Búist við niðurstöðu í lekamálinu um miðjan ágúst

Búist er við að rík­is­sak­sókn­ari muni til­kynna um nið­ur­stöðu sína í leka­mál­inu svo­kall­aða fyrir miðjan ágúst, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Nið­ur­staða emb­ætt­is­ins getur verið á þrjá vegu: það getur ákveðið að ákæra í mál­inu, fella það niður eða vísa því aftur til lög­reglu til frek­ari rann­sóknar.

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur rann­sakað leka­málið svo­kall­aða síðan í febr­úar. Málið snýst um það að ein­hver lét tveimur fjöl­miðlum, mbl.is og Frétta­blað­inu, í té óform­legt minn­is­blað með per­sónu­upp­lýs­ingum um þrjá nafn­greinda ein­stak­linga í nóv­em­ber 2013. Einn þess­arra ein­stak­linga var hæl­is­leit­and­inn Tony Omos. Fram hefur komið í opin­berum dóms­skjölum að lög­reglan hafi rök­studdan grun að starfs­maður inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins hafi lekið minn­is­blað­inu. Fjöl­miðlar hafa síðar greint frá því að sá starfs­maður er Gísli Freyr Val­dórs­son, annar aðstoð­ar­manna Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra.

Enginn hefur gengist við því að hafa lekið


Alls höfðu átta ein­stak­lingar vit­neskju um til­urð minn­is­blaðs­ins: skrif­stofu­stjóri, þrír lög­fræð­ingar ráðu­neyt­is­ins, ráðu­neyt­is­stjóri, Hanna Birna Krist­jáns­dóttir inn­an­rík­is­ráð­herra og tveir póli­tískir aðstoð­ar­menn hennar. Allir innan þess hóps sem hafa verið yfir­heyrðir hafa neitað því að hafa lekið minn­is­blað­inu til fjöl­miðla.

Rann­sak­endur reyndu að fá Sunnu Ósk Loga­dóttur, frétta­stjóra mbl.is, til að skýra frá því hver hafi lekið minn­is­blað­inu til fjöl­mið­ils­ins. Hæsti­réttur hafn­aði þeirri kröfu þeirra og leka­málið var í kjöl­farið sent til rík­is­sak­sókn­ara sem þarf að taka ákvörðun um næstu skref í því.

Afar óvenju­legt er að lög­regla reyni að fá trún­aði blaða­manna við heim­ild­ar­menn aflétt fyrir dóm­stólum. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans mat lög­reglan það sem svo að stað­fest­ing blaða­manna á því hver hefði lekið minn­is­blað­inu væri mjög mik­il­væg í sönn­un­ar­færslu í mál­inu. Sú stað­fest­ing fékkst ekki þar sem þeir blaða­menn sem eiga í hlut hafa neitað að upp­lýsa um hvaðan lek­inn kom og dóm­stólar hafa neitað að skikka þá til þess.

Fundir með lögreglustjóra og gagnrýni á seinagang


Leka­málið tók nýja beygju í síð­ast­lið­inni viku þegar DV hélt því fram á for­síðu sinni að Stefán Eiríks­son, lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, hafi ákveðið að leita eftir nýju starfi vegna þess að hann upp­lifði þrýst­ing frá Hönnu Birnu vegna leka­máls­ins. Í kjöl­farið óskaði Umboðs­maður Alþingis eftir því með bréfi að Hanna Birna svar­aði því til hvort hún hafi fundað eða átt sam­skipti við Stefán vegna leka­máls­ins. Því bréfi var svarað í gær. Þar sagð­ist Hanna Birna hafa átt fundi með, og sam­töl við Stefán, en neit­aði að hafa þrýst á hann. Hún hafi þó gagn­rýnt seina­gang rann­sókn­ar­innar við Stefán. Lesa má frétt Kjarnans um bréfið í heild sinni hér.

Í bréfi sínu til umboðs­manns Alþingis segir Hanna Birna meðal ann­ars að langur rann­sókn­ar­tími hafi verið baga­legur fyrir sig. „Þegar rann­sókn máls­ins hófst gaf ég út þá yfir­lýs­ingu að ég myndi ekki tjá mig um málið fyrr en henni væri lokið, enda ekki við hæfi að ráð­herra lög­reglu­mála tjáði sig opin­ber­lega um rann­sókn á meðan hún stæði yfir. Meðal ann­ars af þess­ari ástæðu hefur sá langi tími sem rann­sóknin hefur tekið verið baga­legur og t.a.m. tak­markað mögu­leika mína til að svara ítrek­uðum árásum sem ég hef orðið fyrir á opin­berum vett­vangi.“

Þar sem nið­ur­staða rík­is­sak­sókn­ara er yfir­vof­andi ætti Hanna Birna að fá tæki­færi til að tjá sig um málið á allra næstu vikum.

Enginn farið fram á að Hanna Birna tjái sig ekki


Kjarninn greindi hins vegar frá því þann 6. maí síð­ast­lið­inn að hvorki lög­regla né rík­is­sak­sókn­ari hafi farið þess á leit við Hönnu Birnu að hún tjái sig ekki opin­ber­lega um leka­málið. Það er því hennar ákvörðun, en ekki krafa rann­sókn­ar­að­ila, að tjá sig ekki. Í frétt um málið frá þeim tíma segir: „Og þá er frá­leitt að lög­reglu­yf­ir­völd hafi bannað Inn­an­rík­is­ráð­herra að tjá sig um málið. Ef lög­regla hefur áhyggjur af því að ein­stak­lingar tjái sig um mál sem eru til rann­sóknar, með rann­sókn­ar­hags­muni að leið­ar­ljósi, hefur lög­regla það eina úrræði að krefj­ast gæslu­varð­halds yfir við­kom­andi. Hanna Birna Krist­jáns­dóttir Inn­an­rík­is­ráð­herra má því og getur tjáð sig um málið kjósi hún svo. Það hefur hún hins vegar ekki gert. Þá eru mögu­leg rök um að hún geti ekki tjáð sig um lög­reglu­rann­sókn sem yfir­maður lög­reglu­mála í land­inu ansi hald­lítil, þar sem hún kaus sjálf að víkja ekki sæti þrátt fyrir að ráðu­neyti hennar væri til rann­sóknar“. Lesa má frétt­ina í heild sinn hér.

Hægt er að lesa dóm Hæsta­réttar, og úrskurð Hér­aðs­dóms Reykja­víkur, í mál­inu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár