Lekamálið: Vinnubrögð Sigríðar Bjarkar ekki í samræmi við reglugerð

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, þáver­andi lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum, afhenti Gísla Frey Val­dórs­syni, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­manni Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, grein­ar­gerð um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos, í trássi við reglu­gerð um með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga hjá lög­reglu. Samkvæmt stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu stjórnar Lög­reglu­stjóra­fé­lags Íslands við Sigríði Björk, er það sömu­leiðis almennt verk­lag lög­reglu­stjóra að veita starfs­mönnum ráðu­neyta upp­lýs­ingar án þess að kanna hvort við­kom­andi starfs­maður hafi umboð til slíkrar upp­lýs­inga­öfl­unar.

Fullyrðir að hún hafi ekki gert neitt rangt


Í hádeg­is­fréttum RÚV á laug­ar­dag­inn full­yrti Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum og núver­andi lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, að hún hefði engin mis­tök gert þegar hún sendi Gísla Frey Val­dórs­syni, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­manni Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra, grein­ar­gerð um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos. Umbeðin grein­ar­gerð var send Gísla Frey 20. nóv­em­ber á síð­asta ári, eða sama dag og fyrstu frétt­irnar birt­ust upp úr minn­is­blaði um Tony Omos sem Gísli Freyr lak til fjöl­miðla. Gísli Freyr var á dög­unum dæmdur í átta mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi vegna lek­ans.

[quote font="0" align="right"]„Aðspurð, í áður­nefndri frétt RÚV, um hvort Gísli Freyr hafi óskað eftir grein­ar­gerð­inni með form­legum hætti, taldi Sigríður Björk svo ekki vera.“[/quote]

Sigríður Björk sagði að grein­ar­gerðin hefði verið send Gísla Frey í góðri trú, þar sem fram hafi komið í sím­tali þeirra á milli að hann væri að hringja og biðja um grein­ar­gerð­ina fyrir inn­an­rík­is­ráðu­neytið. Sigríður Björk vís­aði máli sínu til stuðn­ings til 14. greinar laga um Stjórn­ar­ráð Íslands, en þar segir orð­rétt: „Ráðherra getur krafið stjórn­vald, sem heyrir undir yfir­stjórn hans, um hverjar þær upp­lýs­ingar og skýr­ingar sem honum er þörf á til að sinna yfir­stjórn­ar­hlut­verki sínu.“

Óskaði ekki eftir greinargerðinni með formlegum hætti


Aðspurð, í áður­nefndri frétt RÚV, um hvort Gísli Freyr hafi óskað eftir grein­ar­gerð­inni með form­legum hætti, taldi Sigríður Björk svo ekki vera. „Ég held ekki, ég held að hann hafi bara hringt og beðið um þetta. [...] Það er mjög oft sem fara sím­töl á milli, það er ekk­ert alltaf form­legar fyr­ir­spurnir á milli ráðu­neytis og und­ir­stofn­anna. [...] Ég held að aðstoð­ar­menn hafi bara oft beðið um upp­lýs­ingar í ein­stökum gögnum,“ sagði Sigríður Björk í sam­tali við Frétta­stofu RÚV á laug­ar­dag­inn.

[quote font="0" align="right"]„Lög­reglu­stjórar líta ein­fald­lega svo á að ekki þurfi að efast um umboð starfs­manna ráðu­neytis til sam­skipta við lög­reglu­stjóra.“[/quote]

Stjórn Lög­reglu­stjóra­fé­lags Íslands sendi frá sér frétta­til­kynn­ingu í gær vegna máls­ins. Þar segir að í fréttum hafi borið á því sam­skipti þáver­andi lög­reglu­stjóra á Suð­ur­nesjum og fyrr­ver­andi aðstoð­ar­manns inn­an­rík­is­ráð­herra vegna grein­ar­gerð­ar­innar hafi verið gerð tor­tryggi­leg. Þess ber að geta að Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir á sæti í stjórn Lög­reglu­stjóra­fé­lags­ins, en hún kom ekki að gerð frétta­til­kynn­ing­ar­innar.

Í til­kynn­ing­unni segir: „Sam­skipti lög­reglu­stjóra og ráðu­neytis hafa verið og eru mikil; bæði form­leg, s.s. með bréfum, og óform­leg, s.s. með sím­tölum, og snerta þau sam­skipti alla þætti í starf­semi lög­reglu­emb­ætta, sem undir ráð­herra falla. Sam­skipti lög­reglu­stjóra eru við alla starfs­menn ráðu­neytis án til­lits til stöðu þeirra innan ráðu­neyt­is­ins. Það ræðst af efni hvers erindis hver starfs­manna ráðu­neytis er í sam­skiptum við lög­reglu­stjóra. [...] Á þetta bæði við um emb­ætt­is­menn ráðu­neytis og aðstoð­ar­menn ráð­herra. Lög­reglu­stjórar líta ein­fald­lega svo á að ekki þurfi að efast um umboð starfs­manna ráðu­neytis til sam­skipta við lög­reglu­stjóra.“

Fullyrðingar og vinnubrögð sem stangast á við reglugerð


Í reglu­gerð um með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga hjá lög­reglu segir í 5. grein: „Að svo miklu leyti sem unnt er skulu mis­mun­andi teg­undir varð­veittra per­sónu­upp­lýs­inga aðgreindar í sam­ræmi við nákvæmni þeirra og áreið­an­leika. Upp­lýs­ingum um stað­reyndir skal halda aðgreindum frá gögnum byggðum á áliti eða mati. Einnig skal upp­lýs­ingum vegna stjórn­sýslu haldið aðgreindum frá upp­lýs­ingum vegna lög­reglu­starfa.“

Samkvæmt þessu ber lög­reglu að halda upp­lýs­ingum vegna stjórn­sýslu aðgreindum frá upp­lýs­ingum vegna lög­reglu­starfa. Miðað við yfir­lýs­ingar Sigríðar Bjarkar kann­aði hún ekki hvort Gísli Freyr, sem óskaði eftir grein­ar­gerð­inni, hefði umboð til að hlut­ast til um lög­reglu­mál.

[quote font="0" align="right"]„Vandséð er að tryggt hafi verið að farið sé eftir þessarri grein í til­felli grein­ar­gerð­ar­innar sem Sigríður Björk lét Gísla Frey í té sam­kvæmt sím­tali, án þess að fyrir lægi form­leg beiðni um upp­lýs­ing­arnar, og í hvaða til­gangi ætti að nota þær.“[/quote]

Ef það er almennt verk­lag lög­reglu­stjóra, eins og fram kemur í til­kynn­ingu Lög­reglu­stjóra­fé­lags Íslands, að deila öllum per­sónu­upp­lýs­ingum, sem aflað er í þágu lög­reglu­starfa, með hvaða starfs­manni ráðu­neytis sem sýnir þeim áhuga án þess að fyrir liggi form­leg beiðni, skil­grein­ing á þörfum fyrir upp­lýs­ingar, til­vísun til laga­greina eða umboð við­kom­andi starfs­manns, er vand­séð hvernig lög­reglu­stjórar geta tryggt eða haft eft­ir­lit með því að skil­yrði 6. greinar áður­nefndrar reglu­gerðar um með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga hjá lög­reglu sé upp­fyllt hverju sinni.

Samkvæmt skil­yrðum 6. greinar reglu­gerð­ar­innar verður per­sónu­upp­lýs­ingum ekki miðlað til ann­arra en innan lög­regl­unnar nema sam­kvæmt sam­þykki hins skráða, laga­heim­ild, heim­ild Per­sónu­verndar eða ef miðlun upp­lýs­inga er nauð­syn­leg til að koma í veg fyrir alvar­lega og aðsteðj­andi hættu.

Loks segir í 7. grein reglu­gerðar um með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga: „Per­sónu­upp­lýs­ingar sem lög­regla hefur miðlað má ekki nýta í öðrum til­gangi en þeim sem lýst var í beiðni um upp­lýs­ingar. Notkun upp­lýs­inga í öðru skyni er háð sam­þykki við­kom­andi lög­reglu­yf­ir­valds.“ Vandséð er að tryggt hafi verið að farið sé eftir þessarri grein í til­felli grein­ar­gerð­ar­innar sem Sigríður Björk lét Gísla Frey í té sam­kvæmt sím­tali, án þess að fyrir lægi form­leg beiðni um upp­lýs­ing­arnar, og í hvaða til­gangi ætti að nota þær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár