Árið 2014: Vinsælast í Kjarnanum á árinu

Alm­an­aks­árið hefur verið við­burða­ríkt í Kjaranum. Kjarninn færði sig alfarið á ver­ald­ar­vef­inn í lok sum­ars og hefur nú eitt heim­il­is­fang í stað nokk­urra. Fjöldi heim­sókna á kjarn­inn.is síðan þá hefur verið framar vonum og því áhuga­vert að kanna hvaða færslur hafa verið vin­sælastar meðal les­enda á þessum tíma.

10. Gámakynslóðin


Hrafn Jónsson, einn pistla­höf­unda Kjarnans, átti eina af vin­sæl­ustu færslum árs­ins þegar hann birti pistil sinn um leigu­mark­að­inn og hvernig hann er dæmdur til að berj­ast um litla kjall­ara­í­búð í hung­ur­leikum yfir­stétt­ar­innar. Hann full­yrðir jafn­framt að milli­stéttin sé „að leys­ast upp, fremja sjálfs­morð. Dýrasta kyn­slóð sög­unnar á ekki neitt.“

Þangað til ég finn banka­bók­ina eða kemst eitt­hvað áleiðis í því að fá Björgólf Thor til að afsala til mín 0,01% af eignum sínum ligg ég eins og ormur á leigu­í­búð­inni minni.

Ætli Björgólfur sé búinn að skrifa til baka?

9. Kærður fyrir svindl í Reykjavíkurmaraþoninu


Kjarninn flutti fyrstur miðla fréttir af því að hugs­an­lega hefði sig­ur­veg­ar­inn í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu í sumar svindlað með því að hljóta aðstoð í hlaup­inu. Málið vatt hratt upp á sig og skók mara­þon­heim­inn. Kjarninn fylgd­ist með til enda.

8. Partíblöðrur


Margrét Erla Maack skrifar reglu­lega pistla í Kjarnann. Í sept­em­ber skrif­aði hún um þvag­lát á almanna­færi í borg­ar­um­hverfi og hvað það væri nú ógeðs­legt.

Á galeið­unni virð­ist sem kló­sett fyrir karl­pen­ing­inn séu af skornum skammti, ekki kom­ist allir að sem vilja og því bregði karl­menn á það ráð að merkja sér ann­ara manna hús.

7. Útsýnið úr fílabeinsturninum


Hrafn á jafn­framt sjö­unda mest lesnu færsl­una á árinu. Útsýnið úr fíla­beins­turn­inum fjall­aði um þá Sigmund Davíð og Bjarna Bene­dikts­son og hvernig þeir rétt­læta skulda­nið­ur­fell­ing­arnar og lyga­vef Gísa Freys Val­dórs­sonar, sem hafði þá nýverið við­ur­kennt lygar sínar.
Í myrkv­uðu húsi í Garða­bænum hefur kveðið við annan tón þar sem Bjarni Bene­dikts­son hefur staðið glas­eygður og grá­baug­aður fyrir framan bað­her­berg­is­speg­il­inn og sagt við sjálfan sig: „Sama hvað ger­ist á morgun þá ertu ennþá flottur strákur,“ og hnyklað svo brjóst­vöðvana á sér mátt­leys­is­lega því til ósann­færðar stað­fest­ingar.

6. Sjálfdautt mannorð


Hrafn varð enn og aftur „viral“ þegar hann skrif­aði Kjaftæði í nóv­em­ber þar sem hann tók snún­ing á yfir­tök­unni á DV. Pistill­inn var stór­kos­legur og þar sann­aði Hrafn hversu góður hann er að skella upp mynd af sam­fé­lag­inu með kolsvörtum húmor.
Þeir ættu samt að fylgja for­dæmi Björns Leifs­sonar sem loks­ins tókst að sanna að besta leiðin til að þagga niður í mann­orðs­morð­ingjum sé að kaupa þá ofan í gröf­ina þegar hann ark­aði bón­að­ari og bísperrt­ari en steypu­skauf­inn sem hann lét reisa fyrir utan Laugar – með 15 ára gömul Oakley-sól­gler­augu eins og sam­blanda af horm­óna­bættum hjól­reiða­kappa og auka­leik­ara í Dolph Lundgren-sjón­varps­mynd – inn í hlut­hafa­hóp DV og til­kynnti að hann ætl­aði að bæta blaða­mennsku á Íslandi með því að kaupa hana.

5. Birtið upptökuna strax


Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarnans, skrif­aði leið­ara í októ­ber þar sem hann fjall­aði um sam­tal Geirs H. Haarde og Davíðs Odds­sonar sem þeir áttu í miðju efna­hags­hruns­ins 2008.

Til þess að geta horft áfram þurfum við að geta hætt að horfa aft­urá­bak. Það ger­ist ekki nema myndin sem blasir við í bak­sýn­is­spegl­inum sé skýr. Og hún verður mun skýr­ari strax eftir að búið verður að spila sam­tal Geirs og Davíðs upp­hátt og fyrir alla.

4. Hinn fársjúki farsi Hönnu Birnu


Kjarn­anum barst pist­ill frá Krist­jáni Hrannari Pálssyni þar sem hann fjallar um Leka­málið og ber það saman við það þegar alkó­hólistar ljúga að öllum til að kom­ast undan fíkn sinni.

3. Benedikt Erlingsson móðgaði Illuga á verðlaunaafhendingu


Leik­stjór­inn og leik­ar­inn Benedikt Erlings­son skaut föstum skotum að mennta­mála­ráð­herra á verð­launa­af­hend­ingu í Stokk­hólmi í októ­ber. Gagn­rýndi hann stjórn­völd fyrir nið­ur­skurð á fjár­fram­lögum til kvik­mynda­gerðar þegar hann veitti verð­launum fyrir Hross í oss við­töku.

2. Leiðréttingardæmi: Fékk 50% af eftirstöðvum lánsins niðurfellt


Kjarninn birti raun­veru­leg dæmi um leið­rétt­ing­una sem ein­stak­lingar fengu í nóv­em­ber, sam­kvæmt aðgerðum rík­is­stjórn­ar­innar. Eitt þess­ara dæma var af hjónum sem keyptu sér ein­býl­is­hús fyrir 75 millj­ónir króna árið 2005, greiddu lánin af því að mestu upp árið 2008 og seldu húsið árið 2012 fyrir meira en upp­reiknað kaup­verð að við­bættum end­ur­bótum, fá 3,6 millj­ónir króna í leið­rétt­ingu.

1. Ísland er ónýtt


Pistill Braga Páls Sig­urð­ar­sonar er vin­sælasta færslan á vef Kjarnans á árinu. Bragi Páll var mjög gagn­rýn­inn á sam­fé­lagið og stjórn­völd og hefur greini­lega slegið á við­kvæma strengi meðal þjóð­ar­innar.

En svo kom skell­ur­inn. Hrunið sem var svo dásam­legt. Algjört wake up call. Allt í einu ferskir vindar og fólk að tala um ójöfn­uð­inn og brjál­æðið sem hafði við­geng­ist. Ég trúði því í alvör­unni að eitt­hvað gæti breyst. Til hins betra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árið 2014

SkýringÁrið 2014

Árið 2014: Mark­að­irnir í máli og myndum

Þegar litið er á þróun mark­aða með fast­eignir, hluta­bréf og gjald­eyri á árinu 2014 má sjá merki um auk­inn stöð­ug­leika sam­an­borið við árin á undan. Sveiflur eru mýkri og meira jafn­vægi ríkir en gerði á árunum 2009 til 2013, hvað þá heldur í sam­an­burði við árin 2005-2008. Verð­bólgu hefur verið haldið í skefjum, áhrif meiri­háttar stjórn­valds­að­gerða hafa ekki komið fram...
PistillÁrið 2014

Auðunn Atlason

Árið 2014: Stríð og friður í Evrópu

Auðunn Atlason er fasta­full­trúi Íslands hjá Öryggis- og sam­vinnu­stofnun Evrópu, og hefur á árinu 2014 haft ein­stak inn­sýn í utan­rík­is­póli­tíska heims­við­burði í Austur-Evrópu. Hann skrifa hér um spenn­una í Úkraínu og nágrenni og hvernig hún birt­ist okkur á árinu. Sumarið 2012 var Evr­ópu­mótið í fót­bolta haldið í Póllandi og Úkraínu. Þá horfðum við Íslend­ingar – og hálf heims­byggðin – á...
PistillÁrið 2014

Hafsteinn Hauksson hagfræðingur

Árið 2014: Enn eitt hafta­árið á enda

Haf­steinn Gunnar Hauksson, hag­fræð­ingur og meist­ara­nemi við London School of Economics, fer yfir vendi­punkta í efna­hags­málum þjóð­ar­innar á árinu sem senn er á enda. Þetta var tíð­inda­mikið ár, og allt útlit fyrir að það næsta verði það líka. Gjald­eyr­is­kaup Seðla­bank­ans og gengi krón­unnar Vorið 2013 tók Seðla­banki Íslands upp stefnu sem bank­inn kallar „stýrt flot­gengi“, en hún felur í sér...
FréttirÁrið 2014

Árið 2014: Bárð­ar­bunga bærir á sér

Ég er í dokt­ors­námi við Cambridgeháskóla í Bret­landi og lenti í ótrú­legri atburða­rás þegar Bárð­ar­bunga fór að bæra á sér. Ég var nýbyrjuð í nám­inu þannig að Bárð­ar­bunga hefur yfir­tekið verk­efnið mitt. Ótrúleg heppni að lenda í miðri hring­iðunni. Cambridge hefur verið með skjálfta­mæla­net á Öskju­svæð­inu síðan 2006 sem hefur hægt og rólega farið stækk­andi. Þegar aukin skjálfta­virkni í Bárð­ar­bungu...
PistillÁrið 2014

Ketill Sigurjónsson

Árið 2014: Dramat­ískt ár í orku­bú­skapnum

Ketill Sig­ur­jóns­son, orku­blogg­ari og MBA frá CBS, fylgist grannt með gangi mála í orku­geir­anum á heims­vísu og hér á landi. Hann fer yfir helstu atburði árs­ins, sem voru dramat­ískir í meira lagi, í þessum grunni hag­kerfa heims­ins. Nobody knows nut­hin! Þessi kald­hæðn­is­lega speki, sem Jack Bogle, stofn­andi Vanguard, vísar stundum til, minnir okkur á að þegar horft er til fram­tíðar...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár