Gísli Freyr eyddi pósti sem Sigríður Björk hafði sent um Tony Omos

Gísli Freyr Val­dórs­son, fyrrum aðstoð­ar­maður Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra, eyddi tölvu­pósti sem Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, þáver­andi lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum og nú lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, hafði milli­göngu um að hann fengi. Gísli Freyr eyddi raunar öllu póstum tengdum hæl­is­leit­and­anum Tony Omos úr póst­hólfi sínu eftir að leka­málið svo­kall­aða komst í hámæli. Þetta kom fram i Kast­ljósi í kvöld.

Gísli Freyr hefur játað að hafa lekið minn­is­blaði með upp­lýs­ingum um Tony Omos til Frétta­blaðs­ins og mbl.is sem birt­ust í miðl­unum þennan saman dag, 20. nóv­em­ber. Áður en minn­is­blað­inu var lekið var búið að bæta upp­lýs­ingum við það um Omos. Gísli Freyr var í síð­ustu viku dæmdur í átta mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir lek­ann.

Sagði málið tilbúið í fjölmiðlunum


Í umfjöllun Kastljós kom fram að Hanna Birna Krist­jáns­dóttir hafi verið yfir­heyrð vegna rann­sóknar lög­reglu á leka­mál­inu í apríl. Þar sagð­ist hún ekki hafa vitað af þeim sam­skiptum sem Gísli Freyr átti við Frétta­blaðið og Morg­un­blaðið dag­inn sem minn­is­blað­inu um Tony Omos var lekið.

[quote font="0" align="right"]Þetta sé aðför gegn ráðu­neyt­inu og starfs­fólk þess þar sem það er sakað um ótrú­leg­ustu hluti í tengslum við þetta mál og önnur[/quote]

Í skýrslu lög­reglu segir að þegar Hanna Birna var spurð hvort hún vildi eitt­hvað tjá sig um málið að lokum hafi hún sagt að „erfitt [sé] að sitja undir þessu sem og aðrir starfs­menn ráðu­neyt­is­ins. Segir hún að þetta mál sé til­búið í fjöl­miðlum og vera með miklum ólík­indum. Þetta sé aðför gegn ráðu­neyt­inu og starfs­fólk þess þar sem það er sakað um ótrú­leg­ustu hluti í tengslum við þetta mál og önnur."

Sagði skoðun hafa sýnt engan leka


Framan af þessu ári vís­aði Hanna Birna ítrekað í athugun sem hún lét rekstr­ar­fé­lag Stjórn­ar­ráðs­ins gera á leka­mál­inu þegar hún varði sig. Þann 27. jan­úar fór fram sér­stök umræða um leka­málið á Alþingi og þar sagði Hanna Birna nokkuð hast­ar­lega í and­svari við fyr­ir­spurn stjórn­ar­and­stöðu­þing­manns­ins Val­gerðar Bjarna­dóttur að „nið­ur­staða þess­ara athug­ana er, að ekk­ert í gögnum ráðu­neyt­is­ins bendir til þess að trún­að­ar­gögn hafi verið send til aðila sem ekki eiga rétt á þeim lögum sam­kvæmt. Frá þessu hefur ráðu­neytið ítrekað greint, í svörum sínum til lög­manna hæl­is­leit­anda, í svörum til fjöl­miðla og ítrek­uðum yfir­lýs­ingum á heima­síðu ráðu­neyt­is­ins. En þrátt fyrir það eru áfram fluttar fréttir af meintum leka úr ráðu­neyt­inu og jafn­vel án þess að orðið meintur sé notað“.

[caption id="attachment_11835" align="alignnone" width="640"] Hanna Birna Krist­jáns­dóttir inn­an­rík­is­ráð­herra hefur beitt for­dæma­lausum þrýst­ingi á ýmsar stofn­anir vegna leka­máls­ins.[/caption]

Þann 16. maí síð­ast­lið­inn svar­aði Hanna Birna síðan skrif­legri fyr­ir­spurn um leka­málið. Í svari hennar segir: „Vegna þeirrar fyr­ir­spurnar sem hér er lögð fram er rétt að ítreka þær upp­lýs­ingar sem þegar hafa verið birtar á vef­síðu inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, þar sem fram kemur að sér­stök skoðun ráðu­neyt­is­ins og rekstr­ar­fé­lags Stjórn­ar­ráðs­ins, sem hefur umsjón með tölvu­kerfi ráðu­neyt­is­ins, hafi ekki gefið til­efni til að ætla að trún­að­ar­gögn hafi verið send óvið­kom­andi aðilum frá ráðu­neyt­inu. Athugað var hvort upp­lýs­ingar hefðu verið sendar úr mála­skrá ráðu­neyt­is­ins eða með tölvu­pósti til óvið­kom­andi aðila. Hefur rekstr­ar­fé­lagið stað­fest að svo var ekki“.

Skoðunin hvorki ítarleg né umfangsmikil


Í Kastjósi í kvöld kom fram að sam­kvæmt rann­sókn­ar­gögnum máls­ins var skoðun rekstr­ar­fé­lags Stjórn­ar­ráðs­ins hvorki ítar­leg né umfangs­mikil. Raunar ein­skorð­að­ist hún við þrönga skoðun á sam­skiptum ráðu­neyt­is­starfs­manna við fjöl­miðla. Rannsókn rekstr­ar­fé­lags­ins fór þannig fram að gerð var orða­leit í tölvu­póstum starfs­manna með tvennum hætti. Annars vegar var orða­sam­bandið „Tony Omos" kannað og hins vegar „Evelyn Glory Joseph".

[caption id="attachment_11833" align="alignnone" width="1024"] Gísli Freyr Val­dórs­son hefur játað að hafa lekið minn­is­blað­inu fræga. Hann var í síð­ustu viku dæmdur í átta mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi.[/caption]

Auk þess tak­mark­að­ist leitin við efn­is­lýs­ingu í haus tölvu­póst­send­inga, það er fyr­ir­sögn eða heiti tölv­pósts (e. subject), og heiti við­hengis, en ekki raun­veru­legs efn­is­inni­halds þeirra. Sú leit ein­skorð­að­ist auk þess við að kanna hvort ein­hver starfs­maður hefði sent fjöl­miðli minn­is­blaðið úr póst­hólfi sínu í ráðu­neyt­inu.

Í Kast­ljósi kom fram að þegar lög­reglan fram­kvæmdi loks leit í tölvu­póst­hólfum þeirra átta starfs­manna ráðu­neyt­is­ins sem höfðu haft aðgang að minni­blað­inu í apríl, hafi minn­is­blaðið fund­ist í tölvu­póst­hólfum allra starfs­manna sem höfðu fengið það, nema hjá Gísla Frey, sem var búinn að eyða því.

Eyddi líka pósti frá Sigríði Björk


Það var ekki eini tölvu­póst­ur­inn sem Gísli Freyr var búinn að eyða. Tölvu­póstur sem Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, þáver­andi lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum og nú lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, hafði milli­göngu um að sendur yrði til Gísla, hafði líka verið eytt. Þegar Gísli Freyr var spurður út í þetta við yfir­heyrslur og einnig hvort hann hafi sér­stak­lega eytt öllu sem tengd­ist Tony Omos úr tölvu sinni sagði Gísli Freyr: „Af því bara, það er svarið“. Um var að ræða grein­ar­gerð um mál Tony Omos.

DV greindi frá því í gær að Gísli Freyr og Sigríður Björk hafi hringst þrí­vegis á að morgni 20. nóv­em­ber 2013. Frásögn þeirra af efni sím­tal­anna hefur verið mis­vísandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár