Lekamálið: Segir Sigríður Björk af sér næst?

Gísli Freyr Val­dórs­son, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra, var dæmdur í átta mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi á dög­unum fyrir að leka upp­lýs­ingum um hæl­is­leit­anda til fjöl­miðla. Fram að dómnum hafði Gísli Freyr ítrekað þver­neitað fyrir að tengj­ast lek­anum, en ákvörðun hans um að játa brotið sem honum var gefið að sök í ákæru Rík­is­sak­sókn­ara, kom nán­ast á sama tíma og upp­lýs­ingar bár­ust frá lög­reglu um að umrætt skjal hefði fund­ist í tölvu hans. Þar með var Gísli kom­inn í öng­stræti, og ákvað að nú væri mál að lyg­unum linnti. Hann hefur reyndar sjálfur haldið því fram að sönn­un­ar­gögn lög­reglu hafi ekki haft áhrif á ákvörðun hans um að játa skyndi­lega sök í mál­inu. Þá hefur hann sömu­leiðis þver­neitað að Hanna Birna hafi verið við­riðin málið.

Leka­málið hefur engu að síður reynst Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur erfitt, frá því að það fyrst komst í hámæli í fjöl­miðlum fyrir ári síðan. Samkvæmt heim­ildum RÚV og Nútímans hyggst Hanna Birna segja af sér emb­ætti inn­an­rík­is­ráð­herra í dag. Ekki eru öll kurl þó komin til grafar í mál­inu, og mörgum spurn­ingum enn ósvarað. Svo virð­ist sem fleiri aðilar máls­ins séu komnir með bakið upp við vegg.

Gísli Freyr enn og aftur tvísaga


Í kjöl­far fréttar DV um að Gísli Freyr og Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, þáver­andi lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum, hafi ræðst við í síma þrí­vegis við upp­haf leka­máls­ins, eða þann 20. nóv­em­ber í fyrra þegar fréttir byggðar á skjal­inu sem Gísli lak röt­uðu fyrst í fjöl­miðla, full­yrti Gísli Freyr í sam­tali við Kjarnann að mál­efni hæl­is­leit­and­ans Tony Omos hafi ekki verið til umræðu þeirra á milli í umræddum sím­tölum.

[quote font="0" align="right"]„Fram hefur komið að Sigríður Björk not­að­ist, ein­hverra hluta vegna, við óskráðan far­síma á heim­ili sínu til að hringja í Gísla til baka.“[/quote]

Eftir að frétt Kjarnans birt­ist, þar sem var haft eftir Gísla Frey: „Ég man ekki hvað við ræddum, en við ræddum ekki Tony Omos,“ hafði hann sam­band við Kjarnann og sagði að eftir að hafa farið betur yfir málið, og litið í minn­is­bók sína, hafi rifj­ast upp fyrir honum að fyrri stað­hæf­ing hans um inni­hald sím­tal­anna væri ekki rétt. Hann hafi spurt Sigríði út í Tony Omos, og hvort rann­sóknin á máli hans væri lokið. Fyrsta við­bragð Gísla Freys við fyr­ir­spurn Kjarnans, var sem sagt að full­yrða ósann­indi. Þá sagði Gísli Freyr sömu­leiðis í sam­tali við blaða­mann Kjarnans að hann hefði hringt tví­vegis í Sigríði Björk, hún hefði ekki hringt í hann. Það er reyndar ekki heldur rétt hjá Gísla, miðað við yfir­lýs­ingu Sigríðar Bjarkar.

Sendi pólitískum aðstoðarmanni greinargerð


Í kjöl­far áður­nefndar fréttar DV um sím­töl Gísla Freys og Sigríðar Bjarkar, sendi sú síð­ar­nefnda frá sér yfir­lýs­ingu. Þar kemur fram að hún hafi fyrst hringt í Gísla Frey, morg­un­inn örlaga­ríka þann 20. nóv­em­ber, til að svara skila­boðum frá honum. Fram hefur komið að Sigríður Björk not­að­ist, ein­hverra hluta vegna, við óskráðan far­síma á heim­ili sínu til að hringja í Gísla til baka. Það sím­tal bar ekki árangur, því Gísli svar­aði ekki sím­tal­inu.

Sigríður Björk og Gísli Freyr töl­uðu síðar tví­vegis saman í síma, en í sam­tölum þeirra óskaði Gísl Freyr eftir grein­ar­gerð frá emb­ætti lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum um mál­efni Tony Omos. Samkvæmt yfir­lýs­ingu Sigríðar Bjarkar var umbeðin grein­ar­gerð send Gísla Frey að kvöldi þessa sama dags. Sigríður Björk bendir á í yfir­lýs­ingu sinni að trún­að­ar­upp­lýs­ing­arnar sem Gísli Freyr var sak­felldur fyrir að leka, hafi hann látið af té til fjöl­miðla áður en sam­skipti þeirra áttu sér stað. Þetta komi meðal ann­ars fram í rann­sókn­ar­gögnum lög­reglu. Þess ber þó að geta að rann­sókn lög­reglu snérist ein­vörð­ungu um að upp­lýsa hver hefði lekið trún­að­ar­upp­lýs­ingum um ráðu­neyt­inu, ekki hvaðan upp­lýs­ing­arnar sem þar var að finna hefðu komið.

[quote font="0" align="right"]„Þá hefur Katrín Odds­dóttir, lög­maður áður­nefndrar konu sem nafn­greind er í minn­is­blað­inu, óskað eftir upp­lýs­ingum um á hvaða upp­lýs­ingum full­yrð­ingar Gísla voru byggðar.“[/quote]

Gísli Freyr eyddi tölvu­pósti sem Sigríður Björk hafði milli­göngu um að hann fengi. Gísli Freyr eyddi raunar öllu póstum tengdum hæl­is­leit­and­anum Tony Omos úr póst­hólfi sínu eftir að leka­málið svo­kall­aða komst í hámæli.

Per­sónu­vernd telur að mögu­lega hafi per­sónu­upp­lýs­ingum verið miðlað þegar Sigríður Björk sendi Gísla Frey áður­nefnda grein­ar­gerð. Per­sónu­vernd hef­ur sent lög­regl­unni á Suður­nesj­um bréf þar sem óskað er eft­ir skýr­ing­um varð­andi send­ingu grein­ar­gerðar um mál­efni hæl­is­leit­anda sem send var inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu. Þetta kemur fram á vef­síðu Per­sónu­verndar.

Sigríður Björk hefur ekki viljað veita fjöl­miðlum við­töl vegna máls­ins til þessa.

Fræga viðbótin sem gæti velt þungu hlassi


Í minn­is­blað­inu sem Gísli Freyr hefur nú verið sak­felldur fyrir að leka til fjöl­miðla úr inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu, var að finna fræga við­bót í lok skjals­ins. Viðbót sem Gísli Freyr tók upp á sitt eins­dæmi að semja og bæta við, áður en hann sendi það frá sér til óvið­kom­andi. Viðbótin var svohljóð­andi: „Þá er rétt að benda á að í hæl­is­máli stúlkunnar sem á von á barni, hugs­an­lega með TO (Tony Omos) er því borið við af hennar hálfu að hún sé mansals­fórn­ar­lamb. Ekki liggur ljóst fyrir hver er barns­faðir hennar, en rann­sókn­ar­gögn gefa til kynna að hún sé beitt þrýst­ingi um að segja að TO sé fað­ir­inn þó svo að hann eigi nú í sam­andi við íslenska stúlku.“

[caption id="attachment_11830" align="aligncenter" width="1632"] Gísli Freyr Val­dórs­son í dóm­sal þegar hann ját­aði að hafa lekið minn­is­blað­inu úr inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu til fjöl­miðla.[/caption]

Ósagt skal látið hvort við­bótin hafi verið hreinn skáld­skapur, búinn til í huga Gísla, en ekki er ólík­legt að telja að full­yrð­ing­arnar hafi verið byggðar á upp­lýs­ingum sem hann hafi búið yfir. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er nær ómögu­legt að upp­lýs­ingar sem full­yrð­ing­arnar eru byggðar á hafi komið frá öðrum en Útlend­inga­stofnun, Stíga­mótum eða emb­ætti lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum. Útlend­inga­stofnun sendir öll gögn við­kom­andi máls til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, þegar úrskurður stofn­un­ar­innar eru kærðir, og sömu­leiðis við­bót­ar­gögn sem stofn­un­inni ber­ast eftir að mál­inu er form­lega lokið þar. Stígamót býr yfir ýmsum upp­lýs­ingum varð­andi mögu­leg mansals­mál, enda leita fórn­ar­lömb slíkra mála iðu­lega til sam­tak­anna. Þá bjó emb­ætti lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum yfir marg­vís­legum upp­lýs­ingum um mál­efni Tony Omos, enda mál hans til rann­sóknar hjá emb­ætt­inu.

[quote font="0" align="right"]„Þá full­yrðir for­stjóri Útlend­inga­stofn­unar að hún hafi aldrei átt í sam­skiptum við Gísla Frey. Þá hafi hún spurt núver­andi starfs­menn Útlend­inga­stofn­unar hvort þeir hafi átt í sam­skiptum við fyrr­ver­andi aðstoð­ar­mann inn­an­rík­is­ráð­herra, sem þeir hafi allir neitað.“[/quote]

Þá hefur Katrín Odds­dóttir, lög­maður áður­nefndrar konu sem nafn­greind er í minn­is­blað­inu, óskað eftir upp­lýs­ingum um á hvaða upp­lýs­ingum full­yrð­ingar Gísla voru byggðar. Full­yrð­ing­arnar eru að mati Katrínar þess eðlis að þær hljóti að hafa verið byggðar á rann­sókn lög­regl­unnar á Suð­ur­nesj­unum. Hún vill því fá upp­lýs­ingar um hvort og hvernig þær upp­lýs­ingar hafi borist aðstoð­ar­manni inn­an­rík­is­ráð­herra.

Fullyrðingar sem ekki gátu byggt á gögnum frá Útlendingastofnun


Í sam­tali við Kjarnann full­yrðir Kristín Völ­und­ar­dóttir, for­stjóri Útlend­inga­stofn­unar, að Gísli Freyr hafi ekki getað byggt áður­nefndar full­yrð­ingar á gögnum sem stofn­unin sendi inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu. Upp­lýs­ingar um umrædda þungun hafi ekki litið dags­ins ljós fyrr en málum Tony Omos og kon­unnar sem nefnd er í minn­is­blað­inu hafi verið lokið hjá stofn­un­inni.

Tony Omos kærði ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar, um að meina honum um hæli hér á landi, til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins í lok maí árið 2012, og meint barns­móðir hans kærði sam­bæri­lega ákvörðun stofn­un­ar­innar í byrjun febr­úar í fyrra. Konan í minn­is­blað­inu fæddi barn í byrjun mars á þessu ári. Þá hafi stofn­un­inn ekki verið kunn­ugt um að konan væri beitt þrýst­ingi til að halda því fram að Tony Omos ætti barnið.

Þá full­yrðir for­stjóri Útlend­inga­stofn­unar að hún hafi aldrei átt í sam­skiptum við Gísla Frey. Þá hafi hún spurt núver­andi starfs­menn Útlend­inga­stofn­unar hvort þeir hafi átt í sam­skiptum við fyrr­ver­andi aðstoð­ar­mann inn­an­rík­is­ráð­herra, sem þeir hafi allir neitað. Það hefur hins vegar ekki verið sann­reynt við rann­sókn lög­reglu, enda snérist rann­sókn hennar fyrst og síð­ast um að upp­lýsa hver lak áður­nefndu minn­is­blaði frá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu til fjöl­miðla, eins og áður segir.

Í sam­tali við Kjarnann full­yrðir Guðrún Jóns­dóttir, tals­kona Stíga­móta, að engar upp­lýs­ingar hafi farið frá sam­tök­unum sem hafi gefið til­efni til full­yrð­inga Gísla Freys undir lok minn­is­blaðs­ins. Samtökin veiti aldrei inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu per­sónu­legar upp­lýs­ingar um skjól­stæð­inga sína, heldur ein­vörð­ungu lög­reglu.

Böndin berast að lögreglunni á Suðurnesjum


Í ljósi ofan­greinds vakna upp spurn­ingar um hvort Gísli Freyr hafi ein­fald­lega aflað sér upp­lýs­inga innan inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins um mál­efni Tony Omos, sem full­yrð­ingar hans hafa byggt á. Þá ber að hafa í huga að Gísli var póli­tískt ráð­inn aðstoð­ar­maður Hönnu Birnu, en ekki emb­ætt­is­maður innan ráðu­neyt­is­ins sem fjallar mál­efni hæl­is­leit­enda. Hann hefur þá þurft að afla sér þess­ara til­teknu upp­lýs­inga að eigin frum­kvæði, eða sam­kvæmt beiðni inn­an­rík­is­ráð­herra.

Þá ber að hafa í huga að ein af þeim vörnum sem Hanna Birna Krist­jáns­dóttir inn­an­rík­is­ráð­herra hefur haldið uppi í mál­inu, sem hún hefur ítrekað gert, var að ekk­ert sam­bæri­legt gagn og umrætt minn­is­blað væri að finna í ráðu­neyt­inu. Það er auð­vitað í besta falli orð­heng­ils­háttur, þar sem minn­is­blaðið, fyrir utan við­bót Gísla Freys, var sann­ar­lega til í ráðu­neyt­inu eins og rann­sókn lög­reglu hefur leitt í ljós. Spurð út í ummælin, þegar minn­is­blaðið fannst í tölvum starfs­manna ráðu­neyt­is­ins, hefur Hanna Birna sagst vera að vísa í „breytta“ minn­is­blaðið þar sem áður­nefndri við­bót Gísla Freys hafði verið bætt við.

Ef Gísli byggði full­yrð­ingar sínar á gögnum sem ekki voru til í ráðu­neyt­inu, vakna upp spurn­ingar hvaðan upp­lýs­ing­arnar sem full­yrð­ing­arnar byggðu á séu komnar. Miðað við ofan­greint ber­ast óum­flýj­an­lega böndin að lög­reglu­stjór­anum á Suð­ur­nesj­unum.

Ráðning Sigríðar Bjarkar vakti athygli innan lögreglunnar


[caption id="attachment_12486" align="alignleft" width="168"] Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.[/caption]

Starfs­fólki hjá emb­ætti lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum var til­kynnt um ráðn­ingu Sigríðar Bjarkar Guð­jóns­dóttur í stöðu lög­reglu­stjóra, nán­ast sam­dæg­urs og Stefán Eiríks­son sagði upp störfum. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans vakti ráðn­ing hennar athygli innan lög­regl­unnar, ekki síst á meðal þeirra rann­sókn­ar­lög­reglu­manna sem önn­uð­ust rann­sókn­ina á leka­mál­inu. Þeir vissu nefni­lega um sím­töl hennar og Gísla Freys við upp­haf leka­máls­ins.

Þá vakti ráðn­ing Sigríðar Bjarkar ekki síður athygli fyrir þær sakir að staða lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins var ekki aug­lýst laus til umsóknar. Um er að ræða eft­ir­sókn­ar­verð­ustu stöðu innan lög­regl­unnar, og eflaust margir núver­andi lög­reglu­stjórar sem hefðu haft áhuga á að sækja um stöð­una. Við nýlegar ráðn­ingar í stöður lög­reglu­stjóra í tveimur minnstu lög­reglu­um­dæm­unum, það er á Vest­fjörðum og Vest­manna­eyjum, voru stöð­urnar ræki­lega aug­lýstar, sem og hæfn­is­kröfur. Við skip­anir í þessi emb­ætti var skipuð sér­stök val­nefnd af ráð­herra til að meta hæfi umsækj­enda. Sama fyr­ir­komu­lag hefur meðal ann­ars verið við lýði við skipun rík­is­sak­sókn­ara og vara­rík­is­sak­sókn­ara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár