Hanna Birna segist ekki hafa beitt lögreglustjóra þrýstingi

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir inn­an­rík­is­ráð­herra hafnar með öllu því sem hún kallar „stór­yrtum og ósönnum full­yrð­ingum DV“ vegna leka­máls­ins svo­kall­aða. Hún seg­ist hvorki hafa beitt Stefán Eiríks­son, lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, þrýst­ingi eða haft óeðli­leg afskipti af ein­stökum málum sem eru eða hafa verið til með­ferðar hjá lög­reglu. Hún kaus hins vegar að svara ekki beint spurn­ingum Kjarnans um hvort ráð­herra hafi átt sam­töl við Stefán Eiríks­son vegna máls­ins.

DV hélt því fram á for­síðu í morgun að Stefán hafi ákveðið að hætta störfum sem lög­reglu­stjóri sem afskipta Hönnu Birnu af rann­sókn á leka­mál­inu svo­kall­aða, en Stefán réð sig nýverið sem svið­stjóra hjá Reykja­vík­ur­borg. Hægt er að lesa frétt DV hér.

Svaraði fyrirspurn ekki beint


Kjarninn sendi eft­ir­far­andi spurn­ingar vegna máls­ins á Hönnu Birnu fyrr í dag:

Hefur þú átt sam­töl við Stefán Eiríks­son, lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, um leka­málið svo­kall­aða?

Ef já, lýstir þú yfir óánægju með rann­sókn emb­ætt­is­ins á leka­mál­inu svo­kall­aða?

Ef já, hvenær áttu þessi sam­töl sér stað?

Í svari sem barst frá Þóreyju Vil­hjálms­dóttur, aðstoð­ar­manni Hönnu Birnu, var spurn­ing­unum ekki svarað beint. Þess í stað voru send ummæli sem má hafa eftir Hönnu Birnu. Þau eru eft­ir­far­andi:

„Ég hafna með öllu stór­yrtum og ósönnum full­yrð­ingum DV vegna þessa máls. Likt og komið hefur fram í dag bæði hjá mér og lög­reglu­stjóra á ég enga aðkomu að ákvörðun hans um að skipta um starfs­vett­vang og hef hvorki beitt hann þrýst­ingi eða haft óeðli­leg afskipti af ein­stökum málum sem eru eða hafa verið til með­ferðar hjá lög­reglu. I því máli sem hér er til umræður hef ég og allir starfs­menn ráðu­neyt­is­ins sýnt fullan sam­starfsvilja við rann­sókn máls­ins á öllum stigum enda hefur málið verið rann­sakað ítar­lega. Líkt og komið hefur fram liggur nið­ur­staða ekki enn fyrir og mun ég þangað til ekki tjá mig frekar um málið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár