Árið 2014: Markaðirnir í máli og myndum

Þegar litið er á þróun mark­aða með fast­eignir, hluta­bréf og gjald­eyri á árinu 2014 má sjá merki um auk­inn stöð­ug­leika sam­an­borið við árin á undan. Sveiflur eru mýkri og meira jafn­vægi ríkir en gerði á árunum 2009 til 2013, hvað þá heldur í sam­an­burði við árin 2005-2008. Verð­bólgu hefur verið haldið í skefjum, áhrif meiri­háttar stjórn­valds­að­gerða hafa ekki komið fram svo sýni­legt sé og nátt­úru­ham­farir höfðu ekki telj­andi áhrif nema ef til vill á leit­ar­vél Google.

Hér að neðan má sjá nokkur rit og gröf sem varpa ljósi á inn­lenda mark­aði árið 2014. Var árið sem leið ár stöð­ug­leik­ans, í miðjum storm­inum milli lög­fest­ingar og afnáms gjald­eyr­is­haft­anna?

Hluta­bréf

Breyting á verði hluta­bréfa í Kaup­höll­inni árið 2014 |Create infographics

Í Kaup­höll­inni áttu félögin Össur og HB Grandi góðu gengi að fagna. Mark­aðsvirði þeirra hækk­aði um ríf­lega 50% frá ára­mótum. Bréf Granda tóku mik­inn kipp í kjöl­far birt­ingar á upp­gjöri 3. árs­fjórð­ungs á meðan meiri síg­andi var í hækk­unum á mark­aðsvirði Össurar. Fjar­skipti hf og Nýherji hafa sömu­leiðis séð virði sitt hækka á mark­aði, en fyrr­nefnda félagið stendur nú hærra en það gerði fyrir „leka­mál“ Vodafone árið 2013.

Þróun úrvals­vísi­töl­unnar 2014 |Create infographics

Úrvals­vísi­talan OMXI8 sam­anstendur af átta félögum en þeim var fjölgað um tvö síð­ast­liðið sumar. Trygg­inga­fé­lögin eru inn­an­borðs og hafa áhrif á lækkun vísi­töl­unnar á fyrri hluta árs­ins. Öll önnur félög í vísi­töl­unni hækk­uðu á árinu, þótt breyt­ingar á verði hluta­bréfa í Marel og Högum hafi verið litlar.

Þróun hluta­bréfa­verðs Trygg­inga­fé­lag­anna í Kauphöll |Create infographics

Hér sést verð­þróun trygg­inga­fé­lag­anna þriggja, TM, VÍS og Sjóvá. Lækkunin frá árs­byrjun nemur 12 til 18 pró­sentum, minnst hjá Sjóvá sem fór á markað síð­ast­liðið vor. Þegar mest lét höfðu hluta­bréf í TM og VÍS lækkað um fjórð­ung en sú lækkun hefur að nokkru gengið til baka á síð­ustu mán­uðum árs­ins.

Fast­eigna­mark­aður

[caption id="attachment_15673" align="alignnone" width="300"] Verð­breyt­ingar og velta á fast­eigna­mark­að­inum 2014. Klikkaðu á mynd­ina til þess að stækka hana.[/caption]

Fast­eigna­verð (rauðu súl­urnar) hefur hækkað um rúm 7% frá ára­mótum sem er í takt við þróun yfir lengra tíma­bil. Gráa svæðið á mynd­inni hér að ofan sýnir árið 2014 en það nær aftur til árs­byrjun 2007. Tölurnar eru að nafn­virði og fengnar af vef­síðu Þjóð­skrár. Augljóst er að mark­aður íbúða­hús­næðis er líf­legri en áður, verð fer hækk­andi og veltan eykst (bláa línan), einkum á síð­ari hluta árs­ins. Stærstu efna­hags­að­gerðir árs­ins, þ.e. nið­ur­fell­ing verð­tryggðra fast­eigna­skulda, gætu hæg­lega haft veru­leg áhrif á þennan markað á nýju ári, eins og ýmsir hafa spáð fyrir um.

Gjald­eyr­is­mark­aður

Geng­is­sveiflur krón­unnar 2009 til 2014 |Create infographics

Gengi íslensku krón­unnar hefur flöktað mikið um ára­bil og þannig haft áhrif á þjóð­ar­bú­skap­inn og stöð­ug­leika á mörk­uðum. Frá 2013 hefur seðla­bank­inn leit­ast við að jafna út tíma­bundnar sveiflur með eigin gjald­eyr­is­við­skiptum, eins og Haf­steinn Hauksson hag­fræð­ingur skýrir í

grein um efna­hags­málin 2014

. Það hefur skilað til­ætl­uðum árangri, eins og sjá má á mynd­inni.Þar er gengi í byrjun hvers árs stillt í gildið 1. Svarta línan sýnir hvernig gengið flökti árið 2014, þ.e. mun minna en árin áður þegar gengið hefur á tíðum látið óró­lega þrátt fyrir gjald­eyr­is­höftin.

Stöð­ug­leiki framundan?

Íslands­met í því að halda verð­bólgu í skefjum, stöðugt gengi og hóf­leg hækkun fast­eigna­verðs gefa fyr­ir­heit um kom­andi miss­eri, að öðru óbreyttu. Stöð­ug­leiki íslenska hag­kerf­is­ins innan gjald­eyr­is­hafta er meiri en áður. En gjald­eyr­is­höftin umlykja allt. Hvað verður þegar losnar um þau, er stóra spurn­ingin. Vonandi verður Ísland ekki vin­sælt á leit­ar­vél Google, það virð­ist aðeins ger­ast við nátt­úru- eða efna­hags­ham­farir.

[caption id="attachment_15678" align="alignnone" width="851"] Vin­sældir Íslands á leit­ar­vél Google.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árið 2014

FréttirÁrið 2014

Árið 2014: Vin­sæl­ast í Kjarn­anum á árinu

Alm­an­aks­árið hefur verið við­burða­ríkt í Kjaranum. Kjarninn færði sig alfarið á ver­ald­ar­vef­inn í lok sum­ars og hefur nú eitt heim­il­is­fang í stað nokk­urra. Fjöldi heim­sókna á kjarn­inn.is síðan þá hefur verið framar vonum og því áhuga­vert að kanna hvaða færslur hafa verið vin­sælastar meðal les­enda á þessum tíma.10. Gáma­kyn­slóðin Hrafn Jónsson, einn pistla­höf­unda Kjarnans, átti eina af vin­sæl­ustu færslum árs­ins...
PistillÁrið 2014

Auðunn Atlason

Árið 2014: Stríð og friður í Evrópu

Auðunn Atlason er fasta­full­trúi Íslands hjá Öryggis- og sam­vinnu­stofnun Evrópu, og hefur á árinu 2014 haft ein­stak inn­sýn í utan­rík­is­póli­tíska heims­við­burði í Austur-Evrópu. Hann skrifa hér um spenn­una í Úkraínu og nágrenni og hvernig hún birt­ist okkur á árinu. Sumarið 2012 var Evr­ópu­mótið í fót­bolta haldið í Póllandi og Úkraínu. Þá horfðum við Íslend­ingar – og hálf heims­byggðin – á...
PistillÁrið 2014

Hafsteinn Hauksson hagfræðingur

Árið 2014: Enn eitt hafta­árið á enda

Haf­steinn Gunnar Hauksson, hag­fræð­ingur og meist­ara­nemi við London School of Economics, fer yfir vendi­punkta í efna­hags­málum þjóð­ar­innar á árinu sem senn er á enda. Þetta var tíð­inda­mikið ár, og allt útlit fyrir að það næsta verði það líka. Gjald­eyr­is­kaup Seðla­bank­ans og gengi krón­unnar Vorið 2013 tók Seðla­banki Íslands upp stefnu sem bank­inn kallar „stýrt flot­gengi“, en hún felur í sér...
FréttirÁrið 2014

Árið 2014: Bárð­ar­bunga bærir á sér

Ég er í dokt­ors­námi við Cambridgeháskóla í Bret­landi og lenti í ótrú­legri atburða­rás þegar Bárð­ar­bunga fór að bæra á sér. Ég var nýbyrjuð í nám­inu þannig að Bárð­ar­bunga hefur yfir­tekið verk­efnið mitt. Ótrúleg heppni að lenda í miðri hring­iðunni. Cambridge hefur verið með skjálfta­mæla­net á Öskju­svæð­inu síðan 2006 sem hefur hægt og rólega farið stækk­andi. Þegar aukin skjálfta­virkni í Bárð­ar­bungu...
PistillÁrið 2014

Ketill Sigurjónsson

Árið 2014: Dramat­ískt ár í orku­bú­skapnum

Ketill Sig­ur­jóns­son, orku­blogg­ari og MBA frá CBS, fylgist grannt með gangi mála í orku­geir­anum á heims­vísu og hér á landi. Hann fer yfir helstu atburði árs­ins, sem voru dramat­ískir í meira lagi, í þessum grunni hag­kerfa heims­ins. Nobody knows nut­hin! Þessi kald­hæðn­is­lega speki, sem Jack Bogle, stofn­andi Vanguard, vísar stundum til, minnir okkur á að þegar horft er til fram­tíðar...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár