Árið 2014: Fréttir af erlendri grund

Átök hafa sett svip sinn á árið 2014 á erlendri grund. Gríð­ar­lega harka­leg átök hófust í aust­ur­hluta Úkraínu eftir mikil mót­mæli þar í landi í lok árs 2013. Átök Palest­ínu­mann og Ísraela héldu áfram þegar Ísra­els­her hóf 50 daga linnu­lausar árásir á Gasa-svæðið. Þá náðu hryðju­verka­sam­tök sem kenna sig við íslamskt ríki miklum land­svæðum í norð­ur­hluta Írak og Sýrlandi.

Í Afríku breidd­ist ebola-smit­sóttin hratt út vegna lélegra inn­viða þar. Það var ekki fyrr en að ótti sló vest­ur­lönd sem virki­legt átak var gert til að hefta útbreiðslu sjúk­dóms­ins. Hér að neðan má sjá helstu svip­myndir frá árinu 2014.

Janúar


[caption id="attachment_14338" align="alignnone" width="1024"] Hörð átök brut­ust út í aust­ur­hluta Úkraínu í byrjun árs í kjöl­far mót­mæla sem hófust þar í nóv­em­ber 2013. Stjórn­völd í Úkraínu voru hlið­holl Rússum, gegn aðild að Evr­ópu­sam­band­inu, og beittu örygg­is­sveitum sínum harð­lega gegn mót­mæl­endum sem höfðu komið sér ræki­lega fyrir í Kænu­garði. Viktor Janúkó­vítsj, for­seti Úkraínu, sat enn en átti síðar eftir að flýja til Rúss­lands.[/caption]

Febrúar


[caption id="attachment_14369" align="alignnone" width="1024"] Vetr­ar­ólymp­íu­leik­arnir fóru fram í Sotsíj í Rúss­landi í ár. Rússar eyddu gríð­ar­legum fjár­munum í að byggja ólymp­íu­þorpið í þessum vin­sæla sum­ar­dval­ar­stað Rússa við Svarta­haf. Heima­menn voru sig­ur­sæl­astir á mót­inu með 13 gull­veð­laun, 11 silfur og 9 brons.[/caption]

[caption id="attachment_14370" align="alignnone" width="1024"] Á meðan Rússar héldu ólymp­íu­leika urðu átökin í Úkraínu harka­legri. Þann 26. febr­úar inn­lim­uðu Rússar Krím­skaga frá Úkraínu sem varð til þess að Vest­ur­lönd hófu að beita Rússum harka­legri við­skipta­þving­unum. Um mán­að­ar­mót febr­úar og mars lögðu upp­reisn­ar­menn hlið­hollir Rússum undir sig stór land­svæði í Donetsk-hér­aði í aust­ur­hluta Úkraínu.[/caption]

Mars


[caption id="attachment_14373" align="alignnone" width="1024"] Rétt­ar­höld yfir Oscar Pistor­ius hófust í Pretoriu þar sem hann var ákærður fyrir morðið á unn­ustu sinni Reevu Steenkamp. Í októ­ber var Pistor­ius dæmdur til fimm ára fang­els­is­vistar fyrir mann­dráp af gáleysi.[/caption]

Apríl


[caption id="attachment_14375" align="alignnone" width="1024"] Ætt­ingjar týndra far­þega fylgd­ust með björg­un­ar­að­gerðum eftir að ferja sökk við strendur Suður Kóreu um miðjan apríl. 304 far­þegar fór­ust í slys­inu, níu þeirra er enn saknað. Skip­stjór­inn og 14 áhafn­ar­með­limir voru dæmd fyrir mann­dráp, fyrir að yfir­gefa skipið og gáleysi. Af 476 far­þegum voru meira en 300 ung­menni í skóla­ferð.[/caption]

Maí


[caption id="attachment_14377" align="alignnone" width="1024"] Gengið var til kosn­inga til Evr­ópu­þings­ins í lok maí. Í Bret­landi hlaut UKIP, sjálf­stæð­is­flokkur Breta, mest fylgi allra fram­boða. Leið­tog­inn Nigel Farage var að vonum ánægður, enda hefur umræðan um aðild Breta að Evr­ópu­sam­band­inu aldrei verið eld­fimari en einmitt á árinu 2014.[/caption]

[caption id="attachment_14378" align="alignnone" width="1024"] Níger­ísku hryðju­verka­sam­tökin Boko Haram (ísl. Vestræn menn­ing er synd­sam­leg) rændu 276 stúlkum úr skóla í apríl og maí. Var ótt­ast að stúlk­urnar væru látnar. Banda­ríkja­menn hafa sendu sér­stakan leit­ar­hóp til Nígeríu til að hafa upp á stúlk­unum. Ein­hverjar stúln­anna sluppu úr haldi en enn er óljóst um afdrif 219 stúlkna. Mann­ránið vakti að vonum mikla reiði í Nígeríu og voru haldnir fjöl­mennir úti­fundir þar sem níger­ísk stjórn­völd voru gagn­rýnd fyrir aðgerða­leysi.[/caption]

Júní


[caption id="attachment_14380" align="alignnone" width="1024"] Heims­meist­ara­mótið í fót­bolta hófst í Brasilíu í júní. Gríð­ar­leg eft­ir­vænt­ing var meðal fót­bolta­á­huga­manna um allan heim og stærstu dag­blöð í heimi fluttu ítar­legar fréttir af hverjum ein­asta leik. Þegar mótið hófst hurfu einnig gagn­rýnar fregir af fram­kvæmd móts­ins en Bras­il­íu­menn byggðu mikil mann­virki fyrir mótið. Verka­menn­irnir hlutu hins vegar léleg kjör og almenn­ingur í land­inu fannst sárt að hagn­aður af móts­hald­inu skyldi að mestu leiti renna til FIFA, en ekki í brasil­íska hag­kerfið.[/caption]

[caption id="attachment_14381" align="alignnone" width="926"] Þessari mynd, ásamt fjölda ann­arra, var dreift á vefnum í júní og sýndu þær allar fjölda­af­tökur Hins íslamska ríkis Íraks og Aust­ur­landa nær (ISIS) á öryggis­vörðum í Írak. ISIS lagði undir sig stór land­svæði í Írak og Sýrlandi um mitt árið en mark­mið sam­tak­anna er að leggja undir sig löndin fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs. Til þess hafa þau beitt grimmi­legum árásum á óbreytta borg­ara, ekki síst konur og börn.[/caption]

[caption id="attachment_14382" align="alignnone" width="1024"] Palest­ínskir lög­reglu­menn drógu fram skildi til að verj­ast sam­löndum sínum sem mót­mæltu á götum Ramallah á Vest­ur­bakk­anum. Lög­reglan þar hafði sleg­ist í lið með Ísraelum sem leit­uðu þriggja ísra­el­skra ung­menna sem hurfu spor­laust í fjall­göngu fyrr í júní. Lík ung­menn­ana fund­ust 30. júní og voru tveir Hamas-liðar grun­aðir um morðin. Þessi atburður var liður stig­vax­andi hörku milli Ísrael og Palest­ínu í sumar, auk þess sem að palest­ínskir skæru­liðar skutu æ fleiri flugsk­eitum yfir landa­mærin til Ísrael. Ísraelar svör­uðu svo í júlí með því að hefja flug­skeyta­árásir úr lofti á Gasa-strönd­ina.[/caption]

Júlí


[caption id="attachment_14384" align="alignnone" width="1024"] Þýska­land varð heims­meist­ari í fót­bolta þegar lið þeirra lagði Argent­ínu í úrslita­leik HM 2014 í júlí. Var það í fjórða sinn sem Þjóð­verjar hampa titl­inum. Brasil­íska liðið var heillum horfið en komst þó í umspil um þriðja sætið (eftir 7-1 tap gegn Þjóð­verjum), þar sem það tap­aði gegn Hol­lend­ingum.[/caption]

[caption id="attachment_14385" align="alignnone" width="1024"] Átökin í Úkraínu voru færð á annað stig þegar upp­reisn­ar­menn hlið­hollir Rússum skutu niður far­þega­þotu Malaysia Airlines 17. júlí. Strax í kjöl­farið fóru báðir aðilar átak­anna að benda fingrum á hvorn annan. Nið­ur­staðna hol­lenskra rann­sókn­araðlila er að vænta í ágúst á næsta ári en frum­gögn sem sett hafa verið fram af banda­ríska hernum benda til þess að skotið hafi verið af jörðu niðri frá rúss­neskum skot­palli. Þotan hafði verið á leið frá Amster­dam til Kuala Lumpur og allir 298 far­þeg­arnir fór­ust.[/caption]

[caption id="attachment_14386" align="alignnone" width="1024"] Lof­á­rásir Ísra­els­manna á Gasa-svæðið hófust í júlí með miklu mann­falli og stóðu í 50 daga (8. júlí til 26. ágúst). Flug­skeytin, sem ísra­elski her­inn sagði miðuð að Hamas-sam­tök­unum, féllu á þéttar íbúða­byggðir á Gasa með þeim afleið­ingum að rúm­lega 2.000 palest­ínu­menn féllu í stríð­inu, 513 af þeim börn. 66 ísra­elskir her­menn féllu auk eins ísra­elsks borg­ara. Bæði Ísraelar og Palest­ínu­menn segj­ast hafa unnið stríðið, sem var þó aðeins síð­asta lota átaka þjóð­anna.[/caption]

Ágúst


[caption id="attachment_14387" align="alignnone" width="1024"] Viða­mesti far­aldur ebólu-vírus­ins braust út í Vestur-Afríku í des­em­ber 2013. Nú í lok árs 2014 (10. des­em­ber) hafa 6.990 lát­ist af völdum ebólu­smits, nán­ast allir voru afrískir rík­is­borg­arar. Einn Banda­ríkja­maður hefur lát­ist. Alþjóða heil­brigð­is­stofn­unin hefur talið 18.232 hugs­an­leg smit en segir þessar tölur þó ekki gefa góða mynd af far­aldr­inum sem kann að vera mun umfangs­meiri. Búið er að hefta útbreiðslu far­ald­urs­ins nokk­urn­veg­inn við löndin þrjú þar sem hann braust út; Líberíu, Sierra Leone og Gíneu.[/caption]

[caption id="attachment_14388" align="alignnone" width="1024"] „Þú ert bara barn; hefur ekki glóru um hvað þú ert að tala um.“ Gam­an­leik­ar­inn Robin Williams lést 11. ágúst. Yfirvöld í Kali­forníu segja hann hafa fallið fyrir eigin hendi eftir að hafa glímt lengi við eit­ur­lyfjafíkn og þung­lyndi. Williams var þekktur fyrir æðis­gengna fram­göngu og orku­mikla túlkun á per­sónum sínum. Hann hlaut þó einu Ósk­arsverð­laun sín fyrir heldur jarð­bundn­ara hlut­verk, þegar hann lék sál­fræð­ing­inn í Good Will Hunting. Hér má sjá Robin Williams í ess­inu sínu í banda­ríska gam­an­þætt­inum Who's line is it anyway?[/caption]

September


[caption id="attachment_14389" align="alignnone" width="927"] Liðsmenn Íslamska rík­is­ins tóku tvo banda­rískaa blaða­menn af lífi á hrotta­feng­inn hátt og vörp­uðu mynd­böndum af því á netið. Á mynd­inni sést Steven Sotloff í skjá­skoti af mynd­bandi af aftöku hans , en honum var rænt í Sýrlandi árið 2013. Böð­ull­inn hót­aði þriðju aftök­unni og sagði breskan blaða­mann næstan. James Foley hafði áður verið tek­inn af lífi á sama hátt. Samtökin segj­ast hafa fleiri fjöl­miðla­menn og hjálp­ar­starfs­menn í haldi en ein­hverjir fang­anna hafa náð að kom­ast undan.[/caption]

[caption id="attachment_14390" align="alignnone" width="1024"] Skotar kusu um sjálf­stæði frá Bretum í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu í sept­em­ber. Fyrsti ráð­herra skota og for­maður skoska þjóð­ar­flokks­ins, Alex Salmond, leiddi kosn­inga­báráttu já-liða og brá á leik rétt fyrir kosn­ing­arnar. Svo fór að Skotar höfn­uðu sjálf­stæði með 55,3 pró­sent atkvæða. Breska stjórn­inn hafði fyrir kosn­ing­arnar lofað Skotum auknu sjálf­ræði ef þeir myndu hafna sjálf­stæði.[/caption]

Október


[caption id="attachment_14391" align="alignnone" width="1024"] Kim Jong-Un glímdi við veik­indi á árinu og lét ekki sjá sig í tölu­verðan tíma áður en hann birt­ist með göngustaf í októ­ber. Kim skoð­aði þá nýbygg­ingar í Pyongyang með næst­ráð­endum sínum. Við óvænt hvarf hans spruttu sögu­sagnir um að gerð hefði verið hall­ar­bylt­ing í ein­ræð­is­rík­inu Norður-Kóreu.[/caption]

Nóvember


[caption id="attachment_14393" align="alignnone" width="1024"] Palest­ínskar stúlkur léku sér í skól­anum sínum sem hafði verið eyði­lagður í stríð­inu á Gasa-svæð­inu í sumar. Mann­rétt­inda­sam­tök segja Ísra­els­her hafa framið stríðs­glæpi í stríð­inu með því að ráð­ast harka­lega gegn óbreyttum borg­urum og helstu innviðum palest­ínska sam­fé­lags­ins sem hefur að miklu leiti verið byggt upp með hjálp hjálp­ar­sam­taka.[/caption]

[caption id="attachment_14394" align="alignnone" width="1024"] Enn er borg­ara­styrj­öld í Sýrlandi sem hefur nú staðið í tæp fjögur ár. Meira en 6,5 millj­ónir Sýr­lend­inga er nú á flótta undan átök­unum sem bein­ast ekki síst gegn óbreyttum borg­urum. Um þrjár millj­ónir Sýr­lend­inga hafa kom­ist til nágranna­landa og eru skil­greindir sem flótta­menn. Þessi drengur hlaut lækn­is­að­stoð í sjúkra­skýli í smá­bænum Douma rétt utan við Damaskus.[/caption]

Desember


[caption id="attachment_14395" align="alignnone" width="1024"] Hin pakist­anska Malala Yousafzai hlaut Frið­ar­verð­laun Nóbels í ár. Hún er aðeins 17 ára gömul og er þar af leið­andi yngsti hand­hafi þess­arar við­ur­kenn­ingar. Malala hefur barist fyrir rétt­indum stúlkna í Pakistan til að hljóta menntun. Hún deilir verð­laun­unum þetta árið með Kalash Styarthi frá Indlandi sem í 35 ár hefur barist fyrir því að þús­undir barna séu frelsuð úr ánauð barna­þrælk­unar.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árið 2014

SkýringÁrið 2014

Árið 2014: Mark­að­irnir í máli og myndum

Þegar litið er á þróun mark­aða með fast­eignir, hluta­bréf og gjald­eyri á árinu 2014 má sjá merki um auk­inn stöð­ug­leika sam­an­borið við árin á undan. Sveiflur eru mýkri og meira jafn­vægi ríkir en gerði á árunum 2009 til 2013, hvað þá heldur í sam­an­burði við árin 2005-2008. Verð­bólgu hefur verið haldið í skefjum, áhrif meiri­háttar stjórn­valds­að­gerða hafa ekki komið fram...
FréttirÁrið 2014

Árið 2014: Vin­sæl­ast í Kjarn­anum á árinu

Alm­an­aks­árið hefur verið við­burða­ríkt í Kjaranum. Kjarninn færði sig alfarið á ver­ald­ar­vef­inn í lok sum­ars og hefur nú eitt heim­il­is­fang í stað nokk­urra. Fjöldi heim­sókna á kjarn­inn.is síðan þá hefur verið framar vonum og því áhuga­vert að kanna hvaða færslur hafa verið vin­sælastar meðal les­enda á þessum tíma.10. Gáma­kyn­slóðin Hrafn Jónsson, einn pistla­höf­unda Kjarnans, átti eina af vin­sæl­ustu færslum árs­ins...
PistillÁrið 2014

Auðunn Atlason

Árið 2014: Stríð og friður í Evrópu

Auðunn Atlason er fasta­full­trúi Íslands hjá Öryggis- og sam­vinnu­stofnun Evrópu, og hefur á árinu 2014 haft ein­stak inn­sýn í utan­rík­is­póli­tíska heims­við­burði í Austur-Evrópu. Hann skrifa hér um spenn­una í Úkraínu og nágrenni og hvernig hún birt­ist okkur á árinu. Sumarið 2012 var Evr­ópu­mótið í fót­bolta haldið í Póllandi og Úkraínu. Þá horfðum við Íslend­ingar – og hálf heims­byggðin – á...
PistillÁrið 2014

Hafsteinn Hauksson hagfræðingur

Árið 2014: Enn eitt hafta­árið á enda

Haf­steinn Gunnar Hauksson, hag­fræð­ingur og meist­ara­nemi við London School of Economics, fer yfir vendi­punkta í efna­hags­málum þjóð­ar­innar á árinu sem senn er á enda. Þetta var tíð­inda­mikið ár, og allt útlit fyrir að það næsta verði það líka. Gjald­eyr­is­kaup Seðla­bank­ans og gengi krón­unnar Vorið 2013 tók Seðla­banki Íslands upp stefnu sem bank­inn kallar „stýrt flot­gengi“, en hún felur í sér...
FréttirÁrið 2014

Árið 2014: Bárð­ar­bunga bærir á sér

Ég er í dokt­ors­námi við Cambridgeháskóla í Bret­landi og lenti í ótrú­legri atburða­rás þegar Bárð­ar­bunga fór að bæra á sér. Ég var nýbyrjuð í nám­inu þannig að Bárð­ar­bunga hefur yfir­tekið verk­efnið mitt. Ótrúleg heppni að lenda í miðri hring­iðunni. Cambridge hefur verið með skjálfta­mæla­net á Öskju­svæð­inu síðan 2006 sem hefur hægt og rólega farið stækk­andi. Þegar aukin skjálfta­virkni í Bárð­ar­bungu...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár