Gísli Freyr segist ekki hafa rætt Tony Omos við Sigríði í símtölunum

Gísli Freyr Val­dórs­son, fyrrum aðstoð­ar­maður Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra, segir að hann hafi tví­vegis hringt í Sigríði Björk Guð­jóns­dóttur, þáver­andi lög­reglu­stjóra á Suð­ur­nesjum, að morgni 20. nóv­em­ber í fyrra. Hún hafi hins vegar aldrei hringt í hann þennan morgun. „Ég man ekki hvað við ræddum, en við ræddum ekki Tony Omos,“ segir Gísli Freyr í sam­tali við Kjarnann.

Sama dag og Gísli ræddi við Sigríði Björk birtu Frétta­blaðið og mbl.is fréttir sem byggðu á minn­is­blaði um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos sem Gísli Freyr hefur við­ur­kennt að hafa lekið til fjöl­miðl­anna. Að sögn Gísla áttu sím­tölin við Sigríði Björk sér stað eftir að Frétta­blaðið birti sína frétt um málið en áður en mbl.is birti sína frétt. Báðir fjöl­miðl­arnir voru hins vegar þegar búnir að fá minn­is­blaðið í sínar hendur þegar sím­tölin áttu sér stað.

Í DV í dag er sagt að Gísli Freyr og Sigríður hafi rætt þrí­vegis saman í síma að morgni 20. nóv­em­ber.

Er nú lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu


Sigríður Björk var á þessum tíma lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum. Hún var skipuð í starf lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins af Hönnu Birnu í júlí síð­ast­liðnum án aug­lýs­ingar í kjöl­far þess að fyr­ir­renn­ari hennar, Stefán Eiríks­son, sagði starfi sínu lausu. Í aðdrag­anda upp­sagnar Stefáns hafði hann orðið fyrir ítrek­uðum afskiptum af hendi inn­an­rík­is­ráð­herra vegna rann­sóknar á leka­mál­inu. Umboðs­maður Alþingis hefur haft sam­skipti Hönnu Birnu og Stefáns til skoð­unar og er von á áliti hans um þau í þess­ari viku.

Gísli Freyr hefur játað að hafa lekið minn­is­blaði með upp­lýs­ingum um Tony Omos til Frétta­blaðs­ins og mbl.is sem birt­ust í miðl­unum þennan saman dag, 20. nóv­em­ber. Áður en minn­is­blað­inu var lekið var búið að bæta upp­lýs­ingum við það um Omos. Gísli Freyr var í síð­ustu viku dæmdur í átta mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir lek­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár