar. (Mynd: Þorbjörg Ágústs­dóttir)[/caption]

Cambridge-hóp­ur­inn var eini vísnda­hóp­ur­inn að störfum á lok­aða svæð­inu norðan Vatna­jök­uls og í Öskju þegar fyrsta gosið hófst uppúr mið­nætti 29. ágúst.Við vorum kölluð út rétt eftir mið­nætti til að athuga hvort bjarm­inn á vef­mynda­vél Mílu væri raun­veru­legur. Við fórum strax á vett­fang og stað­festum það að gos væri hafið á um 600 metra langri sprungu í gömlu gíga­röð­inni í Holu­hrauni, norðan Dyngju­jök­uls. Gosið stóð í rúm­lega 4 klukku­stundir. Við tókum einnig fyrstu hraun­sýnin sem lög­reglan flutti með hraði í bæinn til efna­grein­ingar hjá Jarð­vís­inda­stofnun. Þann 31. ágúst klukkan 4 um morg­un­inn vorum við ræst út aftur. Þá var marg­falt stærra gos hafið í Holu­hrauni. Gossprungan mynd­aði um 1,5 km langan eld­vegg. Það var ótrú­leg upp­lifun að sjá svona stórt eld­gos og vera fyrst á stað­inn.

Stærsta megineldstöð landsins


Jarð­skjálftar hafa mælst reglu­lega í Bárð­ar­bungu síðan mæl­ingar hófust fyrir meira en 40 árum. Það hefur því verið fylgst vel með Bárða­bungu frá upp­hafi mæl­inga. En Bárð­ar­bunga er stærsta meg­in­eld­stöð lands­ins með 80 km2 ísfylltri öskju og til­heyrir stærsta eld­stöðvakefi lands­ins sem er yfir 190 km á lengd. Á sögu­legum tíma hefur að með­al­tali gosið einu sinni á hverjum 50 árum, síð­ast 1862-1864, í sprungu­sveimnum suð­vestan Bárð­ar­bungu, þá rann Trölla­hraun 1.

Eldsum­brotin í Holu­hrauni eru nú þau mestu að rúm­máli síðan í Skaft­ár­eldum 1783–84. Þetta er því orð­inn mun stærri atburður en Kröflu­eldar 1975–1984. Hraunið er nú orðið rúm­lega 82 km2 að flat­ar­máli en um 1 km3 að rúm­máli. Holu­hraun­seldar eru þó ein­ungis brot af Skaft­ár­eldum. Hraunið sem mynd­að­ist í Skaft­ár­eldum er um 600 km2 að flat­ar­máli og um 15 km3 að rúm­máli 2. Ómögu­legt er að segja hversu lengi gosið í Holu­hrauni varir. Enn er nokkur kraftur í gos­inu og hraunið stækkar, þó mun hægar en í upp­hafi. Einnig er tölu­verð skjálfta­vikrni í Bárð­ar­bungu auk þess sem askjan sjálf hefur sigið meira en 50 m.

[caption id="attachment_15502" align="alignnone" width="1024"] Cambridgeháskóli hefur verið með skjálfta­mæla­net á Öskju­svæð­inu síðan 2006 sem Þorbjörg og sam­nem­endur hennar hafa stuðst við í rann­sóknum sínum á eldsum­brot­unum norðan Vatna­jök­uls. (Mynd: Þorbjörg Ágústs­dóttir)[/caption]

Vís­inda­manna­ráð Almanna­varna hefur sett fram nokkrar hugs­an­legar atburða­r­ásir sem þeir telja að séu lík­legri en aðrar þó ekki sé hægt að úti­loka neitt og áfram verður að fylgj­ast náið með gos­inu og Bárð­ar­bungu sjálfri. Mögu­leik­arnir þrír sem taldir eru lík­leg­astir varð­andi fram­vind­una eru:


  1. Gosið í Holu­hrauni fjarar út og öskju­sig í Bárð­ar­bungu hættir.

  2. Stórt öskju­sig í Bárð­ar­bungu. Gos í Holu­hrauni verður lang­vinnt eða vex. Mögulegt er að sprungan leng­ist til suð­urs inn undir Dyngju­jökul og valdi jök­ul­hlaupum og gjósku­falli. Einnig er mögu­legt að sprungur opn­ist ann­ars staðar undir jökl­inum.

  3. Stórt öskju­sig í Bárð­ar­bungu og gos í öskju­broti. Slíkt gos gæti brætt mik­inn ís og valdið veru­legu jök­ul­hlaupi. Öskufall gæti orðið nokk­urt.


Skjálfta­virknin í Bárða­bungu, sigið, fram­rás kviku­gangs­ins og eld­gosið eru saman ein­stakur atburður sem hefur mikla þýð­ingu fyrir fræði­menn. Aldrei hafa fleiri mæli­tæki verið til staðar né heldur fleiri teg­undir mæli­tækja. Einnig hefur verið hægt að fylgj­ast með gos­inu í miklu návigi sem er ómet­an­legt. Rann­sókn­irnar auka skiln­ing á hvernig eld­stöðin Bárð­ar­bunga hegðar sér; hvernig gangur ferð­ast um í jarð­skorp­unni á hvaða dýpi, hve hratt hann ferð­ast og hvernig hann breytir spenn­unni í jarð­skorp­unni og hefur áhrif á nær­liggj­andi eld­fjöll. Einning veitir þetta fræði­mönnum mik­il­væga inn­sýn í hvernig jarð­skorpa mynd­ast á dýpi og á yfir­borði. En flestir svona kviku­gangar ná aldrei til yfir­borðs heldur kólna og frjósa djúpt í jarð­skorp­unni.

Hægt er að fylgj­ast með skjálfta­virkn­inni og fleiri mæl­ingum Veð­ur­stof­unnar á jarð­skjálfta­vefnum. Einnig er hægt að sjá áhuga­verðar myndir á fés­bók­ar­síðum Jarð­vís­inda­stofn­unar og Veð­ur­stofu Íslands.

Heimildir:


1 Sigurður Þór­ar­ar­ins­son, 1972. Trölla­gígar og Trölla­hraun. Jökull, 22, bls 19-26.

2 Nátt­úruvá á Íslandi, eld­gos og jarð­skjálftar, 2013. Rit­stjórar: Júlíus Sólnes, Frey­steinn Sig­munds­son og Bjarni Bessason. Háskóla­út­gáfan, Reykja­vík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árið 2014

SkýringÁrið 2014

Árið 2014: Mark­að­irnir í máli og myndum

Þegar litið er á þróun mark­aða með fast­eignir, hluta­bréf og gjald­eyri á árinu 2014 má sjá merki um auk­inn stöð­ug­leika sam­an­borið við árin á undan. Sveiflur eru mýkri og meira jafn­vægi ríkir en gerði á árunum 2009 til 2013, hvað þá heldur í sam­an­burði við árin 2005-2008. Verð­bólgu hefur verið haldið í skefjum, áhrif meiri­háttar stjórn­valds­að­gerða hafa ekki komið fram...
FréttirÁrið 2014

Árið 2014: Vin­sæl­ast í Kjarn­anum á árinu

Alm­an­aks­árið hefur verið við­burða­ríkt í Kjaranum. Kjarninn færði sig alfarið á ver­ald­ar­vef­inn í lok sum­ars og hefur nú eitt heim­il­is­fang í stað nokk­urra. Fjöldi heim­sókna á kjarn­inn.is síðan þá hefur verið framar vonum og því áhuga­vert að kanna hvaða færslur hafa verið vin­sælastar meðal les­enda á þessum tíma.10. Gáma­kyn­slóðin Hrafn Jónsson, einn pistla­höf­unda Kjarnans, átti eina af vin­sæl­ustu færslum árs­ins...
PistillÁrið 2014

Hafsteinn Hauksson hagfræðingur

Árið 2014: Enn eitt hafta­árið á enda

Haf­steinn Gunnar Hauksson, hag­fræð­ingur og meist­ara­nemi við London School of Economics, fer yfir vendi­punkta í efna­hags­málum þjóð­ar­innar á árinu sem senn er á enda. Þetta var tíð­inda­mikið ár, og allt útlit fyrir að það næsta verði það líka. Gjald­eyr­is­kaup Seðla­bank­ans og gengi krón­unnar Vorið 2013 tók Seðla­banki Íslands upp stefnu sem bank­inn kallar „stýrt flot­gengi“, en hún felur í sér...
PistillÁrið 2014

Auðunn Atlason

Árið 2014: Stríð og friður í Evrópu

Auðunn Atlason er fasta­full­trúi Íslands hjá Öryggis- og sam­vinnu­stofnun Evrópu, og hefur á árinu 2014 haft ein­stak inn­sýn í utan­rík­is­póli­tíska heims­við­burði í Austur-Evrópu. Hann skrifa hér um spenn­una í Úkraínu og nágrenni og hvernig hún birt­ist okkur á árinu. Sumarið 2012 var Evr­ópu­mótið í fót­bolta haldið í Póllandi og Úkraínu. Þá horfðum við Íslend­ingar – og hálf heims­byggðin – á...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár